Menton er lítill strandbær í Suður-Frakklandi og er bærinn þekktur sem „perla Frakklands.“ Það er mjög sniðugt að fara þangað í dagsferð ef flogið er til Nice í Frakklandi.
Menton er staðsettur á hinni stórkostlegu Côte d'Azur-strönd og er bærinn aðeins nokkrum mínútum frá landamærum Ítalíu. Sítrónugulur og pastellitir einkenna bæinn en Menton er þekktur fyrir sítrónuræktun.
Þar sem Menton er aðeins nokkrum mínútum frá landamærum Ítalíu tengir Menton saman ítalska sögu og franska menningu. Bærinn er frekar lítill og því tilvalinn sem dagsferð. Verðlagið er með því ódýrara sem finnst í Suður-Frakklandi.
Þrátt fyrir að bærinn sé ekki jafn vinsæll ferðamannastaður og Cannes og St. Tropez hefur bærinn mikla reynslu af ferðaþjónustu. Menton var einn af fyrstu ferðamannastöðum Frönsku rivíerunnar og laðaði að sér enska og rússneska aðalsmenn á síðari hluta 19. aldar.
Hægt er að taka strætó frá Nice fyrir 1,50 evrur og tekur um klukkustund að komast til Menton. Leiðin liggur í gegnum Mónakó og keyrir meðfram ströndum Frakklands. Það er því hægt að fara í útsýnisferð fyrir mjög lítinn pening!
Menton er rólegur, fallegur og fullkominn strandbær og býður bærinn upp á frábært veðurfar en yfir 300 sólardagar eru þar ár hvert.
Bærinn hefur lengi vel verið þekktur fyrir sítrónuræktun og því nauðsynlegt að smakka sítrónuafurðir ef farið er til Menton. Flestir veitingastaðir bjóða upp á rétti með sítrónu, hvort sem það er sítrónupasta, bragðgóðir eftirréttir eða drykki.
Bakaríið í Menton er rekið af stjörnukokkinum Mauro Colagreco en bakaríið er þekkt fyrir einstök brauð og sítrónubakkelsi.
Mauro Colagreco rekur einnig veitingastaðinn Mirazur í Menton en hann var nefndur besti veitingastaður heims árið 2019.
Auðvelt er að ganga um götur bæjarins en bleik, gul og appelsínugul er einkennandi.
Á toppi bæjarins er kirkjugarður gamla kastalans en hann var byggður á 13. öld. Skemmtilegt er að ganga að kirkjugarðinum þar sem hægt er að horfa yfir bæinn. Útsýnið er ekki af verri endanum og má finna fullt af sögulegum stöðum á leiðinni upp að krikjugarðinum.