Jökull og Telma ástfangin á Santorini

Jökull og Telma.
Jökull og Telma. Ljósmynd/Aðsend

Einkaþjálf­ar­inn og lög­fræðinem­inn Telma Fann­ey Magnús­dótt­ir og Jök­ull Júlí­us­son, söngv­ari hljóm­sveit­ar­inn­ar Kal­eo, nutu lífs­ins á grísku eyj­unni Santor­ini. Eyj­an þykir með ein­dæm­um róm­an­tísk og hef­ur verið vin­sæll áfangastaður á meðal para og nýgiftra. 

„Sjö sól­set­ur og offl­ine slök­un á Santor­ini,“ skrif­ar Telma við heill­andi mynd­skeið af þeim. Á mynd­skeiðinu má sjá þau gera ým­is­legt eins og að njóta lífs­ins í báts­ferð, borða kvöld­mat við sól­set­ur og slaka á í sólbaði. Gít­ar­inn var ekki langt und­an hjá Jökli sem nýtti hvert tæki­færi til að spila á hann, bæði á svöl­um hót­el­her­berg­is­ins eða á bát. 

Parið hef­ur verið dug­legt að ferðast síðustu ár og hef­ur meðal ann­ars heim­sótt áfangastaði eins og Sar­din­íu á Ítal­íu og Balí. Þau trú­lofuðu sig árið 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert