Vinkonuferðir eru nauðsynlegar

Soffía segir vinkonuferðir nauðsynlegar
Soffía segir vinkonuferðir nauðsynlegar Ljósmynd/Aðsend

Hvert ferðaðist þú síðast?

„Ég var að koma heim úr vin­konu­ferð á Taílandi sem var al­gjör drauma­ferð.“

Hver var for­saga ferðalags­ins?

„Ég heillaðist af Taílandi þegar ég kom þangað fyr­ir fjöl­mörg­um árum. Ég er ný­bú­in að eiga af­mæli og fékk vin­kon­urn­ar með í smá af­mæl­is­ferð.“

Hvað voruð þið að gera?

„Við vor­um í 11 daga á ferðalagi, byrjuðum í Kra­bi á Suður-Taílandi. Við gist­um á ynd­is­legu hót­eli, Villa Thalan­ena í Thalan­ena Bay. Þaðan fór­um við á milli eyja í skoðun­ar­ferðir á taí­lensk­um svo­kölluðum long tail-bát­um eða spít­t­bát­um, fór­um í sjókaj­ak­ferð, snorkluðum o.fl., skoðuðum Railay Beach, Phi Phi-eyj­urn­ar, Bam­boo Is­land og Mon­key Is­land.

Frá Kra­bi flug­um við til Koh Samui þar sem við gist­um á Six Sens­es á norður­hluta eyj­unn­ar sem var al­gjör draum­ur. Hug­mynda­fræðin þeirra snýr að sjálf­bærni en þeir t.a.m. rækta mikið af matn­um sem er í boði á hót­el­inu.

Í ferðinni okk­ar byrjuðum við alla daga á jóga­tíma og þarna kynnt­umst við líka thai chi, qi gong og phran jóga. Við hjóluðum um eyj­una og fór­um út á sjókaj­ak og heim­sótt­um helstu búdda­mu­ster­in á eyj­unni og feng­um bless­un frá munk­um. Á leiðinni heim stoppuðum við í Bang­kok og nýtt­um tím­ann til að fara í sigl­ingu á ánni sem renn­ur um miðja borg­ina. Maður kynn­ist vel borg­inni á þenn­an hátt. Síðan var him­neskt að labba um Grand Palace og Wat Po, Wat Traim­it, en þar eru fjöl­mörg búddalíkn­eski sveipuð gulli og ger­sem­um.“

Soffía í góðra vinkvenna hópi
Soffía í góðra vin­kvenna hópi Ljós­mynd/​Aðsend

Er mik­il­vægt að taka sér tíma og ferðast með vin­kon­um?

„Al­gjör­lega nauðsyn­legt, svo nær­andi og óheyri­lega skemmti­legt að eiga svona stund­ir með vin­kon­um sín­um. Það er svo auðvelt að ferðast með vin­kon­un­um, auðvelt að plana og gera hluti, við þekkj­umst svo vel og eig­um sömu áhuga­mál.“

Hvað kom á óvart?

„Það sem kom mér á óvart var þessi gríðarlega nátt­úru­feg­urð á Suður-Taílandi og ég bjóst einnig við að sjá fleiri ferðamenn. Það var ánægju­legt að sjá að Taí­lend­ing­ar eru að sinna um­hverf­is­vernd í verki og eru ekki smeyk­ir við að loka strönd­um til að hlífa líf­ríki sjáv­ar.

Við sigld­um að Maya Beach sem er lokuð vegna ágangs ferðamanna í kjöl­far bíó­mynd­ar­inn­ar the Beach og feng­um að vita að há­karl­ar væru komn­ir á ný í fló­ann eft­ir lok­un strand­ar­inn­ar.“

Þú ert dug­leg að ferðast um landið gang­andi,

hvað get­ur þú sagt mér um það?

„Ég elska að ferðast um Ísland enda eitt fal­leg­asta land í heimi. Ég elska að vera á fjöll­um, gang­andi, hlaup­andi eða á skíðum. Það er ein­hver heil­un í því að vera á fjöll­um og ég fæ mikla orku á því að labba eða hlaupa á fjöll­um. Nú er ég að prófa vetr­ar­fjalla­mennsku líka, sem er mjög gam­an. Ég kynnt­ist göngu­skíðum fyr­ir um ári síðan á nám­skeiði hjá Hólm­fríði Völu á Ísaf­irði og féll al­veg fyr­ir sport­inu. Það er ynd­is­legt að fara einn hring á heiðinni í Bláfjöll­um í vetr­arstillu líkt og maður sé uppi á jökli. Ég er búin að skrá mig í Fossa­vatns­göng­una í maí þannig að það er eins gott að æfa sig.“

Hver er upp­á­halds borg­in þín?

„Ég hef bund­ist bönd­um við þær borg­ir sem ég hef búið í, þannig að Dublin, Par­ís og London eru alltaf í upp­á­haldi. Marra­kech og Oaxaca eru geggjaðar borg­ir og síðan finnst mér einnig Róm, Flórens og New York frá­bær­ar.“

Hvert er gam­an að fara með fjöl­skyld­una?

„Við erum búin að ferðast mikið sam­an og Ítal­ía og Frakk­land eru í upp­á­haldi. Við vor­um síðast á Cinque Ter­re-svæðinu og þar á und­an á Am­al­fi-skag­an­um en það er æðis­legt að vera þar með krakka. Auðvelt að fara út á kaj­ak eða snorkla með þeim og fara í skoðun­ar­ferðir. Við elsk­um líka öll að vera á skíðum og reyn­um að fara mikið í fjöll­in hér heima og í eina ferð er­lend­is ár­lega. Í vet­ur er ferðinni heitið til Madonna á Ítal­íu. Það skíðasvæði er mjög fjöl­skyldu­vænt.“

Fjölskyldan á skíðum
Fjöl­skyld­an á skíðum Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað elsk­ar þú mest að gera í þessu lífi?

„Ég elska að eiga stund­ir með fjöl­skyld­unni minni og vin­um og helst ut­an­dyra. Ég er með mikla hreyfiþörf og elska að vera úti í nátt­úr­unni að leika. Ég á stór­an vin­konu­hóp og það topp­ar fátt að vera með vin­kon­un­um uppi á fjöll­um. Ég elska einnig sjó­inn, að vera á kaj­ak, snorkla og kafa er al­gjör draum­ur. Ég er að reyna byggja upp þol fyr­ir kalda sjó­inn okk­ar.“

Hvað hef­ur þú lært með aldri og meiri þroska?

„Trú­lega meiri þol­in­mæði og að sinna sjálfri mér bet­ur og gera meira af því sem mér finnst skemmti­legt með skemmti­legu fólki. Það er ómet­an­legt að vera með skemmti­legu fóki sem gef­ur af sér og kanna að njóta lífs­ins. Enda á ég skemmti­leg­ustu vin­kon­ur í heimi.“

Hvert lang­ar þig næst að ferðast?

„Það eru marg­ir staðir á list­an­um og Asía og Afr­íka heilla mikið. Nepal er á óskalist­an­um. Mig lang­ar að labba upp að grunn­búðum Ev­erest og upp­lifa töfr­ana þar.“

Hvað keypt­ir þú þér í síðustu ferð?

„Ég keypti kím­onó-silk­isloppa, búdda­styttu, söng­skál frá Tíbet og taí-box bux­ur fyr­ir strák­ana mína.“

Hvernig nærðu að halda svona góðu jafn­vægi í líf­inu?

„Lyk­ill­inn að jafn­vægi er að sinna sér vel og sín­um áhuga­mál­um, á þann hátt færðu orku til að gefa og sinna þínum nán­ustu. Hug­ar­farið er svo mik­il­vægt. Að byrja dag­inn og ákveða að dag­ur­inn verði góður. Ég hef mikla trú á „self-fulf­ill­ing proph­ecy“, það get­ur virkað á báða vegu, já­kvætt og nei­kvætt. Þetta er nefni­lega svo­lítið mikið í þínum hönd­um, ham­ingj­an og jafn­vægið í líf­inu.“

Soffía fær kraft og orku úr náttúrunni
Soffía fær kraft og orku úr nátt­úr­unni Ljós­mynd/​Aðsend

Nú varstu bú­sett er­lend­is þegar þú varst ung, hvernig var það?

„Þegar maður hef­ur átt heima er­lend­is þá verður heim­ur­inn svo miklu minni sem er al­veg stór­kost­legt. Ég átti heima fyrst er­lend­is 17 ára, þá í Aust­in í Texas, og síðan flutt­ist ég til Par­ís­ar 19 ára og bjó í Los Ang­eles, var við störf í Saudi-Ar­ab­íu og námi í Dublin og London. Ég held að ég hafi þrosk­ast hratt við að búa ein er­lend­is. Það er svo nauðsyn­legt að kynn­ast ann­arri menn­ingu og hugs­un til að öðlast frek­ari skiln­ing á líf­inu og mann­fólk­inu. Við erum ólík en við erum samt svo ótrú­lega lík. Það sem ég hef lært af öll­um mín­um ferðalög­um um heim­inn er að fólk er upp til hópa ótrú­lega fal­legt og gott.“

Soffía seg­ir að mantr­an henn­ar sé að lifa í nú­inu. „Segja já við tæki­fær­um og skemmti­leg­um hlut­um. Það er ljóst að dag­ur­inn í dag er það sem skipt­ir máli og að njóta hans með mann­in­um mín­um, börn­um og vin­um er það besta í líf­inu.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert