Birgitta bleikust á frönsku ríverunni

Birgitta Líf er aldeilis að njóta lífsins.
Birgitta Líf er aldeilis að njóta lífsins. Skjáskot/Instagram

Birgitta Líf Björns­dótt­ir, áhrifa­vald­ur og markaðsstjóri World Class, nýt­ur nú lífs­ins á frönsku ríver­unni. Hún er staðsett í Cann­es í Frakklandi og virðist hafa aðeins tekið með sér bleik­an fatnað. 

Hún deildi nokkr­um mynd­um af sér í sólbaði á In­sta­gram.

Cann­es í Frakklandi þykir einn mesti lúx­ustaður­inn í Suður-Evr­ópu til að verja sum­ar­dög­un­um og verður ávallt fyr­ir val­inu hjá stór­stjörn­um. 

„Þetta var góður dag­ur,“ skrifaði hún und­ir nokkr­ar mynd­ir af sér í bleiku bik­iní. Það var þó ekki eina sem var bleikt held­ur drakk hún bleikt rósa­vín og var með ljós­bleikt der. Það eina sem ekki var bleikt var gyllt keðju­belti frá franska tísku­hús­inu Chanel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert