Gerður í Blush sleikir sólina í Barselóna

Já, það er aldrei leiðinlegt hjá Gerði í Blush.
Já, það er aldrei leiðinlegt hjá Gerði í Blush. Samsett mynd

Gerður Huld Ar­in­bjarn­ar­dótt­ir, at­hafna­kona og eig­andi kyn­líf­stækja­versl­un­ar­inn­ar Blush, er sann­kallaður heims­borg­ari og læt­ur ekki líða langt á milli ut­an­lands­ferða, enda nauðsyn­legt að kúpla sig frá vinnu og njóta alls þess sem hinn stóri heim­ur hef­ur upp á bjóða.

At­hafna­kon­an, sem var val­in markaðsmann­eskja árs­ins í fe­brú­ar 2022, er nú stödd á Spáni, nán­ar til­tekið í menn­ing­ar­borg­inni Bar­sel­óna, og virðist vera að njóta sín í botn ef marka má færsl­ur henn­ar á sam­fé­lags­miðlum.

Gerður er ófeim­in við að birta ým­iss kon­ar skemmti­leg augna­blik á sam­fé­lags­miðlum og deildi á sunnu­dag mynd sem sýn­ir hana í gegn­sæj­um blúndu­bux­um að njóta lífs­ins á götu í Bar­sel­óna.

Við mynd­ina skrif­ar hún: „Rassel­óna“.

Spánn er ekki eini sjarmer­andi sól­arstaður­inn sem Gerður hef­ur heim­sótt í maí­mánuði, en í byrj­un mánaðar­ins eyddi hún sól­rík­um dög­um á eyj­unni Krít og birti mynd af sér við sund­laug­ar­bakk­ann, að sjálf­sögðu með hvít­víns­glas í hönd.

Elt­ir ekki bara sól­ina

Gerður elt­ir þó ekki bara sól­ina. Hún elsk­ar einnig að ferðast á kald­ari slóðir og byrjaði árið á skíðum í þorp­inu Madonna Di Campiglio á Ítal­íu.

At­hafna­kon­an er einkar hrif­in af Ítal­íu og hef­ur heim­sótt landið oft­ar en einu sinni, tvisvar og þris­var, og eins og flest­ir lands­menn vita þá fór henn­ar heitt­elskaði, flugmaður­inn Jakob Fann­ar Han­sen, á skelj­arn­ar og bað Gerðar um borð í báti er parið sigldi um Garda-vatn, stærsta stöðuvatn Ítal­íu, síðasta sum­ar.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert