Strendurnar í Króatíu eru engu líkar og því freistandi að stinga af úr kulda og roki og sóla sig með sand á milli tánna. Króatía hefur verið vinsæll áfangastaður margra Íslendinga upp á síðkastið.
Ferðavefur Condé Nast Traveller tók fyrr á árinu saman lista yfir tuttugu bestu strendurnar í Króatíu og hér eru nokkrar vel valdar.
Þessa strönd kannastu kannski við af veggspjöldum sem hanga víðast hvar um heiminn. Zlatani Rat er fíngerð steinaströnd sem breytir um lögun eftir ríkjandi vindi og straumum. Hún er oft talin ein besta strönd Króatíu og er staðsett á suðurströnd eyjunnar Brač.
Sveti Ivan ströndin er við eyjuna Cres sem er aðallega þekkt fyrir sauðfjárrækt. Á vesturströndinni er borgin Lubicane sem er staðsett uppi á hæð. Þaðan er hægt að ganga á 40 mínútum niður á hvítu fíngerðu ströndina Sveti Ivan. Ef þú heimsækir ströndina með báti skaltu stoppa í bænum Cres og þorpinu Valun.
Stračinska ströndin er á eyjunni Solta sem er afar róleg eyja og því eru yfirleitt færri gestir þar en á þekktustu ströndunum. Ströndin er við flóa sem hægt er að komast að á báti eða jafnvel hjólandi. Þessi strönd er tilvalin til að slaka á og endurnærast við sjávarhljóðin. Eins og flestar strendur í Króatíu er hún með smásteinum, umkringd klettum og lágum runnum.