Fagnaði sextugsafmælinu í paradís

Brooke Shields.
Brooke Shields. Skjáskot/Instagram

Banda­ríska leik­kon­an Brooke Shields fagnaði sex­tugsaf­mæli sínu í fyrra­dag, laug­ar­dag­inn 31. maí.

Í til­efni stóraf­mæl­is­ins birti hún mynd­ir af sér í bik­iníi ein­um klæða, liggj­andi í hengi­rúmi á sann­kallaðri para­dís­ar­strönd, og ef marka má In­sta­gram-mynd­irn­ar þá átti leik­kon­an ansi af­slapp­andi dag.

„Vaknaði í para­dís... og á nýj­um ára­tug lífs­ins! Þetta er ️60! Takk fyr­ir alla af­mælis­ást­ina,“ skrifaði leik­kon­an við færsl­una.

Fjöl­marg­ar stór­stjörn­ur hafa óskað af­mæl­is­barn­inu hjart­an­lega til ham­ingju á sam­fé­lags­miðlasíðunni, þar á meðal Sophia Bush, El­iza­beth Hurley, Christie Brinkley, Monica Lew­insky og Helena Christen­sen.

Shields hef­ur átt far­sæl­an fer­il í Hollywood síðustu ára­tugi. Hún hóf leik­fer­il sinn ung að aldri en hún skaust á stjörnu­him­in­inn þegar hún fór með hlut­verk Vi­olet í kvik­mynd­inni Pretty Baby árið 1978, þá aðeins 12 ára göm­ul.

Nú síðast fór hún með hlut­verk í kvik­mynd­inni Mot­her of the Bri­de sem var frum­sýnd á streym­isveit­unni Net­flix í fyrra. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Brooke Shields (@brookes­hields)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert