„Ég skildi helminginn af hjartanu eftir úti“

Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, ásamt Katrínu Ösp Bjarnadóttur …
Viktor Sveinsson, sérfræðingur hjá Úrval Útsýn, ásamt Katrínu Ösp Bjarnadóttur í Banteay Srei-hofinu sem er hluti af rústum þess veldis sem við köllum í dag Angkor í Kambódíu. mbl.is/Aðsend

Það eru fáir lands­menn sem þekkja ferðalög um Asíu og Afr­íku líkt og Vikt­or Sveins­son sér­fræðing­ur hjá Úrval Útsýn, ger­ir en hann á veg og vanda af sex vönduðum sér­ferðum sem kynnt­ar verða á fimmtu­dag­inn næsta, þann 12. júní í Hlíðarsmára 14, sal Li­ons á Íslandi.

„Ég var rúm­lega tví­tug­ur þegar ég fór í mína fyrstu heims­reisu um Asíu og Afr­íku,“ seg­ir Vikt­or Sveins­son, sér­fræðing­ur hjá Úrval Útsýn, sem er vafa­laust einn helsti sér­fræðing­ur þjóðar­inn­ar þegar kem­ur að æv­in­týra­ferðum á fjar­læg­ar slóðir. „Þetta var árið 1987 og hafði ferðalagið mjög mik­il áhrif á mig. Þegar ég snéri heim skildi ég hálft hjarta mitt eft­ir á þess­um slóðum,“ seg­ir Vikt­or og út­skýr­ir að á þess­um tíma hafi ekki verið í neinn reynslu­banka að leita á Íslandi í ferðalög sem þessi og alls ekki um nein­ar skipu­lagðar ferðir að ræða en hann hafi lesið allt sem hann komst yfir um staðina í bók­um Lonely Pla­net.

„Þess vegna er ég svo spennt­ur fyr­ir kynn­ing­unni á fimmtu­dag­inn þar sem við mun­um fjalla um sex stór­ar sér­ferðir sem farn­ar verða á veg­um Úrval Útsýn á ár­inu. Þetta eru sann­kallaðar æv­in­týra­ferðir sem eru sér­sniðnar af mér og okk­ar teymi til að gera upp­lif­un í Asíu og Afr­íku þannig að ferðam­inn­ing­in mun lifa í hjörtu fólks um ókomna tíð. Líkt og hún gerði hjá mér á sín­um tíma.“   

Sansibar og safarí í Tansaníu er spennandi sérferð sem Úrval …
Sansi­b­ar og safarí í Tans­an­íu er spenn­andi sér­ferð sem Úrval Útsýn býður upp á í vet­ur. mbl.is/​Aðsend

All­ar ferðirn­ar spenn­andi á sinn hátt

Hvað get­ur þú sagt okk­ur um þess­ar ferðir?

„Ferðirn­ar sex eru: Grand Tour d´Ang­kor sem er hjóla­ferð um Kambódíu, Sansi­b­ar og safarí í Tans­an­íuÆvin­týra­ferð til Sri LankaHring­ferð um BaliLand­könn­un í Mexí­kó sem er æv­in­týra­ferð um Yucatánskag­ann og ferðalag til Má­ritíus sem er fjar­læg eyja í Ind­lands­hafi.

Það sem er ein­stakt við þess­ar ferðir er að við erum með mjög góða far­ar­stjóra sem fylgja ein­ung­is tólf til fimmtán ein­stak­ling­um eft­ir í hverri ferð. Það ger­ir þjón­ustu­stig ferðanna mjög hátt.“

Fegurðin í Máritíus er þannig að erfitt er að setja …
Feg­urðin í Má­ritíus er þannig að erfitt er að setja hana í orð en mynd­ir frá staðnum gefa fólki hug­mynd­ir um hvað má finna á eyj­unni fögru. Unsplash/​Dan Freem­an

Kambódía er engu öðru lík

Vikt­or nefn­ir Grand Tour d´Ang­kor ferðina í Kambódíu sem dæmi um vel heppnaða ferð. „Ég hef skipu­lagt hjóla­ferð um Kambódíu frá ár­inu 2007 í hinum ýmsu mynd­um en í þess­ari ferð er hjóla­ferðin full­komnuð. Við höf­um náð að lág­marka ferðalög í rút­um og flug­vél­um eins mikið og hægt er og bætt við af­skekkt­ari svæðum, meiri ná­lægð við sveit­irn­ar og mann­lífið.“

Kambódía er land í Suðaust­ur-Asíu með landa­mæri að Taílandi í vestri, Laos í norðri og Víet­nam í austri að sögn Vikt­ors og er saga lands­ins að hans mati al­veg hreint mögnuð.

„Þar hafa einnig verið byggð mann­virki sem ennþá hef­ur ekki náðst að toppa. Má þar nefna Ang­kor Wat-hofið sem er stærsta trú­ar­lega mann­virki í heim­in­um. Hofið er stærra en Pét­urs­kirkj­an í Róm og það er stærra en stærstu mosk­ur í heimi. En þess utan er fólkið í Kambódíu bara al­veg ein­stakt. Það er svo ein­lægt, þar rík­ir mikið traust og í sann­leika sagt, að mínu mati, geta mann­virki eða nátt­úr­an aldrei heillað mann jafn mikið og fólkið ger­ir á staðnum.

Bara það að horfa í augu fólks­ins og að smakka mat­inn þeirra, tala við þau og mynda tengsl er ein­stakt á stöðum á borð við Kambódíu.“

Ferðin til Kambódíu er far­in 6. nóv­em­ber næst­kom­andi og er for­vitni­legt að vita hvernig sá tími er veður­lega séð. „Það er besti tím­inn til að heim­sækja landið. Í Kambódíu er milt hita­beltis­veður og þar er alltaf heitt og rakt. Í nóv­em­ber er veðrið aðeins mild­ara en hit­inn á þess­um tíma árs­ins er í kring­um 25 gráður.“

Aðspurður um í hversu góðu formi maður þarf að vera fyr­ir hreyfi­ferð á borð við hjóla­ferðina til Kambódíu seg­ir Vikt­or að það sé í boði fyr­ir alla að vera á raf­magns­hjóli. „Ég hef oft notað þá skil­grein­ingu að fólk þurfi að vera frískt og með hug­ann í lagi. Svo er alltaf fylgd­ar­bif­reið sem fylg­ir hópn­um eft­ir sem fólk get­ur sest inn í til að taka sér pásu á miðjum degi.“

Grand Tour d´Angkor ferðin í Kambódíu er hin fullkomna hreyfiferð …
Grand Tour d´Ang­kor ferðin í Kambódíu er hin full­komna hreyfi­ferð að mati Vikt­ors. mbl.is/​Aðsend

Feg­urðin í Sansi­b­ar erfitt að koma í orð

Það sem er ein­stakt við skipu­lagðar ferðir á staði sem maður hef­ur ef til vill ekki komið til áður er að það er búið að varða leiðina að sögn Vikt­ors. „Það er búið að tryggja að allt sé ör­uggt á ferðalag­inu en við pöss­um okk­ur líka á að skilja eitt­hvað óvænt eft­ir. Því þó að við séum búin að varða leiðina og opna dyrn­ar þá vilj­um við ekki endi­lega halda í hönd­ina á fólki alla leið. Hluti af æv­in­týr­inu þegar maður er á annað borð kom­inn svo langt í burtu að heim­an er að fá trygga leiðsögn en svo viltu vera skil­inn eft­ir með eitt­hvað óvænt líka,“ seg­ir Vikt­or og út­skýr­ir að stund­um séu æv­in­týr­in fólg­in í þessu litla óvænta á ferðalag­inu.  

„Þegar þú ferð út í göngu­túr um kvöldið þegar hóp­ur­inn er far­inn að sofa og mæt­ir ein­hverju óvæntu, eða vakn­ar snemma og geng­ur um bæ­inn, þorpið eða sveit­ina. Þannig pöss­um við að alltaf sé rými fyr­ir að upp­lifa eitt­hvað einn í öll­um okk­ar skipu­lögðu ferðum.“

Sansi­b­ar og safarí í Tans­an­íu er annað magnað æv­in­týri að mati Vikt­ors. „Við byrj­um á að skoða og kynn­ast magnaðri sögu og heill­andi menn­ingu Stone Town sem er forn höfuðstaður Sansi­b­ar, svo er flogið til Tans­an­íu og farið í þriggja daga nátt­úru- og villi­dýra­safarí. Lokakafli ferðar­inn­ar eru svo ljúf­ir dag­ar á stönd í Sansi­b­ar þar sem feg­urðin er þannig að það er erfitt að koma henni í orð.“  

Fegurðin í náttúrunni er engu öðru lík. Þessi ljósmynd er …
Feg­urðin í nátt­úr­unni er engu öðru lík. Þessi ljós­mynd er tek­in í Sansi­b­ar. mbl.is/​Aðsend

„Ferðalög gefa okk­ur frelsi“  

Þegar Vikt­or tal­ar um ferðalög er eins og hug­ur hans fari á flug. „Já, það er satt. Ferðalög gefa mér svo margt. Þau gefa mér frí. Það að vera heima er magnað en þar er þröng­ur rammi. Heima er ör­yggi og tryggð en svo þarf maður að kom­ast út úr því. Ferðalög víkka ramm­ann þar sem við kynn­umst nýrri menn­ingu og nýju fólki. 

Svo er ég á því að ferðalög eigi ekki ein­göngu að vera fislétt og leik­andi. Á ferðalög­um á maður að mæta ein­hverju óvæntu og við eig­um að lenda í smá átök­um sem enda vel. Mér finnst einnig mjög mik­il­vægt að kom­ast úr kuld­an­um hér á Íslandi í annað um­hverfi, ekki síst á vet­urn­ar. Það fylg­ir því svo mikið frelsi að vera létt­klædd­ur og leyfa sól­inni að baka sig,“ seg­ir Vikt­or.   

Mögnuð mannvirki í miðri náttúruparadís er algeng sjón á ferðalögum …
Mögnuð mann­virki í miðri nátt­úrup­ara­dís er al­geng sjón á ferðalög­um í sér­ferðum Úrval Útsýn­ar. mbl.is/​Aðsend

Ævin­týr­in ger­ast í Mexí­kó

Land­könn­un í Mexí­kó, sem er æv­in­týra­ferð um Yucatánskag­ann, er ferð sem Ad­olf Jóns­son far­ar­stjóri hef­ur unnið með Úrval Útsýn til fjölda ára. „Ad­olf er snill­ing­ur í að leiða fólk í litl­um hóp­um. Ferðin hefst og end­ar í Playa del Car­men, strand­bæn­um við Karíbahaf, þaðan sem ekið er til Valla­dolid, Uxmal, Cam­peche og Mer­ida áður en snúið er aft­ur til stranda. Akst­ur hvern dag er ekki lengri en tvær til þrjár klukku­stund­ir svo ferðarykið er lítið en upp­lif­an­ir og rann­sókn­ir djúp­ar. Ad­olf hef­ur verið bú­sett­ur í Mexí­kó síðustu árin svo það er mjög fróðlegt og skemmti­legt að fara í ferðalag með hon­um á þess­ar slóðir.“

Strandsælan í Mexíkó er mögnuð að mati Viktors.
Strand­sæl­an í Mexí­kó er mögnuð að mati Vikt­ors. mbl.is/​Aðsend

Mæl­ir með hring­ferð um Balí

Þeir sem eru heillaðir af Balí geta valið að fara í stóru Balí-sér­ferðina á veg­um Úrval Útsýn sem Vikt­or seg­ir að sé engu öðru líkt. „Hring­ferð um Balí er land­könn­un á eyju sem er agn­arsmá en samt svo stór í huga margra Íslend­inga. Að fara í jóga og sól­ina á Balí er mjög nota­legt en ekki síst í þess­ari ferð sem er far­in baksviðs.“

Hringerð um Balí er einstök að mati Viktors en hann …
Hrin­gerð um Balí er ein­stök að mati Vikt­ors en hann seg­ir ferðina vera nota­lega en einnig mjög inni­halds­ríka. mbl.is/​Aðsend

„Við byrj­um á því að ferðast um eyj­una og kynn­ast mann­líf­inu og menn­ing­unni vel. Við för­um á svæði þar sem út­sýni er ein­stakt, skoðum fal­lega fossa og hof. Þess má geta að Balí er á stærð við Snæ­fellsnesið og Reykja­nesskag­ann þannig að það er hægt að ferðast um hana á stutt­um tíma. Dvalið er þrjár næt­ur í upp­hafi ferðar­inn­ar í strand­bæn­um Sanúr, síðan taka við sex næt­ur í fjalla­bæn­um Úbúd og að lok­um er dvalið þrjár næt­ur við strönd­ina á vest­ur­strönd­inni í Sem­inyak,“ seg­ir Vikt­or og bæt­ir við að ferðalang­ar fái allt sem Balí er þekkt fyr­ir í ferðinni; jóga, dek­ur, góðan mat, nudd og svo meira nudd og af­slöpp­un.

Þeir sem hafa komið til Balí segja eyjuna mjög einstaka.
Þeir sem hafa komið til Balí segja eyj­una mjög ein­staka. mbl.is/​Aðsend

Það sem vek­ur at­hygli við þessa ferð er hót­el­in sem gist er á. „Þetta eru ekki hót­el sem val­in eru í hót­el-leit­ar­vél­um held­ur eru það við sér­fræðing­arn­ir sem velj­um alltaf það besta á hverj­um stað. Við velj­um hót­el­in út frá gæðum og staðsetn­ingu og svo höf­um við ferðast mikið og prófað þetta allt sjálf.“

Það langar mörgum að upplifa eyjuna Balí undir tryggri handleiðslu …
Það lang­ar mörg­um að upp­lifa eyj­una Balí und­ir tryggri hand­leiðslu far­ar­stjóra en einnig að fá tæki­færi til að upp­lifa æv­in­týri sjálf­ur á eyj­unni. mbl.is/​Aðsend

„Það sem mér finnst skipta svo miklu máli í þessu sam­hengi er að ít­reka að gervi­greind­in get­ur aldrei valið fyr­ir okk­ur það sem fólkið á staðnum mæl­ir með, það vant­ar svo oft mann­lega þátt­inn í ferðalög í dag og við pöss­um okk­ur að hafa hann alltaf með.“

Hin fræga róla á Balí er eitthvað sem allir verða …
Hin fræga róla á Balí er eitt­hvað sem all­ir verða að prófa. En hvað er betra en að vera í góðu veðri úti í guðs grænni nátt­úr­unni að leika sér? mbl.is/​Aðsend

„Má­ritíus er para­dís á jörðu“

Vikt­or seg­ir að þegar kem­ur að nátt­úruperl­um þar sem um­hverfið er eins og í fal­legu mál­verki þá sé Má­ritíus eyj­an í Afr­íku al­gjör­lega málið. „Þessi litla eyja sem var frönsk ný­lenda hang­ir í miðju Ind­lands­haf­inu. Það eru því mjög sterk ind­versk áhrif á henni en það má finna sam­bland af allskon­ar menn­ingu á eyj­unni þar sem er magnaður mat­ur, hátt þjón­ustu­stig og í sann­leika sagt er þetta í mín­um huga lít­il para­dís. Sér­ferðin til Má­ritíus er aðeins öðru­vísi en hinar ferðirn­ar því dvalið er á sama hót­eli all­an tím­ann. Kristján Steins­son er far­ar­stjóri ferðar­inn­ar og er hann ein­stak­lega góður far­ar­stjóri með mikla reynslu. Flogið er út með Emira­tes-flug­fé­lag­inu svo æv­in­týr­in í þess­ari ferð byrja í háloft­un­um.“

Viktor segir að þegar kemur að náttúruperlum þar sem umhverfið …
Vikt­or seg­ir að þegar kem­ur að nátt­úruperl­um þar sem um­hverfið er eins og í fal­legu mál­verki þá sé Má­ritíus eyj­an í Afr­íku al­gjör­lega málið. mbl.is/​Unsplash

Sri Lanka þykir mik­il nátt­úrup­ara­dís

Ferðin til Sri Lanka er svo ann­ar gim­steinn að mati Vikt­ors þar sem nátt­úr­an er óviðjafn­an­leg og far­ar­stjór­inn líka. „Það er ein­stakt að hafa Vil­mund Han­sen far­ar­stjóra með í för þar sem nátt­úr­an er svo stór­brot­in og staður­inn er rómaður fyr­ir mikla sögu trú­ar­bragðal­ega séð. Þarna eru búdd­ist­ar fyrst og fremst og áhuga­vert að kynna sér þeirra trú­ar­brögð. Þarna sérðu tígr­is­dýr, bletta­tígra, fíla og buffalóa. Sri Lanka er eyja í Ind­lands­hafi og á þess­ari rúm­legu viku­ferð verða all­ir helstu staðir eyj­unn­ar heim­sótt­ir, svo sem Negom­bo, Sig­iriya, Nu­vara Eyliya og Yala-þjóðarður­inn, Kan­dy og fleiri staðir. Eft­ir átta næt­ur á ferðalagi verður svo komið að strand­ar­sæl­unni á Kalut­ara þar sem notið er fimm daga í sæl­unni og blíðunni.“

Að fylgjast með fílum og öðrum dýrum í sínu náttúrulega …
Að fylgj­ast með fíl­um og öðrum dýr­um í sínu nátt­úru­lega um­hverfi er áhuga­mál margra á ferðalög­um. mbl.is/​Aðsend

All­ir ættu að geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi

Hvaða ferð mæl­ir þú sér­stak­lega með?

„Ég segi stund­um að all­ar þess­ar ferðir séu eins og börn­in okk­ar og erfitt að gera upp á milli þeirra, en þær eru ólík­ar í eðli sínu og við sér­fræðing­arn­ir hjá Úrval Útsýn get­um verið frek­ar fljót að átta okk­ur á því hvað hent­ar hverj­um og ein­um best. Ég mæli bara með því að all­ir komi og hitti okk­ur á Ferðakynn­ing­unni á fimmtu­dag­inn. Það ættu all­ir að finna eitt­hvað við sitt hæfi enda ótrú­lega spenn­andi sér­ferðir í boði á þessu ári hjá ferðaskrif­stof­unni. Við sér­sníðum einnig ferðir fyr­ir fjöl­skyld­ur og hópa og tök­um vel á móti öll­um þeim sem lang­ar í æv­in­týri utan land­stein­anna,“ seg­ir Vikt­or Sveins­son, sér­fræðing­ur hjá Úrvali Útsýn, að lok­um.

Það er búið að tryggja að allt sé öruggt á …
Það er búið að tryggja að allt sé ör­uggt á ferðalag­inu, en passað er upp á að skilja eitt­hvað óvænt eft­ir líka. mbl.is/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert