Töfrar fram ótrúlegustu flíkur með prjónum og garni

Hér sést Ásdís klædd Simone-prjónakápu en uppskriftina að henni er …
Hér sést Ásdís klædd Simone-prjónakápu en uppskriftina að henni er að finna á blaðsíðu 83 í bókinni. Samsett mynd

Ásdís Lofts­dótt­ir er sann­kallaður snill­ing­ur með prjón­ana og get­ur töfrað fram ótrú­leg­ustu flík­ur með prjón­um og garni. Hún gaf ný­verið út sína fyrstu prjóna­bók, titluð Hug­hrif, sem inni­held­ur ríf­lega 30 prjóna­upp­skrift­ir sem henta byrj­end­um sem og reynslu­bolt­um í prjóna­skap.

Ásdís er menntaður fata­hönnuður, hann­ar und­ir merk­inu Blacksand, og á að baki lang­an starfs­ald­ur í fag­inu. Hún er í dag bú­sett í sænsku borg­inni Upp­sala, ná­lægt einni dótt­ur sinni og fjöl­skyldu henn­ar, og er alltaf með eitt­hvað skemmti­legt á prjón­un­um.

„Ég flutti frá Íslandi haustið 2020 og flaug rak­leitt inn í kór­ónu­veirufar­ald­inn. Ég var orðin ast­ma­sjúk­ling­ur og vissi bara að hlýrra lands­lag myndi gera mér gott,“ út­skýr­ir Ásdís sem lét gaml­an draum ræt­ast þegar hún flutt­ist bú­ferl­um til Suður-Frakk­lands og kom sér upp heim­ili í alda­göml­um bæ sem ber heitið Pézen­as. Þar bjó hún í þrjú ár. 

„Ég prjóna aldrei annað en það sem ég hanna sjálf“

Síðastliðinn vet­ur ákvað Ásdís að flytja til Upp­sala í Svíþjóð þar sem hún vildi vera nær börn­um sín­um og barna­börn­um.

Hvernig lýs­ir þú borg­inni?

„Upp­sala er há­skóla­bær og takt­ur­inn þar er alþjóðleg­ur. Maður heyr­ir fjölda tungu­mála allt um kring. Miðbær­inn og elsti hluti borg­ar­inn­ar er mjög fal­leg­ur, ég elska að skoða og lesa um allt sem áður var. Rest­in af Upp­sala er ekki mikið fyr­ir augað, blokk­ir og aft­ur blokk­ir. 

Mikið er lagt upp úr því að fólk geti hjólað og al­menn­ings­sam­göng­ur eru til fyr­ir­mynd­ar. Það tek­ur mig eina klukku­stund að ferðast til Stokk­hólms með lest og þar er enda­laust hægt að skoða sig um.“

Það er mikil haustfegurð í Uppsala.
Það er mik­il haust­feg­urð í Upp­sala. Ljós­mynd/​Aya­di Ghaith

Hvernig er drauma­dag­ur­inn þinn í borg­inni?

„Drauma­dag­ar eru nú flest­ir dag­ar þar sem ég get vaknað í ró­leg­heit­um og látið mér líða vel. Ég er og hef alltaf verið frétta­sjúk svo á meðan ég nýt tesop­ans og meðlæt­is þá fletti ég helstu frétt­asíðum og tek stöðuna á heims­mál­un­um. 

Ég ræð tíma mín­um sjálf en flesta morgna sest ég við prjónapæl­ing­ar, elska að hafa margt á prjón­un­um, bók­staf­lega! Ég prjóna aldrei annað en það sem ég hanna sjálf og þó ég sé búin að vera prjón­andi í ára­tugi er alltaf eitt­hvað sem ég á eft­ir að prufa, skoða og end­ur­gera eða finna upp á. Svo nýt ég þess að fara út að labba og upp­götva ný um­hverfi.

Þá daga sem ég hitti barna­börn­in eru best­ir og eft­ir dags­stund með þeim fjör­kálf­um þá er til­valið að horfa á ein­hverja „whod­unit“ ráðgátu helst breska, með prjón­ana auðvitað.“

Áttu þér upp­á­haldsstað í borg­inni til að setj­ast niður og prjóna?

„Veit­ingastaður­inn Joy’s Food­b­ar í miðbæ Upp­sala held­ur prjóna­kvöld einu sinni í viku, ég kíki stund­um. Þar er hægt að panta góm­sætt ses­ar-sal­at og prjóna í góðum fé­lags­skap.

Ég hef samt kom­ist að því að það er hvergi eins mik­ill áhugi á prjóni eins og á Íslandi. Það kom mér mjög á óvart að upp­götva að hér finnst ekki mikið af sænsku garni, það eru nokkr­ir litl­ir fram­leiðend­ur en ekk­ert í lík­ingu við stóra fram­leiðend­ur eins og á hinum Norður­lönd­un­um.”

Lærði að prjóna sex ára göm­ul

Ásdís hef­ur verið prjón­andi frá barnæsku og lærði réttu hand­tök­in hjá móður sinni.

„Ég lærði að prjóna hjá mömmu minni um sex ára ald­ur­inn og síðan þá hef ég alltaf getað haft eitt­hvað fyr­ir stafni því þegar band og prjón­ar koma sam­an ger­ast æv­in­týri.”

Ásdís er alltaf að hanna eitthvað sniðugt.
Ásdís er alltaf að hanna eitt­hvað sniðugt. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað heill­ar þig við prjóna­skap­inn?

„Að sjá hug­mynd verða að veru­leika verður aldrei gam­alt eða þreytt. Þó svo ég hafi starfað við fata­hönn­un leynt eða óljóst frá ung­lings­aldri þá er prjónið alltaf efst í huga því þar eru mögu­leik­arn­ir óend­an­leg­ir og hver elsk­ar það ekki?”

Uppskrift af þessari fallegu peysu má finna í bókinni.
Upp­skrift af þess­ari fal­legu peysu má finna í bók­inni. Ljós­mynd/​Arnu Petra Sverr­is­dótt­ir

Það tók Ásdísi tvö ár að vinna bók­ina.

Hvaðan kem­ur titil­inn?

„Tit­ill bók­ar­inn­ar vís­ar í það ástand að verða fyr­ir hug­hrif­um og sýn­ir bók­in upp­runa og kveikju hug­mynda sem urðu að prjónaðri flík.“

Hvað er fram und­an?

„Ég verð með net­nám­skeið sem ég kalla Hannað með Ásdísi þann 30. októ­ber næst­kom­andi. Þar kenni ég hvernig fata­hönnuður ber sig að við hönn­un á prjónaflík frá hug­mynd að upp­skrift og til­bú­inni flík. Einnig er von á nýj­um vör­um frá mér í vef­versl­un Blacksand og ég er þegar ákveðin í að gera aðra bók og er á fullu að hanna fyr­ir það verk­efni.

Hughrif er glæsileg bók fyrir byrjendur sem og lengra komna …
Hug­hrif er glæsi­leg bók fyr­ir byrj­end­ur sem og lengra komna í prjóni. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert