Hermann hefur heimsótt allar heimsálfurnar

Hermann Helguson hefur heimsótt heimsálfurnar sjö og lent í ýmsum …
Hermann Helguson hefur heimsótt heimsálfurnar sjö og lent í ýmsum ævintýrum á ferðalögum sínum. Ljósmynd/Hermann Helguson

Her­mann Helgu­son er mik­ill æv­in­týramaður sem hef­ur alla tíð haft mik­inn áhuga á ferðalög­um. Hann hef­ur ferðast víða, heim­sótt all­ar heims­álf­urn­ar sjö og er núna stadd­ur á átta mánaða ferðalagi um heim­inn ásamt kær­ustu sinni og hafa þau eytt síðustu vik­um á Indlandi. Planið er meðal ann­ars að ferðast um suður og suðaust­ur Asíu og halda svo þaðan til Eyja­álfu í árs­byrj­un 2024.

Þegar Her­mann er ekki á flakki um heim­inn er hann bú­sett­ur í Reykja­vík, en hann er menntaður ferðamála­fræðing­ur og leiðsögumaður og eyðir mikl­um tíma um borð á skip­inu MS Sea­vent­ure þar sem hann starfar sem leiðang­urs­stjóri á sigl­ingu í kring­um Ísland og til Græn­lands.

Hermann er menntaður ferðamálafræðingur og leiðsögumaður.
Her­mann er menntaður ferðamála­fræðing­ur og leiðsögumaður. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hef­ur þú alltaf haft áhuga á ferðalög­um?

„Já ég hef alltaf haft mik­inn áhuga á ferðalög­um, bæði á Íslandi og í út­lönd­um, al­veg frá því ég var barn. Fjöl­skyld­an mín flutti út til Þýska­lands þegar ég var 9 ára og fannst mér æðis­legt að kynn­ast ann­arri menn­ingu og heim­sækja nær­liggj­andi lönd. Árið 2011, eft­ir að ég út­skrifaðist úr mennta­skóla, fór ég svo í mitt fyrsta bak­poka­ferðalag til Ástr­al­íu og stóð yfir í þrjá mánuði. Þar var ég einn á ferð sem var rosa­lega gam­an!“

En ljós­mynd­un?

„Áhugi minn á ljós­mynd­un kviknaði af mik­illi al­vöru árið 2015. Þá var ég að vinna sem leiðsögumaður um borð í leiðang­urs­skipi sem er í raun lítið skemmti­ferðaskip og var með mína fyrstu mynda­vél meðferðis, Canon 500D. Þá langaði mig svo mikið til þess að sýna vin­um og ætt­ingj­um heima það sem ég var að upp­lifa og besta leiðin til þess fannst mér að taka mynd­ir og deila þeim til þeirra. Í kjöl­farið fór ég að taka mynd­ir reglu­lega og varð hægt og ró­lega betri í ljós­mynd­un.“

Áhugi Hermanns á ljósmyndum kviknaði á ferðalögum hans.
Áhugi Her­manns á ljós­mynd­um kviknaði á ferðalög­um hans. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Nú hef­ur þú heim­sótt heims­álf­urn­ar sjö – hvaða heims­álfa stóð upp úr og af hverju?

„All­ar eru ein­stak­ar á sinn hátt, en ég verð að segja að Suður­skautslandið stóð upp úr. Ástæðan fyr­ir því er sú að heims­álf­an hef­ur að miklu leyti verið vernduð í tölu­vert lang­an tíma og þar af leiðandi hef­ur dýra­líf og nátt­úra fengið að dafna. Það er magnað að dýr­in þarna eru lítið sem ekk­ert hrædd við mann­fólk, enda staf­ar eng­in hætta af okk­ur gagn­vart þeim. Þess vegna koma dýr­in oft mjög ná­lægt manni og eru for­vit­in. Svo má ekki gleyma lands­lag­inu þarna sem er nán­ast allt þakið ís og er und­urfag­urt.“

Hvernig upp­lif­un var að heim­sækja Suður­skautslandið?

„Það var ótrú­leg upp­lif­un að heim­sækja Suður­skautslandið. Ég gleymi því aldrei þegar ég steig í fyrsta skipti á land í heims­álf­unni á eyju sem heit­ir Barrientos Is­land. Það voru fjór­ar mis­mun­andi teg­und­ir af mörgæs­um í þúsunda­tali ásamt fíla­sel­um sem voru að hvíla sig á strönd­inni. Ég vissi ekki hvert ég átti að horfa eða hverju ég ætti að taka mynd­ir af – það var eitt­hvað að sjá alls staðar. Suður­skautið er jafn­framt ein­stakt á all­an hátt og maður kemst svo rosa­lega ná­lægt öllu dýra­lífi og nátt­úr­unni þar. Veðrið er líka óút­reikn­an­legt líkt og heima á Íslandi.“

Hermann segir dýralífið á Suðurskautslandinu magnað.
Her­mann seg­ir dýra­lífið á Suður­skautsland­inu magnað. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hvaða lönd hafa staðið upp úr?

„Ef ég ætti að nefna þrjú lönd eða staði sem hafa staðir upp úr þá myndi ég segja suður Georgía, Víet­nam og Græn­land. Ég á þó enn eft­ir að heim­sækja mörg lönd á næst­unni og því gæti svarið breyst!

Efst á list­an­um trón­ir samt suður Georgía. Ég er nokkuð viss um að það sé eng­inn staður í heim­in­um þar sem maður sér jafn mikið dýra­líf á jafn litlu svæði. Kónga­mörgæs­ir í hundruði þúsunda tali og hundruðir sela liggj­andi á strönd­un­um, ásamt miklu fugla­lífi. Hef ekki séð neitt þessu líkt ann­arsstaðar.“

Ótrúlegt sjónarspil á ferðalagi Hermanns.
Ótrú­legt sjón­arspil á ferðalagi Her­manns. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hvert er eft­ir­minni­leg­asta ferðalagið þitt?

„Senni­lega þegar ég fór einn til Kúbu árið 2016. Ég man að það sum­ar var ég að vinna nán­ast hvern ein­asta dag sem leiðsögumaður hér á Íslandi og einn dag­inn þegar ég var þreytt­ur eft­ir vinnu tók ég skyndi­ákvörðun og bókaði „one way ticket“ til Kúbu. Þegar ég kom til Kúbu fékk ég al­vöru menn­ing­ar­sjokk, enda gisti ég í  Hav­ana í íbúðarblokk sem var í al­gjörri niðurníðslu og þegar ég fór út fyrsta dag­inn var eins og ég hefði farið 50 ár aft­ur í tím­ann. Kúbverj­ar eru líka rosa­lega gott og al­menni­legt fólk sem gerði upp­lif­un­ina enn skemmti­legri. Svo má ekki gleyma romm­inu og vindl­un­um!“

Besti mat­ur sem þú hef­ur fengið á ferðalagi?

„Ég hef nokkr­um sinn­um fengið hrika­lega gott Pad Thai í Taílandi. Það er fátt sem topp­ar það! Svo fékk bestu pizzu sem ég hef smakkað í Hanoi í Víet­nam – ótrú­legt, en satt!“

Hermann hefur gott auga fyrir ljósmyndun.
Her­mann hef­ur gott auga fyr­ir ljós­mynd­un. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hef­ur þú lent í ein­hverju hættu­legu á ferðalög­um þínum?

„Já, ég var að sigla slöngu­bát á Sval­b­arða í grennd við rost­unga­hjörð. Það voru senni­lega tvö hundruð rost­ung­ar á strönd­inni að hvíla sig þar sem við vor­um og senni­lega í kring­um 20 að synda í sjón­um. Yf­ir­leitt er rost­ung­um nokk­urn veg­inn sama þegar við erum að sigla bát­un­um ná­lægt þeim, nema þegar urta er með kóp, en ekki í þetta skipti.

Þegar ég er að stýra bátn­um sé ég rost­ung nálg­ast mig hratt, sem lyft­ir svo hausn­um upp úr vatn­inu og sting­ur með tönn­un­um í bát­inn. Svo end­ur­tek­ur hann sama leik­inn aft­ur. Ég náði sem bet­ur fer að bregðast fljótt við og koma mér í burtu. Ann­ars hefði getað farið mjög illa enda geta full­vaxta karl­kyns rost­ung­ar náð allt að tveggja tonna þyngd.“

Hermann lenti í ótrúlegu atviki á siglingu á Svalbarða.
Her­mann lenti í ótrú­legu at­viki á sigl­ingu á Sval­b­arða. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hvernig ferðalög­um ert þú hrifn­ast­ur af?

„Mér finnst skemmti­leg­ast að skoða lands­lag og fara í göng­ur, ásamt því að taka mynd­ir á meðan. Aft­ur á móti þegar ég er í svona löngu ferðalagi eins og núna þá finnst mér líka skemmti­legt að tala við íbú­ana og kafa aðeins dýpra í menn­ing­una þannig. Ég skoða líka al­veg hina hefðbundnu túrist­astaði á hverj­um stað en þó ekki alla. Mér finnst maður verði að passa sig að ferðalagið eigi ekki að vera ein­hver tékklisti því þá hætt­ir maður að njóta.

Jafn­framt finnst mér oft áhuga­vert að vera þar sem það eru færri ferðamenn vegna þess að þar sem það eru fleiri ferðamenn er oft búið að búa til öðru­vísi um­gjörð sem er sniðin að ferðamann­in­um. Þannig upp­lif­ir maður ekki staðina eins vel og hægt væri. Svo er líka alltaf gam­an að prófa staðbund­inn mat.“

Það er margt sem heillar Hermann við ferðalög.
Það er margt sem heill­ar Her­mann við ferðalög. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hverj­ir eru upp­á­haldsstaðirn­ir þínir á Íslandi?

„Þetta er mjög erfið spurn­ing því ég á svo marga, en eft­ir mikla um­hugs­un ætla ég að segja eft­ir­far­andi: Friðland að Fjalla­baki eins og það legg­ur sig, bú­staður fjöl­skyld­unn­ar rétt hjá Hellu og svo Árnes­hrepp­ur á Strönd­um.“

Hvað get­ur þú sagt mér um ferðalagið sem þú ert á núna?

„Við erum núna á átta mánaða ferðalagi sem byrjaði 14. sept­em­ber síðastliðinn. Við erum búin að vera á Indlandi fyrstu vik­urn­ar og för­um svo til Nepal seinnipart­inn í októ­ber. Það góða við ferðina okk­ar að við erum ekki búin að plana meira en þetta. Við vilj­um vera sveigj­an­leg og breyta til ef okk­ur líst vel á eitt­hvað og hætta við annað ef það pass­ar ekki. En þó er gróft plan að halda áfram að ferðast um suður og suðaust­ur Asíu í októ­ber, nóv­em­ber og des­em­ber og halda svo til Eyja­álfu í janú­ar og fe­brú­ar. Rest­in er svo al­veg óráðin.“

Hermann og kærasta hans eru á átta mánaða ferðalagi um …
Her­mann og kær­asta hans eru á átta mánaða ferðalagi um heim­inn. Ljós­mynd/​Her­mann Helgu­son

Hvað hef­ur staðið upp úr?

„Ég heim­sótti fá­tækra­hverfi í borg­inni Jaip­ur og það var hrika­legt að sjá aðbúnað fólks­ins og hvernig það býr. Þar eru eng­ar skólplagn­ir þannig fólk þarf að gera þarf­ir sín­ar í kamra rétt hjá, for­eldr­ar hafa ekki efni á að senda börn­in sín í skóla, hús­in þeirra leka þegar rign­ir, mikið rusl á svæðinu og fólk hef­ur ekki efni á lækn­isþjón­ustu. Þetta er vissu­lega ekki beint já­kvæð upp­lif­un en það var magnað að fá inn­sýn inn í þenn­an heim og tala við fólkið. Ég út­bjó ein­mitt mynd­band um þessa heim­sókn og setti á YouTu­be fyr­ir þá sem hafa áhuga á að horfa.“

Hvað hef­ur komið þér mest á óvart?

„Það sem hef­ur komið mest á óvart hingað til er hversu rosa­lega fjöl­breytt Ind­land er menn­ing­ar­lega séð. Ég vissi svo sem að menn­ing­in væri fjöl­breytt áður en ég kom en ekki svona rosa­lega.“

Hvaða ferðalög eru framund­an hjá þér?

„Eft­ir þessa átta mánaða reisu verður maður víst að fara að vinna aft­ur og safna pen­ing, en ég vinn við að ferðast, sem er gott! Þá hefjast aft­ur sigl­ing­ar um­hverf­is Ísland og til Græn­lands með fyr­ir­tæk­inu Ice­land ProCruises. Ég reyni ef­laust að ferðast eitt­hvað um Ísland næsta sum­ar. Svo veit maður aldrei hvað ger­ist í haust!“

Hvar er hægt að fylgj­ast með ferðalag­inu ykk­ar?

„Við setj­um reglu­lega inn mynd­skeið, svo­kölluð Vlog, á Youtu­be-rás und­ir nafn­inu mínu og svo erum við líka dug­leg að setja inn mynd­ir á In­sta­gram.“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Her­mann Helgu­son (@hemmi90)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert