Viltu sofa í gula húsinu á Sauðárkróki?

Gula húsið er krúttleg gisting á Sauðárkróki.
Gula húsið er krúttleg gisting á Sauðárkróki. Samsett mynd

Á Sauðár­króki er fal­legt gam­aldags hús í gul­um lit aug­lýst til skamm­tíma­leigu. Húsið rúm­ar sex gesti í þrem­ur svefn­her­bergj­um. 

Húsið er vel staðsett fyr­ir þá sem vilja njóta lífs­ins á Sauðár­króki og geta jafn­vel labbað á helstu veit­ingastaði bæj­ar­ins. Það er staðsett fyr­ir aft­an kirkj­una og steinsnar frá baka­rí­inu sem all­ir elska.

Húsið er inn­réttað í göml­um stíl sem gef­ur skemmti­lega til­finn­ingu fyr­ir ferðina. 

Húsgögnin eru gömul en passa vel inn í húsið.
Hús­gögn­in eru göm­ul en passa vel inn í húsið. Skjá­skot/​AirBnb
Munir eins og þessi vigt falla vel inn í umhverfið.
Mun­ir eins og þessi vigt falla vel inn í um­hverfið. Skjá­skot/​AirBnb
Hlýlegt svefnherbergi.
Hlý­legt svefn­her­bergi. Skjá­skot/​Airbnb
Þarna getur verið gott að sitja í góðu veðri.
Þarna get­ur verið gott að sitja í góðu veðri. Skjá­skot/​Airbnb
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert