Laufey með leynitónleika í Iðnó í kvöld

Laufey deildi myndskeiði af Gróttuvita í story á Instagram í …
Laufey deildi myndskeiði af Gróttuvita í story á Instagram í gærdag. Samsett mynd

Söng­kon­an, tón­skáldið og Grammy-verðlauna­haf­inn Lauf­ey Lín Bing Jóns­dótt­ir er nú stödd á Íslandi ef marka má nýj­ustu færslu henn­ar í story á In­sta­gram.

Lauf­ey deildi mynd­skeiði af Gróttu­vita á sam­fé­lags­miðlasíðunni í gær­dag og skrifaði: „Heima er best“.

Heim­ild­ir mbl.is herma að Lauf­ey muni stíga á svið á einka­tón­leik­um í Iðnó í kvöld. Tón­leik­arn­ir eru haldn­ir á veg­um Amazon Music for Songw­riters og verða tekn­ir upp í mynd fyr­ir þáttaröðina Songline. 

Lauf­ey hef­ur verið á ferð og flugi síðustu daga, vik­ur og mánuði og var stödd í New York-borg í byrj­un vik­unn­ar.

Söng­kon­an var á meðal gesta á Tony-verðlauna­hátíðinni sem fram fór í Radio City Music Hall á sunnu­dags­kvöldið og lét sig að sjálf­sögðu ekki vanta í teiti franska tísku­húss­ins Chanel í stóra epl­inu á mánu­dags­kvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert