Gyða fór í ferð drauma sinna til Taílands

Gyða Dröfn Sveinbjarnardóttir fór í fjögurra vikna ferð til Taílands …
Gyða Dröfn Sveinbjarnardóttir fór í fjögurra vikna ferð til Taílands núna í haust. Ljósmynd/Gyða Dröfn

Gyða Dröfn Svein­björns­dótt­ir, vörumerkja­stjóri hjá Danól, fór í heill­andi ferð til Taí­lands ásamt kær­asta sín­um fyrr í haust. Þau höfðu heim­sótt Taí­land fyr­ir nokkr­um árum en náðu bara tíu dög­um í land­inu á flakki sínu um suðaust­ur Asíu. Í þetta skiptið gáfu þau sér fjór­ar vik­ur til að kynn­ast land­inu enn bet­ur og stóðst það sann­ar­lega vænt­ing­ar þeirra. 

Gyða er dug­leg að deila ferðalög­um sín­um á In­sta­gram, @gyda­drofn.

Af hverju ákvaðstu að fara til Taí­lands?

„Ég og kærast­inn minn höfðum farið áður til Taí­lands árið 2019. Þá stoppuðum við bara í 10 daga og vor­um þá á ferð um fleiri lönd í suðaust­ur Asíu. Við urðum heilluð af land­inu og við viss­um alltaf að einn dag­inn mynd­um við koma aft­ur. Núna eft­ir heims­far­ald­ur vor­um við til­bú­in að fara aft­ur í lengra ferðalag, og hug­ur­inn leitaði aft­ur til suðaust­ur Asíu. Taí­land var ný­búið að opna allt hjá sér og slaka á flest­um regl­um varðandi covid, svo við slóg­um til og ákváðum að nýta tæki­færið og heim­sækja aft­ur þetta land sem við urðum svo heilluð af sein­ast!“

Gyða heillaðist af Taílandi þegar hún ferðaðist um landið fyrir …
Gyða heillaðist af Taílandi þegar hún ferðaðist um landið fyr­ir nokkr­um árum og ákvað nú að taka sér lengri tíma í að kynn­ast land­inu. Ljós­mynd/​Gyða Dröfn
Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvernig skipu­lagðir þú ferðina og var það mikið mál?

„Ég skipu­legg all­ar okk­ar ferðir sjálf, en það er eitt af mín­um helstu áhuga­mál­um! Ég elska að setj­ast niður og leita mér upp­lýs­inga um áfangastaði og upp­lif­an­ir á nýj­um stöðum. Ég eyði ansi mikl­um tíma í skipu­lagn­ingu fyr­ir svona ferðir en eins og ég segi er þetta eig­in­lega áhuga­mál, svo mér finnst það alls ekki mikið mál. En að skipu­leggja ferð til Taí­lands þarf alls ekki að vera mikið mál! Ferðamannaiðnaður­inn þar er mjög þróaður og mjög auðvelt að finna upp­lýs­ing­ar. Þegar maður kem­ur á staðinn er líka mjög auðvelt að finna ferðir og gist­ing­ar, það er nóg í boði og hægt að bóka flest með litl­um fyr­ir­vara. Svo það er alls ekki nauðsyn­legt að vera með allt skipu­lagt í þaula þó að við höf­um gert það.“

White Temple er einn fallegasti staður sem Gyða hefur komið …
White Temple er einn fal­leg­asti staður sem Gyða hef­ur komið til. Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvaða staða fórstu til?

„Við byrjuðum í norður Taílandi og gist­um í Chiang Mai. Þaðan heim­sótt­um við einnig Chiang Rai og skoðuðum White Temple, sem er einn fal­leg­asti staður sem ég hef komið til. Næst flug­um við svo til Bang­kok þar sem við eydd­um tveim dög­um. Við gist­um á Lebua hót­el­inu sem marg­ir kann­ast við úr Hango­ver 2 mynd­inni. Síðan lá leið okk­ar til eyj­unn­ar Koh Tao, sem er lít­il eyja í Taí­lands­flóa. Þar lærðum við að kafa og nut­um lífs­ins á þess­ari fal­legu eyju. Þaðan sil­gd­um við til Koh Samui sem er önn­ur tölu­vert stærri eyja í Taí­lands­flóa. Svo var komið að því að fara aft­ur á meg­in­landið, og þar héld­um við í þjóðgarðinn Khao Sok.

Gyða elskar að skipuleggja ferðalög.
Gyða elsk­ar að skipu­leggja ferðalög. Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Í Khao Sok gist­um við í húsi fljót­andi á Cheow Larn vatn­inu, sem var ótrú­leg upp­lif­un! Þaðan fór­um við svo til Khao Lak þar sem við slökuðum á áður en við héld­um til Phuket. Þar gist­um við á Kata beach. Næst fór­um við til Sam­et Nangs­he, þar sem maður hef­ur út­sýni yfir Phang Nga flóa. Næst heim­sótt­um við Phi Phi eyju, sem við heim­sótt­um einnig árið 2019 og urðum al­gjör­lega heilluð af! Þaðan fór­um við á eyj­una Koh Yao Yai í eina nótt og héld­um svo aft­ur á meg­in­landið til Ao Nang í Kra­bi. Að lok­um eydd­um við svo einni nótt í Bang­kok fyr­ir heim­för.“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Var eitt­hvað sem kom þér á óvart við staðina sem þú heim­sótt­ir?

„Nei í raun­inni ekki. Ég var búin að skoða mjög mikið af upp­lýs­ing­um fyr­ir ferðina svo það var ekki beint neitt sem kom á óvart.“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvað kost­ar svona ferð?

„Taí­land er áfangastaður sem get­ur verið mjög ódýr en svo get­ur hann al­veg verið dýr líka. Staðir inn­an Taí­lands eru mjög mis dýr­ir og það er hægt að velja sér áfangastaði inn­an lands­ins eft­ir því hvaða budget maður er með. Við vor­um í mánuð og sett­um okk­ur budget fyr­ir gist­ingu sem í okk­ar til­viki var 600.000 krón­ur. Við völd­um að gista alltaf á fjög­urra eða fimm stjörnu hót­el­um og þessi upp­hæð dugði fyr­ir því. En það væri mjög auðvelt að skera þessa upp­hæð tölu­vert mikið niður mjög auðveld­lega, til dæm­is voru tvö hót­el í fjór­ar næt­ur sem kostuðu 200.000 krón­ur svo um leið og við hefðum tekið ódýr­ari kost þar hefðum við náð upp­hæðinni niður.

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Það er það sem ég meina með að Taí­land get­ur bæti verið dýr og ódýr áfangastaður, en ég myndi segja að við hefðum verið í frek­ar dýr­um stöðum og dýr­um hót­el­um, svona miðað við hvað er í boði. Flugið fram og til baka kostaði okk­ur 150.000 krón­ur á mann, en við flug­um með Play til Kaup­manna­hafn­ar og þaðan með Thai Airways til Bang­kok. Sam­göng­ur inn­an­lands kostuðu um 100 - 150.000 fyr­ir tvo, en hafa skal í huga að við tók­um yf­ir­leitt alltaf fljót­leg­asta kost­inn, sem er oft­ast sá dýr­asti, en við vor­um á miklu flakki og vild­um nýta tím­ann vel. Uppi­hald kostaði senni­lega ná­lægt 700 - 800.000, en þar vor­um við einnig ekki að reyna að taka ódýr­asta kost­inn.

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Við fór­um á Michel­in staði og mikið af mjög fín­um veit­inga­stöðum, og gerðum einnig fullt af afþreyg­ingu. Til dæm­is tók­um við kafa­rétt­indi, fór­um í nokkr­ar skoðun­ar­ferðir, leigðum bíl­stjóra til að fara og skoða hina ýmsu staði, leigðum bát nokkr­um sinn­um, og skoðuðum allskon­ar eyj­ur. Svo í heild­ina kostaði ferðin í kring­um 1,7 millj­ón­ir króna fyr­ir tvo eða 850.000 á mann, en eins og áður sagði þá leyfðum við okk­ur mik­inn lúx­us og mikið af afþrey­ingu og það væri mjög auðvelt að ná kostnaðinum tölu­vert mikið niður.“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Er ein­hver staður sem stóð mest upp úr að þínu mati?

„Sam­et Nangs­he stóð mikið upp úr! Það var staður sem við tók­um pínu séns með, vor­um ekki búin að sjá mikið af upp­lýs­ing­um um hann, en svo var þetta einn stór­kost­leg­asti staður ferðar­inn­ar! Við gist­um á hót­eli sem var með út­sýni yfir Phang Nga fló­ann, og sáum sól­ina koma upp yfir fló­an­um sem var al­gjör­lega magnað.

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Fljót­andi húsið

Gyða gisti í fljótandi húsi á Cheow Larn-vatni.
Gyða gisti í fljót­andi húsi á Cheow Larn-vatni. Ljós­mynd/​Gyða Dröfn


í Khao Sok stóð líka mikið upp úr. Það var mjög öðru­vísi upp­lif­un og eitt­hvað sem ég mæli al­gjör­lega með að setja á “bucket list­ann”. Þar vor­um við í engu síma né net­sam­bandi, sem jók á upp­lif­un­ina og maður naut nátt­úr­unn­ar og tím­ans þar enn bet­ur. Við vor­um líka mjög hrif­in af Koh Tao sem er virki­lega sjarmer­andi lít­il eyja. Þar er hægt að sjá Koh Nang Yuan sem eru tvær litl­ar eyj­ur sem líta út eins og tvær skjald­bök­ur og eru tengd­ar sam­an með strand­lengju sem stend­ur upp úr sjón­um. Það er hægt að labba upp á hæsta tind annarr­ar eyj­unn­ar og sjá út­sýni yfir strand­lengj­una sem teng­ir eyj­urn­ar sam­an. Ótrú­lega fal­legt!“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Varðst þú fyr­ir von­brigðum með ein­hvern áfangastað?

„Við urðum fyr­ir von­brigðum með Koh Samui eyj­una. Kannski að hluta til vegna þess að það var eyja sem maður hafði heyrt mjög mikið um og við bjugg­umst við meiru þar. En eyj­an er það stór að það er eig­in­lega ekki eins og að vera á eyju, en við erum ótrú­lega hrif­in af litl­um eyj­um þar sem eru kannski bara göngu­göt­ur og allt af­slappaðra. Á eyj­unni var aðallega mikið af stór­um „resorts“ hót­el­um, en við erum meira fyr­ir að gista á minni stöðum. Um­hverfið á eyj­unni var samt sem áður mjög fal­legt, en Koh Samui var einn dýr­asti áfangastaður­inn sem við fór­um á svo við hefðum bú­ist við meiru þar.“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvar var besti mat­ur­inn?

„Chiang Mai stóð upp úr mat­ar­lega séð! Khao Soi er rétt­ur sem kem­ur frá norður Taílandi og fæst víða í Chiang Mai. Hann sam­an­stend­ur af bragðmik­illri og krem­kenndri curry núðlusúpu með kjúk­ling, sem er svo toppuð með stökk­um núðlum og bor­in fram með pikkluðu græn­meti, vor­lauk, lime bát­um, fiskisósu og syk­ur. Al­gjör veisla fyr­ir bragðlauk­ana og ég nýtti hvert tæki­færi í Chiang Mai til að fá mér þenn­an frá­bæra rétt! Mat­ar­menn­ing­in í Chiang Mai er líka frá­bær og mikið af æðis­leg­um veit­inga­stöðum þar. Svo er auðvitað um auðugan garð að gresja í Bang­kok líka og þar get­ur maður fengið Taí­lensk­an street food eins og hann ger­ist best­ur!“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvaða staði mæl­ir þú með að fólk heim­sæki?

„Í fyrsta lagi mæli ég ótrú­lega mikið fyr­ir alla að fara til Taí­lands yfir höfuð! Landið er kallað „Land of smi­les“ og stend­ur sann­ar­lega und­ir nafni. Fólkið er ein­stak­lega vina­legt og ynd­is­legt, og í þokka­bót er flest mjög aðgengi­legt og ein­falt þar sem ferðamannaiðnaður­inn er mjög þróaður eins og áður sagði. Nátt­úr­an er stór­brot­in og mat­ur­inn guðdóm­leg­ur, svo það er nóg í boði fyr­ir alla! Inn­an Taí­lands myndi ég mæla með að fara annaðhvort til Chiang Mai eða Chiang Rai í norður Taílandi, auðvitað Bang­kok, og svo á ein­hverja litla eyju eins og Koh Tao eða Phi Phi. Það er líka mjög mikið að sjá í annaðhvort Kra­bi og Phuket, og auðvelt að taka ferðir þaðan á minni eyj­ar. Svo að sjálf­sögðu mæli ég með heim­sókn til Sam­et Nangs­he, hvort sem það er dags­ferð frá Khao Lak eða Phuket, eða að gista þar eins og við gerðum. Að lok­um myndi ég mæla ein­dregið með Khao Sok þjóðgarðinum sem var ein­stök upp­lif­un!“

Ljós­mynd/​Gyða Dröfn

Hvert er besta ráðið við að skipu­leggja svona ferðir?

„Ég byrja yf­ir­leitt á Google, og gúggla “it­inerary” fyr­ir þann tíma sem ég ætla að eyða í land­inu. Til dæm­is „Thai­land 4 week it­inerary“ og byrja þar. Svo skoða ég gjarn­an staðsetn­ing­ar sem ég er að spá í að In­sta­gram, og les ferðablogg. Ég reyni yf­ir­leitt að leita mér að sem mest­um upp­lýs­ing­um og í dag er orðið svo auðvelt að leita sér að upp­lýs­ing­um ef maður nenn­ir að leggja smá vinnu í að leita að þeim. Svo er líka gott að hafa í huga að það þarf ekki alltaf að skipu­leggja allt, stund­um er bara skemmti­legt að kaupa sér flug­miða og láta svo ferðina ráðast þegar maður kem­ur á staðin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert