„Að tilheyra samfélagi þar sem allir þekkja alla er dásamlegt“

Esther Ösp er dugleg að ferðast um landið með fjölskyldu …
Esther Ösp er dugleg að ferðast um landið með fjölskyldu sinni.

Esther Ösp Valdi­mars­dótt­ir vissi ekki við hverju hún ætti að bú­ast þegar hún flutti með manni sín­um, Ei­ríki Valdi­mars­syni þjóðfræðingi, og börn­um til Vest­fjarða, nán­ar til­tekið Hólma­vík­ur, fyr­ir rösk­um ára­tug.

Esther Ösp, sem er fædd og upp­al­in í Reykja­vík, hafði lítið farið út fyr­ir bæj­ar­mörk­in, ekki mikið lengra en Sel­foss, þegar þau hjón­in tóku þá stóru ákvörðun að pakka sam­an eig­um sín­um og hefja nýtt líf á Hólma­vík.

Lífið í þess­um litla, ró­lega og hríf­andi vest­firska smá­bæ hef­ur komið Esther Ösp og fjöl­skyldu henn­ar skemmti­lega á óvart en hún seg­ir að það að flytj­ast bú­ferl­um og víkka þar með sjón­deild­ar­hring­inn sé gott vega­nesti út í lífið.

Af hverju ákváðuð þið að flytja úr Reykja­vík?

„Já, ein­mitt, þegar stórt er spurt! Sko, í fyrstu leit ég á þetta sem hálf­gerða mann­fræðir­ann­sókn. Ég er menntaður mann­fræðing­ur og lagði stund á mann­fræði við Há­skóla Íslands og í gegn­um það nám set­ur maður upp gagn­rýn­in gler­augu og horf­ir á heim­inn öðrum aug­um.

Einn dag­inn þegar ég sat og horfði á frétt­irn­ar í mín­um höfuðborg­ar­hroka og fylgd­ist með fólki væla um lífið úti á landi tengdi ég lítið sem ekk­ert við það sem fólkið var að segja og varð fljót­lega for­vit­in um að upp­lifa þetta á eig­in skinni. Þannig gerðist það, svona í stuttu máli.“

Á föstudögum hittast konur á Hólmavík og fá sér eins …
Á föstu­dög­um hitt­ast kon­ur á Hólma­vík og fá sér eins og einn, tvo eða þrjá bjóra.

Heim­ur­inn stækkaði

Viss­irðu mikið um Hólma­vík?

„Nei, ég vissi lítið sem ekk­ert um þenn­an stað og hafði einu sinni keyrt þarna í gegn.“

Esther Ösp hafði búið sig und­ir að heim­ur­inn minnkaði þegar hún flytti til Hólma­vík­ur en það varð ekki raun­in.

„Já, þetta stækkaði heim­inn minn, það kom mér mjög svo á óvart. Ég átti ekki von á því. Þegar ég starfaði sem stunda­kenn­ari við Há­skóla Íslands um­gekkst ég bara fólk sem var á fé­lags­vís­inda­sviði og hugsaði eins og ég, en hér á Hólma­vík er ég í dag­leg­um sam­skipt­um við alls kon­ar fólk sem er með allt aðra sýn á heim­inn og hugs­ar hlut­ina út frá allt öðrum for­send­um en ég, það hef­ur gefið mér mjög mikið.“

Hvað er það besta við að búa í smá­bæ?

„Að til­heyra sam­fé­lagi þar sem all­ir þekkja alla er dá­sam­legt, það læt­ur mér líða vel. Svo er auðvitað ansi þægi­legt að hafa allt inn­an seil­ing­ar.“

Hvernig hafa börn­in aðlag­ast líf­inu á Hólma­vík?

„Eldri gaur­arn­ir okk­ar voru þriggja og sjö ára þegar við flutt­um á Hólma­vík og það tók þá enga stund að aðlag­ast líf­inu hér. Þetta var mjög mik­il­vægt og já­kvætt skref fyr­ir þá, held ég. Það er meiri sveigj­an­leiki í öllu og börn eru sjálf­stæðari.“

Lífið í þessum litla og rólega bæ kom á óvart.
Lífið í þess­um litla og ró­lega bæ kom á óvart.

Bjór eft­ir vinnu á föstu­dög­um

Er ríkt menn­ing­ar- og fé­lags­líf á Hólma­vík?

„Já, al­gjör­lega. Íbúar eru ansi dug­leg­ir að finna upp á ein­hverju skemmti­legu. Hér eru skemmti­leg söfn, góð sund­laug, kaffi­hús, bar, Þjóðfræðistofa, kirkju­kór og ansi öfl­ugt áhuga­manna­leik­hús.

Svo er skemmti­leg hefð hjá kon­un­um í bæn­um en þær hitt­ast alltaf á föstu­dög­um eft­ir vinnu og fá sér bjór á Kaffi Galdri og ræða um dag­inn og veg­inn; það er góð og já­kvæð leið til að enda vinnu­vik­una.“

Ef þú ætt­ir að lýsa Hólma­vík í fimm orðum, hvaða orð mynd­ir þú nota?

„Hmm, menn­ing, mar­ens, mann­líf, það er m-þema hjá mér,“ seg­ir hún og hlær. „Og jú, kannski ham­ingja og hörm­ung­ar, þar sem ham­ingju- og hörm­ung­ar­dag­ar voru stór hluti af líf­inu hér á Hólma­vík í mörg ár.“

Stórfjölskyldan.
Stór­fjöl­skyld­an.

Margt að sjá og upp­lifa

Er Hólma­vík vin­sæll áfangastaður meðal ferðafólks?

„Já, al­gjör­lega. Margt fólk ferðast hingað, þá sér­stak­lega yfir sum­ar­­tím­ann, en mik­ill fjöldi stopp­ar aðeins hluta úr degi. Ég myndi gjarn­an vilja sjá fólk stoppa leng­ur og njóta alls þess sem er í boði. Hér er margt að sjá og upp­lifa.“

Og svona í lok­in, hvað er ómiss­andi að gera á Hólma­vík og í kring?

„Galdra­sýn­ing­in er mjög vin­sæl og hef­ur lengi verið mikið aðdrátt­ar­afl, fjöl­marg­ir gera sér dags­ferð frá Reykja­vík til að kíkja á hana. Svo er alltaf gam­an að kíkja á Nátt­úru­barna­hátíðina á Strönd­um, Sauðfjár­setrið og Gald­ur Brugg­hús. En svo finnst mér Hólma­vík vera best til fall­in sem eins kon­ar miðstöð til að skoða allt sem er hér í kring, þá meðal ann­ars ­Djúpið, Drangs­nes, Kross­nes­laug og Kaldalón.

Það eru marg­ar nátt­úruperl­ur í kring­um okk­ur.“

Esther Ösp er alsæl með lífið úti á landi.
Esther Ösp er al­sæl með lífið úti á landi.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert