Gunnhildur greiddi 735.000 krónur fyrir draumaferðina

Gunnhildur Lind Hansdóttir fór til Kosta Ríka í janúar og …
Gunnhildur Lind Hansdóttir fór til Kosta Ríka í janúar og segir það hafa verið mikla upplifun. Samsett mynd

Gunn­hild­ur Lind Hans­dótt­ir er 34 ára sjálf­stætt starf­andi ljós­mynd­ari. Hún er mik­il æv­in­týra­kona og nýt­ur þess að ferðast inn­an lands sem utan. Hún ferðast oft ein og fór í janú­ar á þessu ári í slíka ferð til Kosta Ríka, þar sem hún fór í brimbretta­búðir.

„Ég er ekki eins dug­leg að ferðast eins og ég hefði viljað. Mest hef ég farið til Spán­ar sem krakki með fjöl­skyld­unni. Svo bjó ég í fimm ár í Banda­ríkj­un­um þegar ég var í námi þar frá 2011-2016. Á þeim tíma nýtti ég tæki­færið til að ferðast inn­an Banda­ríkj­anna og fór t.d. til Flórída, Texas, Ari­sona, Kali­forn­íu, Mississippi, Kans­as og Nevada og til stór­borg­ar­inn­ar New York. Einnig hef ég ferðast aðeins um Evr­ópu og núna síðast fór ég til Kosta Ríka í Mið- Am­er­íku.“

Hvernig kom það til að þú fórst í ferðina til Kosta Ríka?

„Að fara til Mið-Am­er­íku hef­ur verið draum­ur frá því ég var í grunn­skóla. Ég hef alltaf verið heilluð af matn­um, tón­list­inni og dans­menn­ing­unni. Auk þess hef­ur mig alla tíð langað til að læra spænsku sem þriðja mál og ég er að vinna í því hægt og ró­lega í gegn­um Duolingo appið. Í há­skóla­nám­inu í Banda­ríkj­un­um gerði ég loka­verk­efni í spænsku um Kosta Ríka og var það lík­lega stór ástæða fyr­ir því að landið varð fyr­ir val­inu,“ seg­ir Gunn­hild­ur. 

Hér er Gunnhildur að skemmta sér á ströndinni.
Hér er Gunn­hild­ur að skemmta sér á strönd­inni. Ljós­mynd/​Aðsend


Hún nefn­ir aðra ástæðu fyr­ir því að Kosta Ríka varð fyr­ir val­inu. 

„Önnur ástæða er sú að ég hafði kynnst stelpu frá Sviss í brimbretta­búðum í Portúgal vorið 2019 sem var býr núna með fjöl­skyldu sinni í strand­bæn­um Santa Teresa í Kosta Ríka. Við urðum góðar vin­kon­ur þarna í Portúgal, báðar að ferðast ein­ar, og héld­um sam­bandi eft­ir dvöl­ina þar. Það var því heill­andi að ferðast til Kosta Ríka og þekkja eina bú­setta þar. Janú­ar og fe­brú­ar­mánuður er góður tíma­punkt­ur fyr­ir mig að fara í „sum­ar­frí“ frá minni vinnu svo þessi ferð var sum­ar­frís­ferð.“

Ævintýrin voru á hverju strái.
Ævin­týr­in voru á hverju strái. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvað kost­ar slík ferð?

„Ég bókaði stór­an hluta af ferðinni í gegn­um Kil­roy og óskaði sér­stak­lega eft­ir því að fara í LaPo­int brimbretta­búðirn­ar sem ég vissi af í Santa Teresa. Þetta eru sömu búðir og ég heim­sótti í Portúgal.“

Playa de Carmen strönd í smábænum Santa Teresa í Kosta …
Playa de Car­men strönd í smá­bæn­um Santa Teresa í Kosta Ríka. Ljós­mynd/​Aðsend

Átta daga brimbretta­búðir

„Hlut­inn sem ég greiddi til Kil­roy var 735.000 krón­ur og innifalið í því verði var allt flug ásamt gist­ingu í New York þar sem ég þurfti að milli­lenda bæði á leiðinni út og heim. Á leiðinni út fékk ég tvo heila daga til að skoða mig um þar áður en ég flaug svo til San José, höfuðborg­ar Kosta Ríka. Einnig var innifalið í þessu verði að fara í fimm daga road-trip ferðalag en þar gerðum við fullt af skemmti­leg­um hlut­um eins og að fara í stærsta zip-line í heims­álf­unni og á kaffikynn­ingu á al­vöru kaffi­býli. Loks, þá voru brimbretta­búðirn­ar í Santa Teresa í pakk­an­um frá Kil­roy en þær voru átta dag­ar. Eitt­hvað af mat var innifalið bæði í road-trip ferðinni og brimbretta­búðunum. Það voru nokkr­ir daga hér og þar á milli pró­gramma, þar sem ég þurfti að bóka mér hót­el og rútu sjálf og ég myndi hugsa að allt í allt hafi ferðin kostað í kring­um 1,2 millj­ón­ir. Þá er ég að tala um allt flug, gist­ingu, skipu­lagðar ferðir, mat­ur og allt sem ég keypti mér.“

Gunnhildur tengd við zip-line búnað í regnskógi.
Gunn­hild­ur tengd við zip-line búnað í regn­skógi. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig var hefðbund­inn dag­ur hjá þér í Kosta Ríka?

„Hefðbund­inn dag­ur byrjaði á því að vakna eldsnemma til að fara á brimbretti. Það er besti tím­inn því þá er ekki of heitt. Eft­ir að ég var búin á brimbrett­inu, sem var alltaf um tvær klukku­stund­ir í sjón­um, var farið heim í sturtu, fengið sér morg­un­mat og kaffi­bolla. Það var nán­ast alltaf borðað úti, und­ir skyggni. Mér fannst það æðis­legt, ég hafði út­sýni út á Kyrra­hafið og naut haf­gol­unn­ar með kaffi­boll­an­um. Eft­ir það fór ég oft í sólbað og í há­deg­inu hitti ég yf­ir­leitt stelp­urn­ar og við borðuðum sam­an. Eft­ir há­deg­is­mat fór­um við kannski á röltið, eða ég hitti hina vin­konu mína sem var bú­sett þarna og hún fór með mig á rúnt­inn á fjór­hjól­inu sínu.“

Gunnhildur dvaldi í nokkra daga í New York á leiðinni …
Gunn­hild­ur dvaldi í nokkra daga í New York á leiðinni út, hér er hún með Brook­lyn brúna í bak­grunn. Ljós­mynd/​Aðsend

Safn­ast sam­an á strönd­inni

„Það er al­gjör hefð í Kosta Ríka að fara á strönd­ina og horfa á sól­setrið, sem er svo ótrú­lega fal­legt á þess­um stað. Við stelp­urn­ar hitt­umst oft á strönd­inni í lok dags, horfðum á sól­setrið, fór­um svo og feng­um okk­ur kvöld­mat áður en farið var heim. Ég elskaði þessa rútínu, vakna snemma og fara að sofa snemma.“

Er erfitt að læra á brimbretti?

„Ég lærði fyrst á brimbretti fyr­ir fimm árum. Það var mjög erfitt en með end­ur­tekn­ing­um, þol­in­mæði og þrjósku er þetta hægt. Ég hugsa að það hjálpi að hafa ein­hvers­kon­ar bak­grunn í íþrótt­um eða dansi til að geta beitt lík­am­an­um sín­um rétt. Ég var viss um að ég þyrfti að læra allt upp á nýtt þegar ég fór aft­ur í brimbretta­búðir. En það kom skemmti­lega á óvart hvað mikið var vistað í vöðvam­inn­inu og hvað ég var fljót að ná hreyf­ing­unni.“

Bókaðir þú allt sjálf?

„Ég bókaði u.þ.b. helm­ing af ferðinni í gegn­um Kil­roy. Hitt bókaði ég sjálf, en ég fékk hjálp frá vin­konu minni sem er bú­sett þarna ásamt því að ég Googlaði eða horfði á YouTu­be mynd­bönd frá fólki sem hafði að ferðast um svæðið.“

Hefbundinn morgunmatur, eftir að brimbrettaþjálfun morgunsins var lokið.
Hef­bund­inn morg­un­mat­ur, eft­ir að brimbrettaþjálf­un morg­uns­ins var lokið. Ljós­mynd/​Aðsend

Lum­ar þú á ferðaráðum fyr­ir þá sem eru að spá í að fara til Kosta Ríka?

„Ferðaþjón­usta er risa­stór iðnaður í land­inu, ekk­ert ósvipað og hér­lend­is. Það er því auðvelt að finna t.d. rútuþjón­ust­ur og þess hátt­ar til að koma sér á milli staða. Þjón­ustu­lund­in er ein sú allra besta og það sit­ur enn í mér hvað fólk var in­dælt, kurt­eist og af öll­um vilja gert til að hjálpa manni. Slag­orð lands­ins er Pura Vida eða Hreint Líf, sem sést og finnst vel hjá Kosta Ríka búum. Þeir eru já­kvæðir, bros­mild­ir og af­slappaðir, eng­in drama­tík.“

„Annað sem mér dett­ur í hug er það að flest sam­skipti fara fram í gegn­um What­sapp for­ritið, þá er þægi­legt að nota það til að senda skila­boð á hót­el eða leigu­bíl. Best er að spyrja hót­el­in hvort þau séu með núm­er hjá leigu­bíl svo hægt sé að senda á og panta far á milli staða. Leigu­bíla­greiðslur eru all­ar greidd­ar með pen­ing, annað hvort banda­rísk­um doll­ur­um eða gjald­miðli lands­ins sem er colones. Landið hef­ur upp á að bjóða svaka­legt lands­lag, það er mikið um brekk­ur svo það er mjög gott að hafa núm­er hjá leigu­bíl.“

Gunnhildur segir heimamenn safnast saman á ströndinni og horfa á …
Gunn­hild­ur seg­ir heima­menn safn­ast sam­an á strönd­inni og horfa á sól­setrið nán­ast öll kvöld. Ljós­mynd/​Aðsend


Hvað er á döf­inni hjá þér, eru ein­hver ferðaplön?

„Mig dauðlang­ar aft­ur til Portú­gals að skoða meira þar. Fara þá til Porto og keyra niður strönd­ina að Lis­bon. Ég heillaðist upp úr skón­um af því landi þegar ég heim­sótti það í fyrsta skipti og lang­ar mikið að skoða meira þar. Ég væri líka al­veg til í að fara aft­ur til Kosta Ríka. Svo lang­ar mig að fara til Mexí­kó, Kúbu, Króa­tíu, Ítal­íu, Frakk­lands og Tyrk­lands.“

Kaffibaunir af kaffibýli en mikið er um kaffiframleiðslu í landinu.
Kaffi­baun­ir af kaffi­býli en mikið er um kaffifram­leiðslu í land­inu. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert