Óttinn við ísbirni eykur hraðann

Gleðin skín úr andlitum keppenda.
Gleðin skín úr andlitum keppenda. Ljósmynd/Svalbard Skimaraton

Fáir ferðamenn heim­sækja eyj­arn­ar sér til skemmt­un­ar en öðru máli gegn­ir um vís­inda­menn sem marg­ir vilja ólm­ir sækja svæðið heim og rann­saka. Sval­b­arði er þekkt­ur í vís­inda­heim­in­um fyr­ir svo­kallaða Dóms­dags­hvelf­ingu en það er fræ­geymsla sem varðveit­ir um millj­ón plöntu­fræ frá öll­um heims­horn­um sem hugs­an­lega eru í hættu, meðal ann­ars vegna loft­lags­breyt­inga.

Fjöllin á Svalbarða eru heillandi.
Fjöll­in á Sval­b­arða eru heill­andi. Ljós­mynd/​Sval­b­ards skim­arat­on

Ef þess­ar upp­lýs­ing­ar um svæðið kveikja ekki í þér, kæri les­andi, þá gæti skíðagöngu­keppni á Sval­b­arða mögu­lega gert það. Í lok apríl er nefni­lega komið að ár­legu skíðagöngum­araþoni á stærstu eyj­unni Spits­ber­gen. Keppt er í heilu og hálfi maraþoni og er keppn­in opin ein­stak­ling­um frá 15 ára aldri. Litl­ar áhyggj­ur þarf að hafa af ís­björn­um af svæðinu, þó þeir myndu klár­lega auka hraðann á kepp­end­um létu þeir sjá sig, því víg­bún­ir verðir og þyrl­ur fylgj­ast vel með í kring­um braut­ina. Skrán­ingu í keppn­ina lýk­ur þann 25.apríl en all­ar frek­ari upp­lýs­ing­ar um keppn­ina má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert