Það getur verið yfirþyrmandi að skipuleggja ferð til sólarlanda, enda úrvalið orðið ansi mikið. Fréttamaður ferðavefs mbl.is hefur tekið saman frábæra áfangastaði með beinu flugi sem gætu hentað þér, hvort sem þú ert að fara í fjölskyldufrí, rómantíska paraferð eða ferð með vinahópnum.
Ef þú ert að leita að rómantík og einstakri upplifun þá er Marrakesh hinn fullkomni staður. Borgin býður upp á töfrandi stemningu með litríkum mörkuðum, frábærum veitingastöðum og glæsilegum hótelum.
Röltið um sögufrægar götur Medínunnar, farið á matreiðslunámskeið og lærið að elda ekta marokkóskan mat, látið úlfalda labba með ykkur um eyðimerkurnar þarna í kring eða upplifið ævintýrið sem felst í loftbelgsflugi yfir borgina.
Stuttur flugtími og ógleymanleg upplifun í framandi umhverfi.
Ertu að skipuleggja skemmtilegt ferðalag með vinahópnum? Þá er Split frábær kostur. Þessi heillandi strandborg við Adríahaf býður upp á ríka sögu, spennandi næturlíf og glæsilegar strendur.
Fjölbreytt afþreying eins og hjólaferðir, snorkl, bátsferðir til nálægra eyja ásamt góðu úrvali af veitingastöðum og klúbbum við sjávarsíðuna tryggja að allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Hér færðu fullkomið jafnvægi milli afslöppunar og líflegs borgarlífs.
Tenerife er fullkomin eyja fyrir fjölskyldur sem vilja afslappað frí. Beint flug, án biðar eða millilendinga, hentar sérstaklega vel barnafjölskyldum.
Mörg hótel á eyjunni eru sérstaklega hönnuð með fjölskyldur í huga, þar sem finna má stórar sundlaugar, leiksvæði og dagskrá fyrir börnin.
Þá er nóg um afþreyingu á eyjunni; vassrennibrautagarðar, dýragarðar, gokart, sæþotur, buggy-ferðir um eyjuna og auðvitað afslappandi strendur.