Kynntist náttúru Íslands á þrítugsaldri og varð heillaður

Elías Arnar Nínuson varð heillaður af íslenskri náttúru á þrítugsaldri …
Elías Arnar Nínuson varð heillaður af íslenskri náttúru á þrítugsaldri og er í dag landfræðingur, landvörður og ljósmyndari. Ljósmynd/Elías Arnar

Elías Arn­ar Nínu­son, land­fræðing­ur, ljós­mynd­ari og land­vörður, fór lítið út fyr­ir bæj­ar­mörk­in þegar hann var yngri en upp­lifði töfra nátt­úru Íslands þegar hann var á þrítugs­aldri í gegn­um ljós­mynd­un og úti­vist. 

Í dag er hann með meist­ara­gráðu í land­fræði og nátt­úru­vá og starfar hjá Veður­stof­unni sem snjóflóðasér­fræðing­ur. Á sumr­in starfar hann einnig sem land­vörður á Norður-há­lendi Vatna­jök­ulsþjóðgarðs auk þess að sjá um úti­vist­ar- og jaðaríþrótt­astarf fyr­ir ung­linga í Fé­lags­miðstöðinni Sigyn í Grafar­vog­in­um, en hann er með ein­stakt ljós­mynda­auga og hef­ur náð að fanga mögnuð augna­blik í nátt­úr­unni á filmu. 

Elías hefur fangað einstök augnablik á filmu.
Elías hef­ur fangað ein­stök augna­blik á filmu. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

„Það var ekki fyrr en ég fór og upp­lifði nátt­úru Íslands á þrítugs­aldri sem ég lærði virki­lega að meta hana. Þegar ég var yngri fór ég ekki mikið út fyr­ir bæj­ar­mörk­in og hafði enga hug­mynd um þau nátt­úru­gæði sem við búum við á Íslandi,“ út­skýr­ir Elías. 

„Það var síðan í gegn­um ljós­mynd­un og úti­vist sem ég lærði að lesa nátt­úr­una og tengj­ast henni raun­veru­lega. Þessi upp­lif­un mín af nátt­úr­unni dríf­ur mig áfram til þess að fræða og kenna ung­ling­um að tengj­ast nátt­úr­unni í gegn­um úti­vist og jaðaríþrótt­ir. Það sem heill­ar mig mest við nátt­úr­una er að sjá aðra upp­lifa hana og verða fyr­ir þeirri ólýs­an­legu til­finn­ingu sem við þekkj­um öll þegar við verðum fyr­ir hrif­um í nátt­úr­unni,“ bæt­ir hann við. 

Elías lærði að lesa náttúruna og tengjast henni í gegnum …
Elías lærði að lesa nátt­úr­una og tengj­ast henni í gegn­um ljós­mynd­un og úti­vist. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hvenær byrjaði áhugi þinn á ljós­mynd­un?

„Ég byrjaði að taka mynd­ir þegar ég var í mennta­skóla. Ég var í list­námi í Borg­ar­holts­skóla og ein­beitti mér mikið að leik­list og kvik­mynda­gerð en þaðan færði ég mig hægt og ró­lega yfir í ljós­mynd­un. Fyrst var ég mest hrif­inn af tækni­legu hliðinni en smátt og smátt fór ég að fara meira út og taka mynd­ir á ferðalög­um þar sem nátt­úr­an var viðfangs­efnið.

Það var síðan ekki fyrr en ég fór að starfa sem land­vörður hjá þjóðgarðinum árið 2016 að ég fattaði hversu fal­legt viðfangs­efni nátt­úr­an er. Þá fór ég að taka nátt­úru­ljós­mynd­ir á fullu en fljót­lega eft­ir að ég byrjaði í land­fræðinni fór ég að tengja hana við ljós­mynd­un og kýs ég í dag að kalla mig land­fræði-ljós­mynd­ara.“

Árið 2016 fór Elías að starfa sem landvöður og áttaði …
Árið 2016 fór Elías að starfa sem land­vöður og áttaði sig á því hve fal­legt viðfangs­efni nátt­úr­an er. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

„Land­fræðileg ljós­mynd­un er ákveðin nálg­un sem legg­ur áherslu á að varpa ljósi á land­fræðileg tengsl í nátt­úr­unni. Þannig kepp­ist ég við að ögra ríkj­andi hug­mynd­um um stað manns­ins í nátt­úr­unni og hvert okk­ar hlut­verk er í stóra sam­heng­inu. Það er gríðarlega mikið af óséðum viðfangs­efn­um í ís­lenskri nátt­úru sem land­fræðileg ljós­mynd­un get­ur varpað ljósi á. Þetta eru þá helst hlut­ir sem tengja okk­ur við nátt­úr­una á sögu­leg­an eða menn­ing­ar­leg­an hátt og dæmi um þessi viðfangs­efni geta verið skips­flök, rekaviður, skógareyðing, stóriðja o.s.frv..“

Elías kýs að kalla sig landfræði-ljósmyndara.
Elías kýs að kalla sig land­fræði-ljós­mynd­ara. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hvernig ferðalög­um ert þú hrifn­ast­ur af?

„Að fara í margra daga göng­ur er allra besta leiðin til þess að upp­lifa nátt­úr­una og tengj­ast henni að mínu mati. Þar ger­ast hlut­ir sem erfitt er að út­skýra en þeir sem hafa gert þetta, gist marg­ar næt­ur í tjaldi og lifað á þurrmat og hundasúr­um, vita ná­kvæm­lega hvað ég er að tala um.“

Með ljósmyndum sínum leggur Elías áherslu á að varpa ljósi …
Með ljós­mynd­um sín­um legg­ur Elías áherslu á að varpa ljósi á land­fræðileg tengsl í nátt­úr­unni. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hverj­ir eru þínir upp­á­haldsstaðir á Íslandi og af hverju?

„Upp­á­haldsstaður­inn minn á Íslandi er Mý­vatns­sveit­in. Þar hef ég unnið nokk­ur sum­ur sem land­vörður og fengið að kynn­ast ein­stöku sam­fé­lagi sem lif­ir í nánu sam­bandi við sitt nærum­hverfi. Það eru fáir staðir á Íslandi sem búa yfir jafn mikl­um töfr­um og leynd­ar­dóm­um og jafn fjöl­breyttu líf­ríki. Að vera þarna er eins og vera í tölvu­leik eða bíó­mynd.“

Margra daga göngur eru í uppáhaldi hjá Elíasi.
Margra daga göng­ur eru í upp­á­haldi hjá Elíasi. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Upp­á­halds­göngu­leið á Íslandi?

„Lík­lega eitt­hvað sem ég á eft­ir að fara en Víkna­slóðirn­ar hafa alltaf heillað mig sér­stak­lega.“

Upp­á­haldsstaður á há­lendi Íslands?

„Askja eða Tungna­árör­æf­in.“

Fallegt sjónarspil að vetri til.
Fal­legt sjón­arspil að vetri til. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hvað finnst þér skemmti­leg­ast að mynda?

„Hluti í nátt­úr­unni sem tengj­ast fólki á sögu­leg­an eða menn­ing­ar­leg­an hátt. Göm­ul eyðibýli, fjalla­skál­ar, rekaviður eða ein­hvers­kon­ar áhrif sem fólk hef­ur haft á um­hverfið sitt eða öf­ugt.“

Það leynast miklir töfrar á hálendi Íslands.
Það leyn­ast mikl­ir töfr­ar á há­lendi Íslands. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hvernig hef­ur jarðfræðin áhrif á ljós­mynd­irn­ar þínar?

„Sem lærður land­fræðing­ur og land­vörður hef ég frek­ar góða grunnþekk­ingu á jarðfræði Íslands og mér finnst ég geta nýtt mér þessa þekk­ingu til þess að ná góðum mynd­um. Það er pínu flókið að út­skýra þetta en það er eins og ég sé sí­fellt að kynn­ast viðfangs­efn­inu sem nátt­úr­an er bet­ur og bet­ur og þar af leiðandi finnst mér ég hæf­ari til þess að taka mynd­ir af fyr­ir­bær­um í nátt­úr­unni sem ég vissi ekki áður hvað voru ná­kvæm­lega.“

Elíasi þykir skemmtilegast að mynda hluti í náttúrunni sem tengjast …
Elíasi þykir skemmti­leg­ast að mynda hluti í nátt­úr­unni sem tengj­ast fólki á sögu­leg­an eða menn­ing­ar­leg­an hátt. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Áttu þér upp­á­halds­mynda­vél eða lins­ur fyr­ir nátt­úru­ljós­mynd­ir?

„Ég spái mjög lítið í tækni­leg­um atriðum svona í seinni tíð en ég er að vinna með Sony A7iii vél sem ég er bú­inn að eiga í nokk­ur ár ásamt þrem­ur lins­um. Ég nota lík­lega mest Sony GM 70-200 lins­una mína, hún er stór­kost­leg þegar kem­ur að því að mynda fjöll eða fjallstinda.“

Þekking Elíasar á landfræði og náttúrunni spilar mikilvægt hlutverk í …
Þekk­ing Elías­ar á land­fræði og nátt­úr­unni spil­ar mik­il­vægt hlut­verk í ljós­mynd­un­inni. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Ertu með ein­hver góð ráð fyr­ir fólk sem lang­ar að taka fal­leg­ar nátt­úru­ljós­mynd­ir?

„Besta ráðið sem ég gæti gefið er bara að fara út og taka enda­laust af mynd­um, öðru­vísi verður maður ekki góður í því sem maður er að gera að mínu mati. Þú get­ur verið með allskon­ar flott­an og dýr­an búnað í gríðarlega fal­leg­um aðstæðum en það ger­ir lítið fyr­ir þig ef þú hef­ur ekki reynslu og þekk­ingu til þess að nýta þér það.“

Sony GM 70-200 linsan er í uppáhaldi til að mynda …
Sony GM 70-200 lins­an er í upp­á­haldi til að mynda fjöll. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar

Hvað er framund­an hjá þér í sum­ar?

„Á næstu vik­um fer ég beint aft­ur upp á há­lendi og mun starfa sem land­vörður í Öskju og Herðubreiðarlind­um. Ég er líka frek­ar spennt­ur fyr­ir því að ferðast um Strand­ir þar sem ég er að vinna að ljós­mynda­verk­efni þar um rekavið og hlut­verk hans í sögu­legu sam­hengi á Íslandi.“

Besta ráðið að mati Elíasar er að æfa sig.
Besta ráðið að mati Elías­ar er að æfa sig. Ljós­mynd/​Elías Arn­ar
Það er margt spennandi framundan hjá Elíasi!
Það er margt spenn­andi framund­an hjá Elíasi! Ljós­mynd/​Elías Arn­ar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert