Plastið plokkað upp

Plast og annað rusl sem verður á veginum verður týnt …
Plast og annað rusl sem verður á veginum verður týnt upp í gönguferðinni. Ljósmynd/Wikimedia

„Fyrri hluti göng­unn­ar verður um mitt nesið en seinni hlut­inn ligg­ur meðfram sjáv­ar­síðunni og þá mun­um við gera okk­ar besta í að finna plast, setja í poka og taka með okk­ur,“ seg­ir Ein­ar Skúla­son, skipu­leggj­andi göng­unn­ar. Hann seg­ir gott að taka með rúm­góðan bak­poka svo það verði létt­ara að bera plastið, hver og einn komi svo plast­inu í plast­gáma. 

„Það er frá­bært að byrja laug­ar­dag­inn á léttri göngu á Geld­inga­nesi. Við för­um al­veg út að Helgukletti yst á nes­inu þar sem Helga Bárðardótt­ir renndi forðum fyr­ir fisk. Svo göng­um við meðfram sjáv­ar­síðunni til baka og náum von­andi að hreinsa upp það plast sem við sjá­um á leiðinni. Veður­spá­in er góð og all­ir eru vel­komn­ir.“

Hóp­ur­inn hitt­ist á bíla­stæði skammt frá aðstöðu kaj­akræðaranna og gengið verður af stað kl. 9.
Vega­lengd er 6-7 km, tak­mörkuð hækk­un er á leiðinni og má bú­ast við að gang­an taki rúm­lega tvo tíma.

Frek­ari upp­lýs­ing­ar um göng­una má finna hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert