Fanney spókar sig um í París

Fanney er hrifin af París, hver er það ekki?
Fanney er hrifin af París, hver er það ekki? Samsett mynd

Fann­ey Ingvars­dótt­ir, áhrifa­vald­ur og markaðsfull­trúi hjá BI­OEF­FECT, varði nokkr­um dög­um í róm­an­tísku borg­inni Par­ís á dög­un­um. Þar gekk hún um borg­ina, skoðaði sig um og borðaði góðan mat. Fann­ey ferðaðist með eig­in­manni sín­um, Teiti Páli Reyn­is­syni.

„Par­ís, ég elska þig,“ skrifaði Fann­ey við mynd­ir af sér á vin­sælli versl­un­ar­götu. 

Fann­ey er ófrísk af sínu þriðja barni og er von á því á haust­mánuðum. Fyr­ir á hún átta ára stúlku og fimm ára strák með Teiti. 

Par­ís­ar­ferðin hef­ur án efa verið full­kom­in slök­un­ar­ferð fyr­ir komu barns­ins.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert