„Ég hef aldrei upplifað jafn mikið á einni viku“

Kristín Hildur Ragnarsdóttir er mikill ferðaunnandi og hefur ferðast víða, …
Kristín Hildur Ragnarsdóttir er mikill ferðaunnandi og hefur ferðast víða, bæði innanlands og erlendis. Samsett mynd

Fjár­mála­hag­fræðing­ur­inn Krist­ín Hild­ur Ragn­ars­dótt­ir hef­ur alla tíð haft mik­inn áhuga á ferðalög­um. Hún hef­ur ferðast víða bæði inn­an­lands og er­lend­is, en með ár­un­um seg­ist Krist­ín hafa öðlast nýja sýn á ferðalög og hvað þau geta raun­veru­lega haft já­kvæð áhrif á lífið. 

„Það er ótrú­legt þegar maður átt­ar sig á því eft­ir gott ferðalag hvað það hef­ur gefið manni mikið – maður kann bet­ur að meta rútín­una og sér heim­ilið sitt oft í nýju ljósi. Það get­ur búið til marg­ar góðar minn­ing­ar að fara úr dag­legu rútín­unni þar sem flest geng­ur sinn vana­gang yfir í að sjá og prófa nýja hluti,“ seg­ir Krist­ín .

Krist­ín starfar sem fræðslu­stjóri hjá Íslands­banka og er meðlim­ur í fræðslu­vett­vang­in­um Fort­una In­vest, en í frí­tíma sín­um nýt­ur hún þess að fara í fjall­göng­ur, kanna nýj­ar slóðir bæði á Íslandi og er­lend­is, og upp­lifa nýja menn­ingu á spenn­andi áfanga­stöðum. 

Kristín Hildur í Santa Barbara í Kaliforníu.
Krist­ín Hild­ur í Santa Barbara í Kali­forn­íu.

Hvernig ferðalög­um ert þú hrifn­ust af?

„Veit ekki hvort það sé merki um að ég sé að þrosk­ast (og eld­ast) en ég kann bet­ur og bet­ur að meta ferðalög sem eru blanda af hreyf­ingu og fríi. Ann­ars myndi ég alltaf kjósa borg­ar­ferð um­fram sól­ar­landa­ferð.“

Kristín er hrifnust af ferðalögum sem innihalda bæði hreyfingu og …
Krist­ín er hrifn­ust af ferðalög­um sem inni­halda bæði hreyf­ingu og frí.

Hvert er eft­ir­minni­leg­asta ferðalagið er­lend­is?

„Rétt fyr­ir jól­in 2022 fór ég til Jap­an í gegn­um pró­gram sem heit­ir MIRAI. Ég sá það aug­lýst í gegn­um Há­skóla Íslands og mæli mikið með því fyr­ir há­skóla­nema að taka þátt. Í ferðinni heim­sótt­um við bæði Tókýó og Osaka og ég hef aldrei upp­lifað jafn mikið á einni viku.“

Eftirminnilegasta ferðalag Kristínar hingað til er ferðalag sem hún fór …
Eft­ir­minni­leg­asta ferðalag Krist­ín­ar hingað til er ferðalag sem hún fór í árið 2022 til Jap­an.

„Við feng­um að kynn­ast menn­ing­unni, sög­unni, nýju fólki, heim­sækja stór fyr­ir­tæki og há­skóla sem var al­gjör draum­ur. Það má vissu­lega líta á þetta sem skóla­ferð því dag­skrá­in var þétt yfir dag­inn og á kvöld­in nýtt­um við tím­ann vel í að skoða annað sem var ekki inni í dag­skránni. Síðan var næg­ur tími til að vinna upp svefn­inn í flug­vél­inni á leiðinni heim, enda 13 tíma ferðalag.“

Ferðalagið frá Japan tók heilar 13 klukkustundir.
Ferðalagið frá Jap­an tók heil­ar 13 klukku­stund­ir.

En inn­an­lands?

„Ég fór í dags­ferð á Fimm­vörðuháls­inn fyr­ir tveim­ur árum með vinn­unni og tók tvær vin­kon­ur mín­ar með mér. Ef ég fæ að vitna í land­vörðinn þá sagði hún að við hefðum fengið „fal­leg­asta dag árs­ins“ – það er fátt sem topp­ar góðan fé­lags­skap og Ísland að sumri til.

Síðan fór ég síðasta sum­ar með vina­hópn­um í Fljót­in í Skagaf­irði í fyrsta skipti, það var ferð sem nærði sál­ina.“

Vinkonurnar voru sannarlega heppnar með veður þegar þær fóru Fimmvörðuhálsinn.
Vin­kon­urn­ar voru sann­ar­lega heppn­ar með veður þegar þær fóru Fimm­vörðuháls­inn.

Upp­á­halds­borg í Evr­ópu?

„Par­ís og Kö­ben – mjög dæmi­gert svar, en ég á bara svo marg­ar góðar minn­ing­ar þaðan.“

En utan Evr­ópu?

„Tókýó, ef ég lýsti því ekki nægi­lega vel hér fyr­ir ofan, því­lík upp­lif­un sem þessi borg var.“

Tókýó heillaði Kristínu upp úr skónum, enda segir hún það …
Tókýó heillaði Krist­ínu upp úr skón­um, enda seg­ir hún það hafa verið mikla upp­lif­un að ferðast þar.

Upp­á­haldsstaðir á Íslandi?

„Sund­laug­in Lauga­sk­arði, Foss­vogs­dal­ur­inn og síðan eru Vest­f­irðirn­ir al­veg ein­stak­ir.“

Kristín á nokkra uppáhaldsstaði á Íslandi.
Krist­ín á nokkra upp­á­haldsstaði á Íslandi.

Besti mat­ur sem þú hef­ur fengið á ferðalagi?

„Hvar sem ég er stödd, þá er fátt sem topp­ar góða pítsu eða góðan fisk. Það fyrsta sem kem­ur upp í hug­ann er veit­ingastaður­inn Café Geor­ge í Amster­dam, stemn­ing­in á staðnum var eins og að vera stadd­ur í bíó­mynd.

Þau voru með 70‘s lagalista í gangi og fólk var að syngja með þrátt fyr­ir að klukk­an hafi bara verið í kring­um kvöld­mat­ar­leytið. Við ætluðum fyrst bara að fá okk­ur einn drykk en enduðum á að borða líka. Mat­ur­inn, sem var mjög góður, varð lík­lega enn betri í þess­ari stemn­ingu.“

Kristín segir fátt toppa góða pítsu eða góðan fisk.
Krist­ín seg­ir fátt toppa góða pítsu eða góðan fisk.

Hef­ur þú lent í ein­hverju hættu­legu á ferðalagi?

„Myndi frek­ar segja óþægi­legu en hættu­legu, sér­stak­lega fyr­ir kvíðapésa. Við fór­um til Banda­ríkj­anna fjór­ir vin­ir, leigðum bíla­leigu­bíl og keyrðum strand­lengj­una. Þegar við kom­um til San Diego tók­um við ranga beygju og enduðum á landa­mær­un­um við Mexí­kó, kenn­um GPS-tæk­inu um það.

Verðirn­ir á landa­mær­un­um sögðu að ef við ætluðum að kom­ast til baka þá þyrft­um við að keyra í gegn­um Tiju­ana og fara í gegn­um landa­mær­in aft­ur. GPS-tækið hætti að virka þegar við keyrðum yfir, síma­sam­bandið datt út og við höfðum ekki keypt trygg­ingu til þess að fara með bíl­inn til Mexí­kó.

Í stuttu máli var ég með mikl­ar áhyggj­ur af því að við kæm­umst ekki til baka og það er enn gert grín af viðbrögðunum mín­um yfir þessu öllu sam­an. Vega­bréf­in komu okk­ur þó aft­ur til baka, þannig að lær­dóm­ur­inn þarna var að stóla ekki alltaf á tækn­ina og muna eft­ir vega­bréf­inu.“

Kristín sagði frá óheppilegu atviki sem hún lenti í. Sem …
Krist­ín sagði frá óheppi­legu at­viki sem hún lenti í. Sem bet­ur fer endaði þó allt vel.

Hvað er ómiss­andi í flug­vél­inni?

„Svefn­gríma og ferðapúði – þá er ég í topp mál­um.“

Hvert dreym­ir þig um að fara?

„Draumastaðirn­ir eru Kýótó, Höfðaborg, Róm og ferð til Mexí­kó, sem er aðeins bet­ur skipu­lögð en sú sem ég kom inn á hér á und­an. Á Íslandi væri það ferð til Aðal­vík­ur, geri það von­andi einn dag­inn.“

Áfangastaðirnir sem Kristínu dreymir um að heimsækja eru sannarlega spennandi.
Áfangastaðirn­ir sem Krist­ínu dreym­ir um að heim­sækja eru sann­ar­lega spenn­andi.

Eru ein­hver ferðalög á dag­skrá hjá þér í vor eða sum­ar?

„Siggi Storm­ur nefndi í viðtali um dag­inn að hann væri óvenju bjart­sýnn fyr­ir sum­arið, verður maður ekki að treysta því að hann verði sann­spár. Það er orðið ár­legt að fara í alla­vega eina lengri fjall­göngu, eina ferð til Vest­manna­eyja og svo er syst­ir mín að fara gifta sig í Fljóts­hlíð – ég get ekki beðið eft­ir að gráta úr mér aug­un þar.“

Kristín er spennt fyrir sumrinu og ætlar að treysta því …
Krist­ín er spennt fyr­ir sumr­inu og ætl­ar að treysta því að veðurguðirn­ir verði með okk­ur í liði.

Ertu með ein­hver góð fjár­málaráð þegar kem­ur að ferðalög­um?

„Ætli það sé ekki gott skipu­lag sem skil­ar mestu þegar kem­ur að sparnaði í ferðalög­um, hvort sem það er að bóka ferðina tím­an­lega, und­ir­búa nesti fyr­ir inn­an­lands­ferðalög­in eða vera með gilt sjúkra­kort ef eitt­hvað kem­ur upp á.

Þegar verið er að greiða í posa er­lend­is, og maður fær val um að greiða í ís­lenskri mynt eða gjald­miðli viðkom­andi lands, er alla jafna dýr­ara að velja ís­lensku upp­hæðina. Það get­ur verið gott að hafa þetta á bakvið eyrað.“

Kristín deilir góðum ráðum með lesendum.
Krist­ín deil­ir góðum ráðum með les­end­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert