Íslandsvinkonan og leikkonan Kaley Cuoco tók á móti sínu fyrsta barni, dótturinni Matildu, ásamt kærasta sínum Tom Pelphrey hinn 30. mars síðastliðinn. Hún glímir nú við slæma sinaskeiðabólgu á báðum höndum eftir að hafa haldið mikið á dóttur sinni.
Cuoco deyr þó ekki ráðalaus, en hún deildi æfingarútínu sinni nýverið á samfélagsmiðlum þar sem hún útskýrði að vega sinaskeiðabólgunnar þurfi hún að hvíla hendurnar alfarið. Það kemur þó ekki í veg fyrir að Cuoco taki hörkuæfingu.
„Hæ krakkar, eins og einhver ykkar vita þá er ég með slæma áverka á höndum eftir að hafa haldið á barninu mínu. Þetta er mjög raunverulegur hlutur. Googlaðu það,“ sagði leikkonan sem skartaði úlnliðsspelku á hvorri hönd.
Með myndskeiðinu vildi hún sýna að jafnvel þó fólk glími við meiðsli sé oftast hægt að hreyfa sig á einhvern hátt í kringum meiðslin.