Erna Hrund Hermannsdóttir, svæðisstjóri Collab á Norðurlöndunum og förðunarfræðingur, segist skilja ást Íslendinga á spænsku eyjunni Tenerife. Hún varði þar nokkrum dögum í afslöppun og mun fara aftur.
„Fyrsta sinn á Tene! Ég skil hype-ið loksins, mun fara við fyrsta tækifæri aftur,“ skrifar hún á Instagram og birtir heila myndaseríu af fríinu.
Fríið var kærkomin hvíld eftir síðustu ár hjá Ernu sem hefur sinnt fullu starfi ásamt MBAnámi.
Tenerife er einn uppáhaldsáfangastaður Íslendinga og skal engan undra. Veðurfarið er gott allan ársins hring sem hentar sólarlausum vel.