Gyða Dröfn Sveinbjörnsdóttir er vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni og einnig mikill ferðalangur. Frítíma sinn nýtir hún í útivist, ferðalög eða að töfra fram eitthvað girnilegt í eldhúsinu.
Hún og kærasti hennar, Heiðar Ernest Karlsson, hafa nokkur ár í röð, tekið sumarfríin sín á haustin og farið þá í um mánaðarlanga ferð erlendis. Þau hafa farið ansi víða og í einni af þessum ferðum fóru þau allan hringinn í kringum jörðina. Síðastliðið haust fóru þau í ógleymanlega ferð til Afríku, og er Gyða byrjuð að plana ferð fyrir næsta sumarfrí. Þessi hefð hófst hjá parinu árið 2019 en þá fóru þau í ævintýralegt ferðalag til Asíu. Í dag hefur Gyða komið til samtals 33 landa, í fjórum heimsálfum, þ.e. í Evrópu, Asíu, Afríku og Norður- Ameríku.
„Þetta fyrirkomulag hefur hentað mér og kærastanum mínum mjög vel, en við reynum að nýta helgarnar vel á Íslandi yfir sumarið. Eitt af mínum helstu áhugamálum eru ferðalög, en svo er ég mikil skíðakona og yfir vetrartímann vil ég helst eyða öllum mínum frítíma í brekkunum.“
„Fyrsta landið sem ég heimsótti í Asíu var Víetnam og það var ákveðið menningarsjokk að upplifa umferðina þar í fyrsta skipti. Þeir vita sem vita! Manni finnst eins og að það sé enginn að fylgja neinum umferðarreglum, en einhvernvegin gengur þetta samt upp.
En ég verð samt að segja að eitt allra mesta menningarsjokk sem ég hef fengið var í Tansaníu. Við lentum í höfuðborginni Dar es Salaam seint um kvöld, og það var strax mjög ljóst að innviðir borgarinnar eru mjög ólíkir því sem maður hefur vanist.
Ég hafði ákveðið að vera sparsöm í þetta skiptið og bóka ódýrt hótel, þar sem við vorum bara að gista þarna í eina nótt, það var kannski ekki besta ákvörðunin. Við vorum sótt á flugvöllinn um miðja nótt og farið var með okkur í hverfi, þar sem voru bara moldarvegir og kofar. Þar stóð eitt hús sem var þetta hótel, sem var frekar einhverskonar heimagisting. Við gátum bara borgað fyrir herbergið með reiðufé, þar sem þau voru ekki með neitt rafrænt greiðslukerfi og héldu utan um bókanir og nöfn gesta í handskrifaðri stílabók. Rafmagn og vatn var af mjög skornum skammti, og herbergið var kannski ekki alveg eins og við bjuggumst við.
Innanlandsflugin í Tansaníu voru líka framandi upplifun, flugmiðarnir voru handskrifaðir við innritun og flugvélarnar höfðu klárlega mátt muna fífil sinn fegurri,“ segir Gyða.
„Annars finnst mér menningarsjokk vera af hinu góða, það er svo hollt að fara út fyrir þægindarammann og upplifa hvað hlutir geta verið allskonar og allt öðruvísi en maður á að venjast annarstaðar í heiminum. Menningarsjokk hafa þroskað mig mikið og ég er mjög þakklát fyrir að fá að upplifa þau.“
Hvar hefurðu fengið besta matinn?
„Japan á þetta algjörlega skuldlaust, og þá sérstaklega í Osaka! Ég hefði gjarnan vilja vera með ótakmarkaða matarlyst á Dotonbori- götunni, sem er götubita himnaríki. Ég mæli með fyrir alla matgæðinga.“
Hvar hefurðu hitt skemmtilegustu heimamennina?
„Balí og Filippseyjar standa uppúr hvað varðar heimamenn, en menningin á Balí er svo falleg og fólkið algjörlega yndislegt.
Við hittum líka ótrúlega mikið af skemmtilegum heimamönnum á ferð okkar um Filippseyjar, og okkur fannst fólkið þar einstaklega vinalegt og hjálpsamt. Sérstaklega eftirminnilegt er kvöld á pínulítilli eyju sem heitir Calibangbongan, en við vorum svo heppin að vera þar á hátíðadegi, en heimamenn voru að halda bæjarhátíð í litla þorpinu á eyjunni. Við hittum hóp af börnum sem vildu fá okkur með í körfubolta ásamt mjög hressum sjómönnum sem tóku hátíðarhöldunum alvarlega og þeir voru eflaust búnir með þónokkra drykki. Þeir töluðu ekki ensku og við ekki þeirra tungumál en einhvernvegin náðu þeir samt að plata okkur til að kaupa fleiri drykki fyrir sig, og úr varð mjög skemmtilegt kvöld,“ segir hún.
Hvar eru fallegustu strendur sem þú hefur séð?
„Í Filippseyjum eru algjörlega stórbrotnar strendur, og hiklaust með þeim fallegustu sem ég hef séð. Þar er mikið af litlum eyjum með ósnertum ströndum, sem við fengum að kynnast þegar við sigldum um Palawan í þrjá daga. Það var mögnuð upplifun að hafa svona fallegar strendur algjörlega út fyrir sig, og ég mæli með svona siglingu fyrir þá sem vilja upplifa stórkostlegar strendur.“
Áttu þér uppáhaldsborg?
„Ég er mjög hrifin af bandarískum borgum og þar er Chicago efst á blaði, mæli mikið með heimsókn þangað! New York klikkar heldur aldrei, en ég hef komið þangað ótal sinnum og gæti alltaf farið aftur,“ segir Gyða.
Er einhver staður efst í huga sem þig langar mikið til að heimsækja aftur?
„Já Japan! Ég hef lengi verið heilluð af Japan og sú hrifning minnkaði sannarlega ekki eftir heimsókn þangað. Hlakka til að fara aftur og heimsækja fleiri staði.
Mér finnst líka Taíland vera svona áfangastaður sem ég gæti alltaf farið aftur til, æðislegt umhverfi, menning og matur á heimsmælikvarða.“
Hvaða land hefur komið þér mest á óvart?
„Ég verð að segja Namibía, algjörlega stórkostlegt land, ég hafði séð fallegar myndir áður en við fórum, en það jafnaðist ekkert á við að vera stödd þar í alvörunni. Það kom líka skemmtilega á óvart hvað allt var þægilegt og einfalt, og okkur leið mjög öruggum allan tímann. Við leigðum bíl og keyrðum um, og vorum fyrirfram pínu stressuð hvernig það yrði. Það var ekkert mál að keyra og frábær leið til að upplifa landið, en nauðsynlegt að vera klár í að skipta um dekk samt. Vegirnir eru klárlega þeir verstu sem við höfum upplifað, en allt þess virði.“
Er einhver ferðaupplifun sem er eftirminnilegri en önnur?
„Eitt af því sem er hvað eftirminnilegast er þegar ég heimsótti Amish þorp í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Það var upplifun sem ég mun aldrei gleyma og hafði mjög mikil áhrif á mig! Að fá innsýn inn í líf sem er svo ólíkt því sem maður er vanur er ómetanleg upplifun. Það var mjög merkilegt að sjá hvernig þau fara í gegnum daglegt líf án rafmagns og flestra nútíma þæginda, en skemmtilegast fannst mér að heyra sögur af þeirra menningu.
Til dæmis þegar einhver úr þorpinu lendir á sjúkrahúsi, þá skiptast fjölskyldur þorpsins á að heimsækja viðkomandi og veita honum félagsskap. Hver fjölskylda fær úthlutað einum bókstaf, og kemur með kassa fullann af hlutum sem byrja á þeim bókstaf. Til dæmis ef ein fjölskyldan fær úthlutað bókstafnum S, þá gætu þau komið með kassa sem inniheldur stafarugl, spil, súpu o.s.frv. Mér fannst þetta svo falleg hugsun, og samfélagið er mjög samheldið. Það er líka áhugavert hvað þau eru með allt aðra fegurðarstaðla en við, vegna þess að engar bíómyndir eða tímarit hafa áhrif á þeirra fegurðarstaðla. Mér skilst að þau horfi miklu meira á fegurð sem eitthvað sem kemur innan frá, að vera góð manneskja og þessháttar, sem er auðvitað það sem við öll ættum held ég að horfa á frekar en útlit.
Það var líka ótrúleg upplifun að fara í safarí í fyrsta skipti, og sérstaklega eftirminnilegt augnablik úr Serengeti þjóðgarðinum í Tansaníu þar sem við sáum hlébarða undirbúa sig undir að veiða antilópu til matar, en við höfðum beðið mjög lengi eftir að hann kæmi úr felum. Sem hann gerði sannarlega og labbaði meira að segja undir bílinn okkar, og var mjög nálægt. Pínu ógnvænlegt en aðallega bara magnað.“
Hvaða staðir eru á efst á óskalistanum?
„Eins undarlega og það kannski hljómar fyrir einhverjum, þá er Suðurskautslandið langefst á óskalistanum mínum, og hefur verið í nokkur ár. Mig dreymir um að ferðast þangað, en það er hinsvegar hægara sagt en gert. Aðrir staðir sem eru mjög ofarlega á listanum eru Patagonía, Galápagoseyjar og Grænland,“ segir hún.
Ertu með ferðatengdan fötulista?
„Mér finnst það gott markmið að vera búin að heimsækja jafnmörg lönd og ég er gömul, en ég er einmitt 33 ára svo ég þarf að halda áfram að heimsækja að minnsta kosti eitt nýtt land á hverju ári! Mig langar líka til að ná að heimsækja allar heimsálfurnar, sem vonandi tekst einn daginn.“
Er stefnan sett á ferðalag í haust?
„Já planið er að fara í langt ferðalag í haust, og ennþá ýmislegt sem kemur til greina en ég er helst að horfa til Eyjaálfu. Annars mæli ég með fyrir þá sem hafa áhuga á ferðalögum að fylgja mér á Instagram, en ég mjög dugleg að sýna frá ferðalögum þar og mun vera í haust,“ segir Gyða Dröfn spennt.