Minimalísk og notaleg jólastemning hjá Anítu í Köben

Aníta Mjöll Ægisdóttir er mikill fagurkeri og hefur skreytt heimili …
Aníta Mjöll Ægisdóttir er mikill fagurkeri og hefur skreytt heimili sitt í Kaupmannahöfn á fallegan máta fyrir jólin. Samsett mynd

Fag­ur­ker­inn Aníta Mjöll Ægis­dótt­ir er bú­sett í Kaup­manna­höfn ásamt kær­asta sín­um, Davíð Guðjóns­syni, og syni þeirra, Matth­ías Jökli. Aníta starfar sem inn­an­húss­hönnuður við hönn­un á vinnu­stöðum og hef­ur óneit­an­lega afar gott auga.

Að und­an­förnu hef­ur Aníta verið dug­leg að deila skemmti­legu efni á sam­fé­lags­miðlum sín­um, bæði á TikT­ok og In­sta­gram, þar á meðal hug­mynd­um að fal­legu jóla­skrauti. Aníta seg­ist alla tíð hafa verið mikið jóla­barn og er búin að skreyta heim­ili fjöl­skyld­unn­ar í Kaup­manna­höfn á ein­stak­lega nota­leg­an máta fyr­ir jól­in.

Heimili Anítu er komið í ansi jólalegan búning.
Heim­ili Anítu er komið í ansi jóla­leg­an bún­ing.

Ert þú mikið jóla­barn?

„Já, ég hef alltaf verið mikið jóla­barn frá því að ég man eft­ir mér.“

Hvernig verða jól­in hjá þér í ár?

„Í ár líkt og önn­ur ár ætl­um við að skreppa til Íslands og eyða jól­un­um með fjöl­skyld­um okk­ar, en við ætl­um svo að vera hér í Kaup­manna­höfn yfir ára­mót­in.“

Fallegar slaufur úr satínborða gefa jólatrénu skemmtilegt yfirbragð.
Fal­leg­ar slauf­ur úr satín­borða gefa jóla­trénu skemmti­legt yf­ir­bragð.

Hvað kem­ur þér í jóla­skap?

„Það er ekki eitt­hvað eitt sér­stakt. Það er kannski meira árstíðarbreyt­ing­in sem kem­ur mér í jóla­skap. Þegar það fer að kólna, fer að dimma fyrr og við erum að fara inn í nóv­em­ber, þá er ég strax far­in að hugsa til jól­anna.

Ég elska að gera meira úr öllu, og teygja og toga úr hverju til­efni, og af því jól­in eru upp­á­halds­tím­inn minn á ár­inu, þá hef ég mjög ómeðvitað í gegn­um árin ein­hvern veg­inn teygt jól­in svo­lítið yfir all­an des­em­ber og helst fram í miðjan nóv­em­ber ... ekk­ert endi­lega í því að skreyta, en bara svona hug­ar­farið og stemn­ing­in.

En svo auðvitað ýtir það und­ir jóla­skapið, að hér úti er allt komið í jóla­bún­ing um miðjan nóv­em­ber.“

Jólin eru í miklu uppáhaldi hjá Anítu.
Jól­in eru í miklu upp­á­haldi hjá Anítu.

Hvenær byrj­ar þú að skreyta fyr­ir jól­in?

„Sko ... haldið ykk­ur ... helst væri ég til í að gera það um miðjan nóv­em­ber. Mér fannst ég til að mynda mjög sein í ár þegar að ég byrjaði ekki að skreyta fyrr en í lok nóv­em­ber. En mér til varn­ar þá held ég að þetta sé svo­lítið tengt því að mér þykir ótrú­lega vænt um tím­ann í kring­um jól­in hér heima hjá okk­ur þar sem að við eyðum jól­un­um, sem flest­ir þekkja, aldrei heima hjá okk­ur.

Þannig að það hef­ur svo­lítið leitt mig út í að byrja fyrr hér til þess að upp­lifa hálf­gerð „jól“ heima líka. Fyr­ir tveim­ur árum síðan byrjuðum við líka með þá hefð að halda „litlu jól“ hér heima í Kö­ben þar sem við dress­um okk­ur upp, borðum jóla­mat og opn­um pakka. Svo för­um við til Íslands og upp­lif­um klass­ísku jól­in með fólk­inu okk­ar sem okk­ur þykir svo vænt um.“

Aníta vill helst byrja að skreyta heimilið fyrir jólin um …
Aníta vill helst byrja að skreyta heim­ilið fyr­ir jól­in um miðjan nóv­em­ber.

Hvernig skreyt­ir þú fyr­ir jól­in?

„Ég er svo­lítið mini­malísk í jóla­skrauti, og mörg­um finnst það ef­laust hálf dap­urt. En mér finnst þetta aðallega spurn­ing um að gera allt þeim mun meira huggu­legt í kring­um sig.

Við erum líka ennþá þar að við eig­um ekk­ert rosa­lega mikið af jóla­skrauti, þó svo að það séu núna sjö ár síðan við byrjuðum að búa. En fyrstu árin okk­ar fór­um við yf­ir­leitt frek­ar snemma til Íslands yfir jól­in og vor­um því ekki mikið að skreyta heima hjá okk­ur.

Þannig að það hef­ur í raun bara verið fyrst á síðustu árum sem við höf­um verið að sanka að okk­ur jóla­skrauti. Ég hef ekki viljað bara kaupa til þess að fylla allt, held­ur frek­ar velja inn hluti sem ég veit að við get­um notað árin á eft­ir.“

Minimalískar jólaskreytingar eru áberandi á heimili Anítu.
Mini­malísk­ar jóla­skreyt­ing­ar eru áber­andi á heim­ili Anítu.

Hvaða skraut er ómiss­andi fyr­ir jól­in?

„Fal­leg­ur krans. Krans­ar geta verið svo ótrú­lega mis­mun­andi og þú get­ur þess vegna út­fært þá eins og þú vilt. Ég er t.d. með þrjá kransa hér í íbúðinni, all­ir frek­ar mini­malísk­ir en ólík­ir á sama tíma.“

Fallegir kransar eru ómissandi að mati Anítu.
Fal­leg­ir krans­ar eru ómiss­andi að mati Anítu.

Hvernig mynd­ir þú lýsa fata­stíln­um þínum?

„Ég hef aldrei sett mig í eitt­hvað ákveðið box þegar kem­ur að fata­stíl. Þannig mér finnst frek­ar erfitt að lýsa hon­um. En ég hugsa að það væri lík­lega frek­ar mini­malísk­ur með áherslu á þæg­indi.“

Aníta er með flottan og minimalískan fatastíl.
Aníta er með flott­an og mini­malísk­an fata­stíl.

Hvað er ómiss­andi í fata­skáp­inn yfir hátíðirn­ar?

Fal­leg nátt­föt og fal­leg kápa. Ég held að góð viðskipta­hug­mynd fyr­ir sjálfa mig væri bara að fara að fram­leiða nátt­föt. Ég elska fal­leg nátt­föt. Ég nota nátt­föt heima hjá mér meira eins og aðrir nota „lounge wear“ heima hjá sér en svo sef ég ekk­ert í þeim. Ég á sér­stök nátt­föt sem eru „lounge“ og svo önn­ur fyr­ir svefn yfir vetr­ar­tím­ann. Ég er al­veg mjög skrít­in með þetta, eða kannski ekki, kannski er ein­hver þarna úti sem teng­ir ...

En mér finnst jóla­hátíðin vera svo mik­il nátt­fata­hátíð á sama tíma og þetta er líka hátíð sem gam­an er að dressa sig upp fyr­ir. Spila­kvöld­in, bíó­mynda­kvöld­in og smá­köku bakst­ur­inn eru allt eitt­hvað sem er svo nota­legt að vera í góðum nátt­föt­um í.

Góð og fal­leg kápa er síðan eitt­hvað sem er tíma­laus klass­ík í fata­skáp­inn, og eitt­hvað sem hægt er að nota við allt að mínu mati. Til þess að setja punkt­inn yfir i-ið við hátíðardressið, eða jafn­vel bara í anda Carrie Brads­haw yfir nátt­föt­in yfir hátíðarn­ar.“

Draumanáttföt!
Drauma­nátt­föt!

Kaup­ir þú þér alltaf nýtt dress fyr­ir jól­in?

„Yf­ir­leitt. En það er samt al­veg á skjön við hvernig ég er vana­lega. Það er svo­lítið síðan að ég hætti nán­ast al­veg eða dró að minnsta kosti veru­lega úr því að kaupa mér föt fyr­ir sér­stök til­efni. Ég hef meira sett áhersl­una á kaupa ekki bara til þess að kaupa, held­ur er ég far­in að taka miklu meðvitaðari ákv­arðanir og kaupi bara ef það er eitt­hvað sem ég sé mikið nota­gildi í, en er ekki bara fyr­ir eitt­hvað eitt skipti.

En ég held að ástæðan fyr­ir því að ég fæ mér nán­ast alltaf eitt­hvað fyr­ir jól­in er að þá er eins og ég leyfi mér meira að kaupa mér það sem mér hef­ur kannski langað í lengi.
Oft er þetta eitt­hvað sem mig hef­ur langað í í nokk­ur ár, eða að minnsta kosti í góðan tíma, en aldrei „leyft“ mér að kaupa það. En svo koma jól­in og þá slæ ég oft til.“

Þegar kemur að tísku setur Aníta þægindin í fyrsta sæti.
Þegar kem­ur að tísku set­ur Aníta þæg­ind­in í fyrsta sæti.

Ertu búin að ákveða í hverju þú verður þessi jól­in?

„Nei reynd­ar ekki, og ég kaupi mér lík­lega ekki neitt nýtt sér­stak­lega fyr­ir jól­in í ár, þó svo að það sé einn blazer-jakki á jóla­gjafal­ist­an­um sem mig hef­ur dreymt um mjög lengi. Ég hef verið að spá í hvort að ég ætti að láta verða af því að kaupa hann fyr­ir jól­in eða halda hon­um á óskalist­an­um aðeins leng­ur.“

Það er notaleg stemning á heimili Anítu yfir jólin.
Það er nota­leg stemn­ing á heim­ili Anítu yfir jól­in.

Hvað er ómiss­andi í snyrti­budd­una yfir hátíðirn­ar?

„Ég myndi segja fal­leg­ur djúp­ur rauður lit­ur á var­irn­ar og kinn­arn­ar. Mér finnst það alltaf svo hátíðlegt og fal­legt. Ég keypti mér t.d. vara­sal­va um dag­inn sem er frek­ar glosskennd­ur í djúprauðum lit sem hægt er að nota á var­irn­ar og kinn­arn­ar. Mjög fal­leg­ur og full­kom­inn fyr­ir þessa árstíð.“

Hvað er efst á óskalist­an­um þínum?

„Eins og ég nefndi hérna áðan þá hef­ur blazer-jakki frá The Frankie Shop verið mjög lengi á óskalist­an­um. Tíma­laus eign í fata­skáp­inn sem ég sé svo ótrú­lega mik­il not í.“

Blazer-jakki frá The Frankie Shop er efstur á óskalista Anítu.
Blazer-jakki frá The Frankie Shop er efst­ur á óskalista Anítu.

„Góðir hlýj­ir sokk­ar eru í dag­legri notk­un á mínu heim­ili yfir vetr­ar­tím­ann. Þess­ir frá Varma eru svo ótrú­lega mjúk­ir og þægi­leg­ir. Full­komn­ir í jólapakk­ann.“

Hlýjir sokkar klikka aldrei í jólapakkann!
Hlýj­ir sokk­ar klikka aldrei í jólapakk­ann!

„Ég elska að safna fal­leg­um vös­um. Það er svo auðvelt að umbreyta heim­il­inu bara með því að „svissa“ til vös­um hér og þar, eða öðrum álíka smá­mun­um eins og bók­um eða stjök­um.
Ég hef verið með augastað á þess­um Terracotta vasa frá Tine K í smá tíma núna, elska lagið á hon­um og nátt­úru­legu áferðina.“

Þessi fallegi vasi er frá Tine K.
Þessi fal­legi vasi er frá Tine K.

„Mig er búið að langa að prófa þessa margum­ræddu vara­sal­va frá Rhode lengi, en ég er sér­stak­lega spennt fyr­ir Pepti­de Lip Tint í litn­um Espresso.“

Varasalvinn frá Rhode er að sjálfösgðu á óskalista Anítu.
Vara­sal­vinn frá Rhode er að sjálfösgðu á óskalista Anítu.

„Ég er búin að heyra svo ótrú­lega góða hluti um þessa olíu í hárið, þannig mig hef­ur lengi langað að prófa hana. Full­kom­in á jóla­gjafa list­ann.“

Hver elskar ekki góða hárolíu?
Hver elsk­ar ekki góða hárol­íu?
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert