Allir geta smitast af höfuðlús, litla skordýrinu sem lifir sníkjulífi í hársverðinum, en það er algengt vandamál hjá börnum á skólaaldri eða frá þriggja til 12 ára aldurs. Höfuðlús getur valdið miklum óþægindum eins og ofsakláða og því mikilvægt fyrir foreldra og forráðamenn að vera meðvitaða um einkenni þessa skordýra svo hægt sé að grípa til aðgerða sem fyrst.
Höfuðlús er lítið vængjalaust skordýr sem hefur aðlagað sig manninum og eyðir æviskeiði sínu í hárinu á höfðinu. Hún nærist á því að sjúga blóð úr hársverðinum, en það er þeirra eina fæða.
Þær geta hvorki hoppað, flogið né synt en láta til skara skríða með því að skríða frá einu höfði yfir á annað ef að bein snerting verður frá hári til hárs.
„Höfuðlús dreifir engum sjúkdómum,“ útskýrir Dr. Jiny Coronado, barnalæknir hjá Pediatrix Primary and Urgent Care í Texas. „Hver sem er getur fengið höfuðlús og hefur persónulegt hreinlæti ekkert með það að gera að fá höfuðlús.“
Algengasta einkennið er kláði, en það getur stafað af ofnæmisviðbrögðum við munnvatni lúsarinnar sem sprautast undir húðina þegar lúsin nærir sig.
Samkvæmt Wendy Long Mitchell, löggiltum húðsjúkdómalækni, eru önnur einkenni:
Það getur reynst erfitt að finna lifandi höfuðlýs í hársverðinum þar sem þær forðast ljós og skríða hratt, en samkvæmt Dr. Coronado þá eru þetta skrefin til þess að ná sem bestum árangri í baráttunni við skordýrið.
Ýmis gömul húsráð, svo sem að setja júgursmyrsli eða vaselín í hárið, majónes, ólívuolíu eða jurtaolíu, drepa ekki höfuðlýs.
Ekki er hægt að mæla með notkun ilmolía í baráttunni við höfuðlús og líklegt að slíkt geri ekkert gagn þó svo margir mæli með Tea Tree olíu vegna sótthreinsandi eiginleika hennar.