48 tímar í París: „Ást við fyrstu sýn“

48 tímar í París: Hvað er hægt að gera og …
48 tímar í París: Hvað er hægt að gera og sjá. Samsett mynd

Par­ís er ekki kölluð borg ástar­inn­ar að ástæðulausu, fáar borg­ir í heim­in­um bjóða upp á jafn heill­andi blöndu af sögu­frægri menn­ingu, stór­brot­inni bygg­ing­ar­list og líf­legu borg­ar­lífi. 

Blaðamaður mbl.is skellti sér í sína fyrstu ferð til Par­ís­ar nú í vor og féll kylli­flöt fyr­ir borg­inni. Eft­ir að hafa eytt tveim­ur dög­um í Par­ís stóðu nokkr­ar upp­lif­an­ir og staðir sér­stak­lega upp úr. Hér eru atriði sem ættu að vera á dag­skrá hjá hverj­um þeim sem heim­sæk­ir borg­ina í fyrsta sinn og finnst gam­an að hafa gam­an.

Að gera

Rölta meðfram Signu

Að ganga meðfram Signufljót­inu er klass­ísk leið til að kynn­ast Par­ís. Það er eitt­hvað töfr­andi við að rölta yfir hinar sögu­legu brýr, skoða bouquini­ste - gömlu grænu bóka­bás­ana meðfram ánni og njóta götu­lífs­ins. Að sitja á bekk við Signu með nýbakað croiss­ant og horfa á bát­ana sigla hjá er ein­föld en ógleym­an­leg upp­lif­un sem fang­ar kjarna Par­ís­ar.

Bouquiniste bókabás.
Bouquini­ste bóka­bás. Ljós­mynd/​Haf­dís Sól

Aquari­um Club Par­is

Fyr­ir þá sem finnst ekki leiðin­legt að kíkja út á næt­ur­lífið við og við tók ég það á mig eitt kvöldið að skoða úr­val næt­ur­klúbba í Par­ís. Ef þig klæj­ar í tærn­ar og þráir að kíkja á dans­gólfið er ómiss­andi að prófa Aquari­um Club, einn sá sér­kenni­leg­asti í borg­inni. Klúbbur­inn er hýst­ur inni í risa­vöxnu fiska­búri, þar sem alls kon­ar fisk­ar synda bak við DJ-púlt og dans­gólfið.

And­rúms­loftið er óaðfinn­an­legt, á einu augna­bliki er maður að dilla sér við tón­list­ina og á því næsta er maður að fylgj­ast með skjald­böku svífa í bak­grunn. Ég er enn ekki viss hvort kvöldið stóð upp úr vegna tón­list­ar­inn­ar eða vegna þess að ég var oft­ar en ekki gapandi yfir þessu sjáv­ar­lífi. Mynda­al­búmið mitt endaði að minnsta kosti næst­um ein­göngu með mynd­um af fiska­búr­inu.

Týn­ast í Mont­martre

Í norðan­verðri Par­ís trón­ir hæðin Mont­martre, einna þekkt­ust fyr­ir hvítu Sacré-Cœur-kirkj­una sem gnæf­ir yfir borg­ina. Það er ómiss­andi að rölta um krók­ótt­ar, steinilagðar göt­ur Mont­martre-hverf­is­ins, þar sem list­mál­ar­ar teikna portrett á torg­inu Place du Tertre og lífið geng­ur sinn hæga gang. Hverfið hef­ur ákveðinn gam­aldags sjarma; hér má auðveld­lega týna sér í and­rúms­loft­inu, setj­ast á litla kaffi­húsið á horni göt­unn­ar og njóta út­sýn­is­ins yfir borg­ina.

Margir segja Montmartre vera fallegasta hverfið í París, enda guðdómlegar …
Marg­ir segja Mont­martre vera fal­leg­asta hverfið í Par­ís, enda guðdóm­leg­ar bygg­ing­ar og krútt­leg­ar göt­ur sem prýða hverfið. Ljós­mynd/​Unsplash/​Bastien Nvs

Að sjá

Eif­felt­urn­inn

Eng­inn ferðalang­ur læt­ur Eif­felt­urn­inn fram hjá sér fara, járnt­urn­inn fræga sem reist­ur var fyr­ir heims­sýn­ing­una 1889. Ég verð að viður­kenna að ég var alltaf hálf­d­ol­fall­inn þegar ég horfði upp eft­ir þess­um gríðar­stóra turni sem maður hef­ur séð ótal sinn­um á ljós­mynd­um og í kvik­mynd­um.

Á kvöld­in breyt­ist allt, turn­inn er útataður í gyllt­um ljós­um og glitr­ar fyrstu fimm mín­út­urn­ar á hverj­um klukku­tíma eft­ir að sól­in sest. Þið viljið ekki missa af þeirri sýn­ingu eins og mér tókst ein­hvern veg­inn að gera! Það gef­ur mér þó full­komna af­sök­un til að heim­sækja Par­ís aft­ur við fyrsta tæki­færi.

Eitt sem ég mæli með að gera: Pakkið teppi, ost­um, jarðarberj­um, súkkulaði og kampa­víni, leggið ykk­ur út á Champs-de-Mars og njótið laut­ar­ferðar með beinu út­sýni að turn­in­um. Get­ur það orðið róm­an­tísk­ara?

Eiffelturninn frægi.
Eif­felt­urn­inn frægi. Ljós­mynd/​Haf­dís Sól

Notre Dame-kirkj­an

Hin goðsagna­kennda Notre Dame-dóm­kirkja er annað kenni­leiti sem eng­inn ætti að láta fram hjá sér fara. Þessi 862 ára gamla stór­kirkja prýðir Ile de la Cité-eyju og var reist á ár­un­um 1163 til 1345. Eft­ir brun­ann 2019 hef­ur verið unnið að end­urupp­bygg­ingu kirkj­unn­ar og hún opnaði aft­ur fyr­ir al­menn­ing árið 2024. 

Fyr­ir þá sem ólust upp við Disney-mynd­ina „Hringj­ar­inn í Notre Dame“ (The Hunchback of Notre Dame) vakna hér æv­in­týra­mynd­ir úr bernsku; maður get­ur næst­um ímyndað sér Quasimodo sjálf­an klingja kirkju­klukk­um í turn­in­um á meðan Es­mer­alda dans­ar á torg­inu fyr­ir fram­an. Ef þið eruð á leiðinni til Par­ís­ar en hafið ekki horft á þessa mynd er þetta skyldu­áhorf í flug­vél­inni.

Mat­ur og drykk­ir

NOTO

Til að upp­lifa næt­ur­líf og góðan mat í senn er veit­ingastaður­inn NOTO frá­bært val. NOTO er líf­leg­ur staður með ít­ölsku ívafi sem hef­ur skapað sér nafn sem einn af skemmti­leg­ustu „partí“-veit­inga­stöðum borg­ar­inn­ar. Á kvöld­in lifn­ar hann við skemmti­leg tón­list­ar­atriði. Stemn­ing­in er öfl­ug, mat­seðill­inn býður upp á ljúf­fenga rétti og kokteil­ar húss­ins toppa kvöldið. Hvort sem þú kem­ur hingað í for­drykk, kvöld­verð eða kokteila seint um kvöld, þá er and­rúms­loftið á NOTO óviðjafn­an­legt og skemmti­legt langt fram á nótt.

Gira­fe

Ef róm­an­tísk kvöld­stund með út­sýni er það sem þú leit­ar að, þá er Gira­fe staður­inn. Þessi glæsi­legi veit­ingastaður er staðsett­ur í Pala­is de Chaillot og stát­ar af stór­feng­legri úti­ver­önd á efstu hæð með ótrú­legu út­sýni yfir Eif­felt­urn­inn. Gira­fe er vin­sæll staður bæði meðal heima­manna og ferðamanna, svo væn­legt er að panta borð með fyr­ir­vara ef mögu­legt er, en upp­lif­un­in af bæði mat og út­sýni er al­gjör­lega þess virði.

Ca­rette

Í ná­lægð við Troca­déro er sögu­fræga kaffi­húsið Ca­rette, sem marg­ir telja ómiss­andi viðkomu­stað í Par­ís. Ca­rette var stofnað árið 1927 og hef­ur í yfir 80 ár trónað á Troca­déro-torg­inu sem upp­á­haldsstaður heima­manna. Þú finn­ur þar dá­sam­leg­ar makkarón­ur, brak­andi ferskt bakk­elsi og silkimjúkt heitt súkkulaði. Hins veg­ar þarf að gera ráð fyr­ir biðröð, vin­sæld­ir staðar­ins þýða að oft mynd­ast röð langt út fyr­ir dyr. Sé biðin of löng get­ur maður fengið svipaða upp­lif­un á kaffi­hús­inu við hliðina á - sem er ein­mitt það sem ég gerði.

Er eitthvað betra en að setjast niður eftir langan dag …
Er eitt­hvað betra en að setj­ast niður eft­ir lang­an dag í nýrri stór­borg og panta sér einn drykk? Ljós­mynd/​Haf­dís Sól
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert