Ásta fann núvitundina úti í náttúrunni

Ásta Björk Bolladóttir veit fátt skemmtilegra en að ferðast um …
Ásta Björk Bolladóttir veit fátt skemmtilegra en að ferðast um Ísland og stunda útivist. Samsett mynd

Einkaþjálf­ar­inn Ásta Björk Bolla­dótt­ir er mik­ill nátt­úru- og úti­vist­ar­unn­andi. Hún hef­ur alla tíð haft mik­inn áhuga á ferðalög­um og var um tíma staðráðin í því að flytja er­lend­is. Með ár­un­um hef­ur áhugi henn­ar á ís­lenskri nátt­úru þó auk­ist eft­ir að hún fór að sækja meira í úti­vist og seg­ist hún fljót­lega hafa áttað sig á því að öll feg­urðin og æv­in­týr­in væru í bak­g­arðinum hjá sér. 

„Ég hef alltaf elskað nátt­úr­una og sótt mikið í hana. Ég var veru­lega upp­tek­in af ferðalög­um og al­veg viss um að ég vildi búa ein­hvers staðar er­lend­is – það mætti segja að ég hafi for­gangsraðað því fram yfir margt annað á tíma­bili. En eft­ir þó nokk­ur æv­in­týri fann ég hvað ég elskaði Ísland alltaf meira og meira og eft­ir eina ferðina er­lend­is kom ég heim með það hug­ar­far að skapa mér sem mest af úti­vistaráhuga­mál­um hérna heima í öll­um veðrátt­um og skapa mér líf sem ég þyrfti ekki frí frá. Oft er það þannig að feg­urðin er bara í bak­g­arðinum – sér­stak­lega þegar maður býr á Íslandi,“ seg­ir Ásta. 

Ásta er einkaþjálf­ari og hef­ur starfað hjá World Class síðastliðin tíu ár, en hún seg­ist snemma hafa fattað að hún hefði mikla hreyfiþörf og hef­ur því stundað fjöl­breytta hreyf­ingu lengi. „Ég er frek­ar of­virk og upp­götvaði það rosa­lega snemma að ég þyrfti að hreyfa mig mikið og fá mikla út­rás til að líða vel og sofa vel. Ég vissi ekk­ert hvað ég ætti að gera við ork­una mína og byrjaði að stunda hand­bolta og lík­ams­rækt ung, en ég sótt­ist alltaf í eins mikla út­rás og ég gat. Ég hef einnig æft bras­il­ískt Jiu Jitsu í Mjölni sem er eitt það skemmti­leg­asta sem ég hef nokk­urn tíma æft,“ út­skýr­ir hún. 

Ásta segist snemma hafa áttað sig á því að hún …
Ásta seg­ist snemma hafa áttað sig á því að hún þyrfti mikla hreyf­ingu og út­rás.

„Mér líður lang­best í nátt­úr­unni“

Aðspurð seg­ir Ásta að á síðustu árum hafi áhugi henn­ar á úti­vist auk­ist mikið og reyn­ir hún í dag að verja sem mest­um tíma úti í nátt­úr­unni þar sem hún upp­lif­ir full­komna nú­vit­und. „Ég myndi segja að ég hafi byrjað frek­ar seint að stunda úti­vist af al­vöru þar sem ég var frek­ar upp­tek­in af öðrum inn­an­húsíþrótt­um og lík­ams­rækt þegar ég var yngri, maður var ein­hvern veg­inn alltaf mér haus­inn þar. Svo fyr­ir nokkr­um árum fann ég hvað mér líður lang­best í nátt­úr­unni og nauðsyn­legt fyr­ir mig og upp á jafn­vægið með dag­legu lífi,“ seg­ir hún. 

„Það er svo mik­il­vægt að þora að prófa nýja hluti og að vera al­gjör byrj­andi, helst aft­ur og aft­ur. Það er ákveðin áskor­un í því og gott að efla sjálfs­traustið sitt með að stíga út fyr­ir þæg­ind­aramm­ann,“ bæt­ir hún við. 

Í dag þykir Ástu nauðsynlegt að eyða tíma í náttúrunni, …
Í dag þykir Ástu nauðsyn­legt að eyða tíma í nátt­úr­unni, enda gef­ur það henni jafn­vægi í dag­leglu lífi.

Hvernig hreyf­ingu og úti­vist stund­ar þú?

„Ég tek styrktaræf­ing­ar flesta daga, tek þolæf­ing­ar inn á milli og er mikið að teygja. Ég ein­blíni á að vera í al­hliða formi sem hjálp­ar mér í flest­um öðrum áhuga­mál­um. Það er alltaf gott að viðhalda styrk, þoli og liðleika og ég reyni að líða alltaf eins og ég sé klár fyr­ir hvað sem er hvenær sem er.

Ég varð hug­fang­inn af fjalla­hjól­um og það er klár­lega eitt það skemmti­leg­asta sem ég geri. Svo vakna ég með það hug­ar­far að skoða hvernig veðrið er og gera ná­kvæm­lega það sem mér dett­ur í hug.“

Ásta er dugleg að hreyfa sig og stundar fjölbreyttar æfingar, …
Ásta er dug­leg að hreyfa sig og stund­ar fjöl­breytt­ar æf­ing­ar, allt frá styrkt­ar- og þolæf­ing­um yfir í teygj­ur.

„Það er auðvitað rosa­lega mögnuð til­finn­ing að vera tíma­laus í sjón­um á brimbretti í góðum fé­lags­skap – það er fátt sem topp­ar það. Ísklif­ur og ganga á jökl­um hef­ur verið í miklu upp­á­haldi, það er ein­hver ákveðin orka í kring­um jökl­ana sem mér finnst gera göng­ur svo stór­brotn­ar.“

Ástu þykir alltaf jafn skemmtilegt að fara á brimbretti í …
Ástu þykir alltaf jafn skemmti­legt að fara á brimbretti í góðum fé­lags­skap.

Hvernig ferðalög­um ert þú hrifn­ust af?

„Er­lend­is finnst mér best að sam­eina ferðalög með hreyf­ingu og skoða fal­lega staði, helst alltaf ná­lægt sjó eða fjöll­um. Það að ferðast og sjá nýja staði og menn­ingu er alltaf gef­andi og opn­ar ein­hvern nýj­an part af sjálf­um manni. Ég er eins mik­ill Íslend­ing­ur og það ger­ist, en ég er meira fyr­ir kulda en hita svo of heit lönd til lengri tíma er ekki fyr­ir mig þó svo það sé gott að kom­ast í smá sól.“

Ástu þykir gaman að skoða nýja staði í sól og …
Ástu þykir gam­an að skoða nýja staði í sól og hita en viður­kenn­ir þó að henni líði best í kald­ara lofts­lagi á Íslandi.

„Inn­an­lands finnst mér í fyrsta lagi enda­laust skemmti­legt að keyra um landið ég fæ ekki nóg af því. Mér líður eig­in­lega best á ferðinni í bíl því ég tek því ekki sem sjálf­sögðum hlut að keyra um í svona fal­legri nátt­úru.

Að vera í góðum fé­lags­skap á leiðinni í skemmti­leg æv­in­týri eða á leiðinni að skoða staði sem maður hef­ur ekki séð gef­ur mér til­hlökk­un­ar­til­finn­ingu eins og úr æsku. Mér finnst mik­il­vægt að reyna að fylgja því hvar maður finn­ur sig í þess­ari „krakka­orku“ þar sem maður er full­ur af til­hlökk­un og óvissu á sama tíma.

Enda er það líka eitt af því sem ein­kenn­ir Ísland og úti­vist – plön­in geta alltaf breyst og oft þarf maður að hafa aðeins meira fyr­ir hlut­un­um sem læt­ur manni bara líða meira lif­andi og er oft spenn­andi.“

Á ferðalögum um landið er Ásta oft full af tilhlökkun …
Á ferðalög­um um landið er Ásta oft full af til­hlökk­un og óvissu á sama tíma.

Upp­á­haldsstaðir á Íslandi?

„Katla, ís­hell­ir­inn í Mýr­dals­jökli, Múlagljúf­ur, Kerl­inga­fjöll og allstaðar þar sem er foss.“

Upp­á­halds­hjóla­leiðir á Íslandi?

„Bestu dag­ar sem ég hef átt á fjalla­hjóli eru á Esj­unni og þegar Skála­fell var með hjólag­arðinn op­inn.“

Ástu þótti gaman að hjóla í Skálafelli.
Ástu þótti gam­an að hjóla í Skála­felli.

Upp­á­haldsstaður til að fara á brimbretti?

„Ég hef verið í Þor­láks­höfn þar sem það er ör­ugg­ari staður en marg­ir aðrir og hent­ar fyr­ir byrj­end­ur jafnt sem lengra komna.“

Að sögn Ástu er Þorlákshöfn frábær brimbrettastaður fyrir byrjendur sem …
Að sögn Ástu er Þor­láks­höfn frá­bær brimbrett­astaður fyr­ir byrj­end­ur sem og lengra komna.

En til að stunda ísklif­ur?

„Ég hef verið mest á Sól­heima­jökli, en mér finnst alltaf jafn skemmti­legt að fara þangað.“

Eft­ir­minni­leg­asta ferðalagið á Íslandi?

„Einu sinni var kær­asti vin­konu minn­ar að plana af­mælið henn­ar þar sem þau voru á Höfn í Hornafirði og vildi koma henni á óvart með því að ég kæmi til þeirra. Ég byrjaði að keyra þangað um nótt­ina og hitti þau hjá Jök­uls­ár­lóni um morg­un­inn. Þar prófaði ég ísklif­ur í fyrsta skipti og átti einn besta dag sem ég hef upp­lifað með þeim á Fall­jökli.

Svo er það þegar ég gekk að eld­gos­inu í fyrsta skipti und­ir stjörnu­björt­um himni og fullu tungli. Það sit­ur alltaf eft­ir sem eitt það magnaðasta sem ég hef séð.“

Ásta varð heilluð af ísklifri þegar hún prófaði það í …
Ásta varð heilluð af ísklifri þegar hún prófaði það í fyrsta sinn með vin­um sín­um.

Áttu þér upp­á­halds nátt­úru­laug­ar á Íslandi?

„Það eru auðvitað minni nátt­úru­laug­ar hér og þar sem er gam­an að fara í þegar maður er á ferðinni en ég elska að geta tekið kuldabað dags­ins í leiðinni. Svo er Hvamms­vík í miklu upp­á­haldi hjá mér núna – að eiga góðan dag þar og geta farið í sjó­inn á milli eða skellt sér á „paddle bo­ard“ er mjög skemmti­legt – hvað þá í þess­ari nátt­úrup­ara­dís!“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Asta Bjork (@astaabjork)

Hvaða staði mæl­ir þú með að fólk heim­sæki í sum­ar?

„Ég myndi mæla með að sjá Kerl­inga­fjöll, Kötlu og Múlagljúf­ur. Síðan mæli ég líka með því fyr­ir þá sem vilja fara styttra eða með fjöl­skyldu að búa til smá æv­in­týri úr hvers­dags­leik­an­um – taka nesti, teppi og sund­föt og keyra til dæm­is hjá Helgu­fossi. Það þarf ekki að fara langt til þess að tengj­ast nátt­úr­unni.“

Ásta mælir með heimsókn í Kerlingarfjöll, Kötlu og Múlagljúfur!
Ásta mæl­ir með heim­sókn í Kerl­ing­ar­fjöll, Kötlu og Múlagljúf­ur!

Ertu með ein­hver ráð fyr­ir þá sem vilja koma sér af stað í úti­vist fyr­ir sum­arið?

„Sleppa tök­un­um á of­hugs­un, hvort sem það er að vera ekki nógu „góður“, of gam­all, eiga ekki næg úti­vistar­föt eða vera ekki í nógu góðu formi. Vaða bara í hlut­ina, tala við fólk, spyrj­ast fyr­ir og njóta þess að hreyfa sig fyrst maður hef­ur heilsu til þess. Lífið er svo sann­ar­lega núna.“

Ásta er með nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja …
Ásta er með nokk­ur góð ráð fyr­ir þá sem vilja byrja að stunda úti­vist.

Eru ein­hverj­ir staðir á Íslandi sem eru byrj­enda­væn­ir fyr­ir þá sem eru að byrja í úti­vist?

„Heiðmörk er æðis­leg hvort sem það er fyr­ir göng­ur eða hjól.“

Hvað er framund­an í sum­ar hjá þér?

„Ferðast um landið og skapa minn­ing­ar. Svo helst að stökkva út í fossa út um allt land.“

Í sumar ætlar Ásta að hoppa í sem flesta fossa!
Í sum­ar ætl­ar Ásta að hoppa í sem flesta fossa!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert