Gistu í húsi Yves Saint Laurent í Marokkó

Tvær sundlaugar eru við hótelið.
Tvær sundlaugar eru við hótelið. Skjáskot/Villa Mabrouka

Hafn­ar­borg­in Tangier er staðsett í norðvest­ur­hluta Mar­okkó. Borg­in þykir held­ur ró­legri en Marra­kesh og það er lík­lega ástæðan fyr­ir því að fata­hönnuður­inn Yves Saint Laurent varði svo mikl­um tíma í dá­sam­legu húsi við sjó­inn í Tangier. Nú hef­ur hús­inu verið breytt í lítið tólf her­bergja hót­el. 

Hót­elið heit­ir Villa Ma­brouka sem má þýða sem Hús heppn­inn­ar. Húsið notuðu þeir Saint Laurent og lífs­föru­naut­ur hans, Pier­re Bergé, til að flýja streit­una sem fylgdi lífi þeirra í Par­ís. 

Breski hönnuður­inn Jasper Conrad gerði hót­elið upp með sjálf­an Saint Laurent í huga. Hót­elið er hið glæsi­leg­asta og feg­urð í öll­um horn­um. 

„Saint Laurent vildi að húsið myndi end­ur­spegla glæsi­leika æsku sinn­ar í Oran,“ sagði Conr­an í viðtali hjá ar­ab­íska Vogue. 

„Það er glæsi­legt í hrein­leika sín­um og ein­fald­leika. Þetta er ekki mar­okkósk höll held­ur miðjarðar­hafs­hús með blíðum blæ­brigðum Mar­okkó. Friðsæl stund á milli stríða.“

Saint Laurent fædd­ist í Oran í Al­ger­íu árið 1936. Hann heillaðist af Norður-Afr­íku aft­ur á full­orðins­ár­um og varð hug­fang­inn af lit­un­um og birt­unni. Mar­okkó varð hon­um stans­laus inn­blást­ur.

Fegurð hvert sem litið er.
Feg­urð hvert sem litið er. Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Markmiðið er að gestir nái hinni fullkomnu ró.
Mark­miðið er að gest­ir nái hinni full­komnu ró. Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Morgunmatur á besta stað?
Morg­un­mat­ur á besta stað? Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Hótelið hefur verið gert upp á glæsilegan máta.
Hót­elið hef­ur verið gert upp á glæsi­leg­an máta. Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Aðeins tólf herbergi eru á hótelinu.
Aðeins tólf her­bergi eru á hót­el­inu. Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Viltu sofa í gamla svefnherbergi Yves Saint Laurent og Pierre …
Viltu sofa í gamla svefn­her­bergi Yves Saint Laurent og Pier­re Bergé? Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
Önnur sundlaugin.
Önnur sund­laug­in. Skjá­skot/​Villa Ma­brouka
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert