Ingibjörg Hekla Hafstein, námsmaður í Danmörku, segir það geggjað að búa í Kaupmannahöfn.
Í fyrra kláraði Ingibjörg stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands. Hún flutti beint til Kaupmannahafnar í nám og var að ljúka við fyrsta árið í orkuverkfræði við Tækniháskólann í Danmörku (DTU).
Hvernig er að vera námsmaður í Kaupmannahöfn?
„Námið er mjög krefjandi á köflum, en þegar ég á frítíma þá er geggjað að búa í Kaupmannahöfn og geta gert allt það sem borgin hefur upp á að bjóða. Kaupmannahöfn er mjög lifandi og skemmtileg borg svo það er alltaf eitthvað um að vera.“
„Að flytja út var ekki svo stórt stökk, þar sem flugið heim er stutt og menningin mjög svipuð hér úti og heima. Einnig eru svo margir Íslendingar sem búa hér úti og margir vinir eru til í að taka helgarferð til Köben og koma í heimsókn.“
Hvað kom þér mest á óvart þegar þú fluttir út?
„Ég hafði nokkrum sinnum farið til Kaupmannahafnar áður en ég flutti þangað svo það var ekki mikið sem kom mér á óvart. Það eina sem mér dettur í hug er hvað það er lítið úrval af orkudrykkjum hér miðað við heima á Íslandi.“
Ingibjörg er mikil hlaupakona og þykir skemmtilegra að fara út að hlaupa heldur en að fara í ræktina. Þegar hún var nýflutt út og ekki kunnug staðháttum þurfti hún þó að passa sig á því að villast ekki.
„Ég hleyp yfirleitt bara með hlaupaúr og skil símann eftir heima. Þegar ég var nýflutt hljóp ég alltaf bara sama hringinn í kringum Søerne, sem er eins konar tjörn, svo ég myndi ekki villast. Hringurinn í kringum Søerne er mjög vinsæl og falleg hlaupaleið og ég hleyp ennþá oft þar í kring. Í dag finnst mér einnig mjög gaman að hlaupa í gegnum bæði Frederiksberg Have og Fælledparken.
„Hér er mikið af fyrirtækjum sem halda vikulega svokölluð „social runs“ þar sem fólk kemur saman, hleypur stuttan hring og oft er boðið upp á frían morgunmat að hlaupinu loknu, sem er hvatning til að mæta og taka þátt. Ég hef mætt í nokkra af þessum hlaupaklúbbum með vinkonum mínum og það hefur alltaf verið mjög gaman.“
Ertu að vinna með skólanum?
„Já, en mjög lítið samt þar sem námið er krefjandi og tímafrekt. Ég er að vinna í fatabúð sem heitir Palette 26 og selur vel valdar „second hand“ flíkur. Það er mjög gaman að vinna í svona fallegu umhverfi, fá innblástur og vera með stelpum á mínum aldri sem hafa einnig áhuga á tísku og hönnun.“
Áttu einhverja uppáhalds veitingastaði?
„Það fer eiginlega bara eftir því í hvernig stuði ég er. Danir eru mjög mikið fyrir ítalska veitingastaði og ég get mælt með Resto Bar, Bar Amore og Locale 21. Baazar, sem er mið-austurlenskur og Llama, sem er suð-amerískur eru líka mjög góðir. Á Cafe Bopa er sjúklega næs útisvæði og ég elska að sitja þar úti í sólinni ef það er gott veður. Ef mig langar í góða pizzu þá fer ég oftast á Corsa Pizza.“
Hvernig hljómar hinn fullkomni dagur fyrir þér úti í Kaupmannahöfn?
„Uppáhalds dagarnir mínir hér úti eru þegar ég legg bækurnar á hilluna og leyfi mér að lifa eins og ég sé bara í fríi í útlöndum. Á hinum fullkomna degi væri bongó-blíða og dagurinn myndi byrja á einhvers konar hreyfingu. Mér finnst skemmtilegra að fara út að hlaupa en að fara í ræktina, þar sem veðrið er orðið svo gott. Eftir það myndi ég fara í sólbað með vinkonum mínum á bryggjunni í Nordhavn, fá mér síðan góðan hádegismat og sitja úti í sólinni. Svo væri bara alveg fullkomið ef ég væri með botnlaust veski og gæti farið að sjoppa og keypt mér allt það sem mig langar í. Dagurinn myndi enda á því að gera mig sæta, fara með vinkonum mínum í „dinner“ á næs veitingastað og djamma smá í bænum.“
Mælirðu með því fyrir Íslendinga að fara í nám til Kaupmannahafnar?
„Já, algjörlega! Námið er frítt og þótt að Köben sé dýr borg þá er allt allavega 10% ódýrara hér en á Íslandi, að mínu mati. Danmörk er þekkt fyrir að vera með góð kjör fyrir námsmenn og við Íslendingar getum fengið námsstyrk frá ríkinu ef við vinnum ákveðið marga tíma á viku. Ég næ vissulega ekki að vinna upp þessa tíma, en samt gott að vita fyrir þá sem eru að íhuga að flytja út í nám.“
„Ég myndi alltaf mæla með því að flytja út í nám, hvort sem það er til Kaupmannahafnar eða eitthvert allt annað. Reynslubankinn verður ekki svo veglegur ef maður býr bara á Íslandi allt sitt líf og það er svo mikilvægt að breyta um umhverfi, læra að standa á eigin fótum og kynnast nýju fólki af mismunandi uppruna. “