Hjólin á The Tequila Express, sem myndi útleggjast sem Tekíla-hraðlestin á íslensku, eru farin að snúast á nýjan leik í mexíkósku borginni Guadalajara eftir nokkurra ára hlé, en lestin hætti að ganga þegar kórónuveirufaraldurinn geisaði hvað svæsnast þar sem ferðamönnum fækkaði til muna vegna strangra ferðatakmarkana.
Lestin, sem hefur verið vinsæl afþreying meðal ferðamanna allt frá því hún lagði af stað í jómfrúarferð sína fyrir 28 árum síðan, býður ævintýraþyrstum, með áherslu á þyrstum, ferðalöngum upp á einstaka upplifun sem tengir saman sögu Mexíkó, samfélag og menningu, þá sérstaklega drykkjarmenningu, er þeir ferðast frá Guadalajara yfir til Tequila, þar sem samnefnt brennivín á uppruna sinn.
Ferðamenn, sem stíga um borð í Tekíla-hraðlestina, fá tækifæri til að heimsækja brennivínsgerðir á svæðinu, meðal annars José Cuervo, framleiðanda mest selda tekíla í heimi, Herradura og Casa Sauza, og fylgjast þar með vinnsluferlinu og enda svo á að bragða á vel völdum veigum á hverjum stað.
Lestin stoppar einnig við The Agave Landscape and Ancient Industrial Facicilties of Tequila þar sem bláa agave-plantan vex, en án hennar væri ekkert tekíla, og fá áhugasamir að kynnast merkilegri sögu plöntunnar og tekíla.