Tók óvænta u-beygju og flutti til San Francisco

Guðrún Jóna Gestsdóttir er búsett í San Francisco í Kaliforníu …
Guðrún Jóna Gestsdóttir er búsett í San Francisco í Kaliforníu ásamt kærasta sínum.

Guðrún Jóna Gests­dótt­ir tók óvænta u-beygju haustið 2018 þegar hún ákvað á síðustu stundu að flytja til San Francisco í Kali­forn­íu ásamt kær­asta sín­um, Fann­ari Frey Ómars­syni. Í kjöl­farið sótti hún um drauma­námið, en í lok des­em­ber út­skrifaðist hún með BA-gráðu í inn­an­hús­arki­tekt­úr og hönn­un frá The Aca­demy of Arts Uni­versity. 

Guðrún varð strax hug­fang­in af San Francisco, enda seg­ir hún fátt betra en að rölta um borg­ina og skoða öll fal­legu hverf­in, hús­in og um­hverfið í kring. „San Francisco er ein­stök borg og er í raun mjög evr­ópsk að mörgu leyti sem ég myndi segja að væri mjög já­kvætt. Hér er allt út í fal­leg­um görðum, góðum kaffi­hús­um og veit­inga­stöðum, en borg­in er alltaf full af lífi,“ seg­ir Guðrún. 

Guðrún segir San Francisco vera evrópska að mörgu leyti, en …
Guðrún seg­ir San Francisco vera evr­ópska að mörgu leyti, en hún varð strax yfir sig hrif­in af borg­inni.

„Í raun frek­ar mik­il skyndi­ákvörðun“

Guðrún og Fann­ar hafa verið bú­sett í San Francisco síðastliðin fjög­ur og hálft ár. „Þetta var í raun frek­ar mik­il skyndi­ákvörðun, en kærast­inn minn var á leiðinni hingað í nám á fót­bolta­styrk og ég ákvað á síðustu stundu að flytja út með hon­um. Ég sótti í kjöl­farið um nám, en það hafði lengi verið draum­ur hjá mér að flytja út og læra inn­an­hús­arki­tekt­úr,“ út­skýr­ir Guðrún. 

Guðrún og Fann­ar eru bú­sett í Nob Hill hverf­inu sem er miðsvæðis í borg­inni og að sögn Guðrún­ar í göngu­færi við flest allt. „San Francisco er mjög góð borg, en þrátt fyr­ir að vera stór­borg get ég labbað nán­ast hvert sem ég fer. Brekk­urn­ar geta hins veg­ar stund­um verið svo­lítið bratt­ar og erfiðar, en þá er mjög auðvelt að taka strætó eða panta Úber fyr­ir lengri vega­lengd­ir,“ seg­ir Guðrún. 

Útsýnið er ekki af verri endanum.
Útsýnið er ekki af verri end­an­um.

Fjöl­breyti­leik­inn heill­andi

„Skól­inn er ekki beint þessi hefðbundni há­skóli með eitt há­skóla­svæði held­ur er hann í raun­inni dreifður út um alla borg­ina. Arki­tekt­úrs­bygg­ing­in er staðsett aðeins í burtu frá íbúðinni okk­ar, en skól­inn er með skóla­strætó sem er mjög þægi­legt að nota til að kom­ast til og frá skóla, sem og á milli bygg­inga,“ bæt­ir hún við. Meðfram nám­inu starfaði Guðrún sem hönn­un­ar­nemi hjá IA In­ter­i­or Architects. 

Hvernig var há­skóla­sam­fé­lagið í skól­an­um?

„Há­skóla­lífið var aðeins frá­brugðið þess­um hefðbundnu am­er­ísku há­skól­um þar sem það er ekki sér­stakt há­skóla­svæði (e. camp­us) sem breyt­ist dína­mík­inni svo­lítið. Ég á mjög góða vini úr minni deild í skól­an­um sem ég hef kynnst í gegn­um árin, en ég var líka að vinna í skóla­mötu­neyt­inu með skól­an­um fyrstu árin mín hér og þá kynnt­ist ég mikið af fólki úr öðrum deild­um.“

Guðrún með verkefni sitt úr skólanum á sýningu vorið 2022.
Guðrún með verk­efni sitt úr skól­an­um á sýn­ingu vorið 2022.

„Eitt af því sem ég elska mest við þenn­an skóla og í raun­inni bara við borg­ina sjálfa er hvað það er mik­ill fjöl­breyti­leiki. Maður fær að kynn­ast fólki frá mis­mun­andi lönd­um, bak­grunn og menn­ingu, sem mér finnst vera svo ótrú­lega mik­il­vægt og þrosk­andi enda get­ur maður lært svo margt af öll­um sem maður kynn­ist. The Aca­demy of Art er líka mik­ill Íslend­inga­skóli, en mjög marg­ir hafa komið hingað í nám á fót­bolta­styrk í gegn­um árin og marg­ir sem fá vinnu og búa hér áfram að námi loknu.“ 

„Við erum þess vegna með mjög gott og náið Íslend­inga­sam­fé­lag hérna í San Francisco sem ég er svo ótrú­lega þakk­lát fyr­ir. Þau eru svona „my family away from home“ og hafa gert upp­lif­un­ina mína hér úti svo marg­falt betri.“

Guðrún ásamt vinkonu sinni, Katrínu, með Golden Gate-brúna í bakgrunn.
Guðrún ásamt vin­konu sinni, Katrínu, með Gold­en Gate-brúna í bak­grunn.

Hvernig var hefðbund­inn dag­ur í þínu lífi í skól­an­um?

„Þá daga sem ég var ekki að vinna var ég mjög upp­tek­in í skól­an­um og við lær­dóm. All­ir tím­arn­ir síðustu önn­ina voru til að mynda á net­inu svo það var svo­lítið und­ir mér sjálfri komið að passa upp á skipu­lagið og sinna nám­inu. Um helg­ar reyndi ég svo að gera eitt­hvað skemmti­legt með vin­um mín­um, kíkja í garða eða á strönd­ina ef veðrið var gott til að brjóta aðeins upp vik­una sem var oft­ast mjög þétt set­in og ekki mik­ill frí­tími.“

Á síðustu önninni voru allir tímar á netinu, svo Guðrún …
Á síðustu önn­inni voru all­ir tím­ar á net­inu, svo Guðrún þurfti að passa vel upp á skipu­lagið.

Hvað ger­ir þú þér til skemmt­un­ar í borg­inni?

„Það er alltaf nóg að gera í San Francisco, en mér finnst ótrú­lega gam­an að rölta um borg­ina, skoða nýja staði og borða góðan mat. Þegar það er gott veður þá elska ég að fara á strönd­ina eða í garðinn með vin­um mín­um, fá okk­ur nokkra drykki og njóta í sól­inni.“

„Sausalito er lít­ill fal­leg­ur bær hinum meg­in við Gold­en Gate-brúna sem er í miklu upp­á­haldi hjá mér, en það er ótrú­lega gam­an að gera sér smá dags­ferð og hjóla þangað yfir. Þar finnst mér æðilegt að rölta meðfram bryggj­unni, dást að út­sýn­inu og setj­ast niður á Bar Bocca í pítsu og drykk við strönd­ina, og taka svo ferj­una til baka til San Francisco.“

Guðrún ásamt vinkonu sinni á ströndinni.
Guðrún ásamt vin­konu sinni á strönd­inni.

Er eitt­hvað sem kom þér á óvart þegar þú flutt­ir út?

„Ég hafði í raun ekki gert mér mikl­ar vænt­ing­ar og vissi ekki al­veg við hverju ég ætti að bú­ast áður en ég flutti út þar sem þetta var frek­ar mik­il skyndi­ákvörðun og allt gerðist voða hratt.“

„Allt Visa ferlið var hins veg­ar frek­ar stress­andi og krefj­andi, en Am­er­íka er ekki beint að gera það auðvelt fyr­ir fólk að flytja hingað úr. Leigu­verðið í San Francisco er líka mjög hátt svo það var smá sjokk svona fyrst, en ég var hepp­in að Fann­ar fór á und­an mér út og var þá bú­inn að finna fyr­ir okk­ur stúd­íó íbúð á fín­um díl áður en ég kom út, svo ég þurfti ekki mikið að stúss­ast í því.“

Notalegt á ströndinni.
Nota­legt á strönd­inni.

Hvað er ómiss­andi að sjá og gera í San Frans­isco?

„Fyrst og fremst er það auðvitað Gold­en Gate-brú­in, og ég mæli sér­stak­lega með að hjóla yfir hana til Sua­salito. Það er líka ótrú­lega gam­an að keyra yfir til Napa Valley eða Sonoma í víns­mökk­un. Svo mæli ég bara með því að rölta um borg­ina, kíkja í Mar­ina, North Beach og Hayes Valley fyr­ir góða veit­ingastaði og geggjaða stemn­ingu. Pacific Heig­hts er ómiss­andi fyr­ir fal­leg­ar arki­tekt­úr, en þar er meðal ann­ars Palace of Fine Arts sem er ótrú­lega fal­legt og ómiss­andi að sjá að mínu mati.“

Hvernig er drauma­dag­ur í borg­inni?

„Minn drauma­dag­ur í borg­inni væri að vakna snemma og labba með vin­um mín­um á strönd­ina á heit­um og sól­rík­um degi, og eyða deg­in­um þar með nóg af góðum mat og drykkj­um þar til sól­in sest. Eft­ir sól­set­ur væri svo ljúft að rölta á góðan veit­ingastað, borða og njóta þar, og enda dag­inn svo á smá stemn­ingu á góðum bar eða horfa á góða bíó­mynd heima og hafa það kósí.“

Guðrún og Fannar ásamt íslenskum vinum sínum í San Fransisco.
Guðrún og Fann­ar ásamt ís­lensk­um vin­um sín­um í San Frans­isco.

Áttu þér upp­á­haldsveit­ingastað í borg­inni?

„San Francisco er með ótrú­lega mikið af góðum veit­inga­stöðum út um alla borg og alltaf nóg af nýj­um stöðum til að prófa. Mín­ir upp­á­haldsveit­ingastaðir í augna­blik­inu eru Gusto Pinsa Rom­ana, Roma Anitca, Tac­ko, Ryo­ko's og Okoze Sus­hi.“

Hvar er best að versla?

„Uni­on Square og þar í kring er svona aðal versl­un­ar­svæðið með þess­um týpísku vin­sælu búðum. Svo er mjög gam­an að rölta Filmore Street, Uni­on Street og Chestnut Street, en þar er meira um minni búðir í bland við veit­ingastaði.“

„San Francisco er líka þekkt fyr­ir góðar „thrift“ búðir og það er al­veg nóg af þeim, til dæm­is í Haig­ht-Ashbury og Nort­h­beach.“

Falleg mynd af borginni.
Fal­leg mynd af borg­inni.

Eru ein­hverj­ar „túrista­gildr­ur“ sem fólk ætti að var­ast?

„Það eru ekki beint nein­ar túrista­gildr­ur held ég, en ég myndi segja að Pier 39 og Fis­her­man's Wh­ar­df séu mikl­ir túrist­astaðir og frek­ar mikið of­metn­ir að mínu mati.“

Hef­ur þú ferðast eitt­hvað um Kali­forn­íu?

„Ég hef því miður ekki ferðast nógu mikið um Kali­forn­íu, en planið er að gera meira af því núna þegar ég er út­skrifuð og byrjuð að vinna. Hingað til er það helsta Napa Valley og Sonoma, sem eru þekkt fyr­ir vín­ekr­ur og mjög gam­an að kíkja þangað í víns­mökk­un, en svo er líka ótrú­lega fal­legt um­hverfi þar í kring.“

Guðrún er spennt yfir komandi ferðalögum um Kaliforníu.
Guðrún er spennt yfir kom­andi ferðalög­um um Kali­forn­íu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert