Reiðhjól að meðaltali mun ódýrari en áður

Heildarfjöldi innfluttra hjóla, rafmagnshjóla og rafmagnshlaupahjóla hefur minnkað, en ef …
Heildarfjöldi innfluttra hjóla, rafmagnshjóla og rafmagnshlaupahjóla hefur minnkað, en ef frá eru talin faraldursárin er heildarupphæðin á svipuðu róli og áður var. Morgunblaðið/Eggert

Inn­flutn­ing­ur á reiðhjól­um og raf­magns­far­ar­tækj­um var á svipuðum stað í fyrra og árið þar á und­an, en þá hafði bæði fjöldi tækja og heild­ar­verðmæti þeirra hrunið frá ár­un­um 2020 til 2022. Var ár­legt inn­kaupa­verðmæti þess­ara far­ar­tækja aðeins um helm­ing­ur þess sem það hafði verið á ár­un­um 2020 til 2022.

Örlít­il auk­ing var í fjölda far­ar­tækja sem flutt voru inn í fyrra miðað við árið á und­an, en heild­ar­verðmætið lækkaði þó ögn að raun­v­irði, en rétt er að taka fram að all­ar verðtöl­ur í grein­inni eru á föstu verðlagi fe­brú­ar­mánaðar á þessu ári.

Meðal­inn­flutn­ings­verð á nýju raf­magns­reiðhjóli sem flutt var inn til lands­ins í fyrra var um 300 þúsund krón­ur og fyr­ir raf­magns­hlaupa­hjól er meðal­inn­flutn­ings­verðið um 65 þúsund krón­ur. Lækka þess­ar töl­ur úr 315 þúsund fyr­ir raf­magns­reiðhjól árið áður og 81 þúsund fyr­ir hlaupa­hjól­in, mælt á raun­v­irði. Þegar horft er yfir lengra tíma­bil sést hins veg­ar að árið 2020 var meðal­verð hjól­anna hæst, eða tæp­lega 350 þúsund og árið 2022 fyr­ir raf­magns­hlaupa­hjól­in, en þá var meðal­verðið 98 þúsund á hvert tæki.

Meðal­verð á hefðbundn­um reiðhjól­um held­ur hins veg­ar áfram að lækka og er nú aðeins rúm­lega helm­ing­ur þess sem það var árið 2020.

Færri hefðbund­in hjól en áður

Þetta er á meðal þess sem lesa má úr töl­um Hag­stof­unn­ar um inn­flutn­ing á reiðhjól­um, raf­magns­reiðhjól­um og raf­magns­hlaupa­hjól­um. Rétt er að hafa í huga að hér er um að ræða inn­kaupsverð og er þá álagn­ing hér á landi eft­ir áður en hefðbundið sölu­verð til neyt­enda er reiknað.

Áhuga­vert er að sjá að fjöldi inn­fluttra hefðbund­inna reiðhjóla held­ur áfram að minnka, en lækk­un­in er þó öllu minni en árið áður. Í fyrra voru flutt inn 9.336 hefðbund­in hjól, en voru 9.716 árið áður. Fjöldi þeirra hafði hins veg­ar verið miklu meiri í lang­an tíma þar á und­an og í kring­um 17 þúsund ár­lega frá 2019 til 2022. Þar á und­an voru jafn­vel fleiri hefðbund­in hjól flutt inn ár­lega og var hápunkt­ur­inn árið 2017 þegar þau voru tæp­lega 25 þúsund.

Kort/​mbl.is

Raf­magns­hjól­um ruku upp eft­ir 2016

Með til­komu raf­magns­hjóla og raf­magns­hlaupa­hjóla um og eft­ir 2016 fór fjöldi þeirra tækja hins veg­ar að aukast í inn­flutn­ingstöl­um. Náðu raf­hlaupa­hjól­in há­marki árið 2020, en far­ald­ursárið voru flutt inn tæp­lega 20 þúsund stykki af slík­um tækj­um. Hef­ur fjöldi slíkra tækja sem flutt eru inn síðan farið minnk­andi og síðustu tvö ár hafa verið flutt inn rúm­lega 1.800 slík tæki ár­lega.

Raf­hjól­in náðu hins veg­ar hápunkti árið 2022 þegar tæp­lega 7 þúsund slík hjól voru flutt inn. Árið 2023 minnkaði fjöld­inn í 3.688 og í fyrra fjölgaði þeim lít­il­lega upp í 4.020 stykki.

Meðal­verð raf­magns­far­ar­tækj­anna virðist að ein­hverju leyti hald­ast í hend­ur við fjölda inn­fluttra tækja ár hvert, en í öf­ugu sam­bandi. Það er, hæsta meðal­verð á raf­hjól­um var árið 2020 þegar fæst slík hjól voru flutt inn. Þá var lægsta meðal­verð slíkra hjóla árið 2022 þegar flest hjól voru flutt inn.

Með raf­magns­hlaupa­hjól­in var lægsta meðal­verðið árið 2020 þegar lang­flest hlaupa­hjól­in voru flutt inn, en þau voru tals­vert dýr­ari þegar þeim tók að fækka. Hins veg­ar hef­ur verðið síðustu tvö ár lækkað þrátt fyr­ir færri inn­flutt tæki.

Þró­un­in núna á pari við það sem var fyr­ir far­ald­ur

Þegar kem­ur að reiðhjól­un­um virðist hins veg­ar eins og bæði verð og fjöldi hjóla fari lækk­andi ár frá ári eft­ir að hafa náð há­marki árið 2020 þegar meðal­verðið var um 85 þúsund krón­ur á hjól. Í fyrra var meðal­verð hefðbund­inna reiðhjóla sem flutt voru inn aðeins 46 þúsund, eða rúm­lega helm­ing­ur þess þegar mest var. Leiða má lík­ur að því að þetta hafi bæði með það að gera að færri eru að kaupa sér mjög dýr keppn­is­hjól og að fleiri hafa fært sig yfir í dýr­ari raf­magns­reiðhjól á kostnað dýr­ari hefðbund­inna hjóla.

Þar sem verðmæti raf­magns­hjóla er tals­vert hærra en verð á hefðbundn­um reiðhjól­um er heild­ar­inn­flutn­ings­verð allra þess­ara far­ar­tækja nokkuð á pari við það sem var áður en raf­magns­tækj­un­um fór að fjölga til muna. Eins og fyrr seg­ir var al­gjört stökk árin 2020 til 2022 sem lík­lega má að stór­um hluta skrifa á far­ald­ur­inn og auk­inn úti­vistaráhuga lands­manna yfir það tíma­bil. Nú virðist hins veg­ar eins og staðan hafi aðeins jafn­ast á ný og er þró­un­in meira í átt að því sem sást á ár­un­um fyr­ir far­ald­ur þegar kem­ur að heild­ar­verðmæti á öll­um þess­um far­ar­tækj­um.

Frétt­in birt­ist fyrst í Hjóla­blaði Morg­un­blaðsins.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert