Útkoman oft lítil sæt kríli

Davíð með Júlíu Rós og Viktoríu Hrönn.
Davíð með Júlíu Rós og Viktoríu Hrönn. Ljósmynd/Aðsend

Þegar Davíð Örn Símonarson, framkvæmdastjóri og frumkvöðull, er ekki að hjálpa fólki að finna ástina í gegnum stefnumótaforritið Smitten nýtur hann lífsins með dömunum í lífi sínu. Davíð og sambýliskona hans, Unnur Birna Magnúsdóttir, eiga þær Viktoríu Hrönn fjögurra ára og Júlíu Rós tveggja ára.

Hvað er það besta við að vera pabbi?

„Að sjá þessar litlu manneskjur vaxa og dafna.“

Hvað er mest krefjandi við föðurhlutverkið?

„Að halda jafnvægi á milli vinnu og fjölskyldu án þess að vanrækja annað hvort.“

Davíð og Unnur eiga tvær dætur saman.
Davíð og Unnur eiga tvær dætur saman. Ljósmynd/Aðsend

Hvað borðar þú í morgunmat?

„Ég borða ekki morgunmat, hef gert þetta núna í einhver fimm ár þar sem ég borða ekki fyrr en í hádeginu og mér hefur sjaldan liðið betur.“

Hver er uppáhaldsmatur fjölskyldunnar?

„Hakk og spagettí er í miklu uppáhaldi hjá öllum.“

Hver er uppáhaldsborgin þín og af hverju?

„Mín uppáhaldsborg er San Francisco, ég hef búið þar nokkrum sinnum í stuttan tíma í senn út af vinnu og finnst lífið í sólinni alveg frábært.“

San Francisco á stað í hjarta Davíðs.
San Francisco á stað í hjarta Davíðs. Ljósmynd/Unsplash.com/Daniel Abadia

Hvert væri draumafrí fjölskyldunnar?

„Draumafríð væri í einhverju heitu landi, á flottu hóteli með nóg af afþreyingu fyrir krakkana.“

Draumurinn er að fara á flott hótel í heitu landi.
Draumurinn er að fara á flott hótel í heitu landi. Ljósmynd/Unsplash.com/Toni Cuenca

Hvað gerir þú til þess að slaka á?

„Mér finnst ekkert sérlega skemmtilegt að slaka á þannig að ég kýs frekar að gera eitthvað skemmtilegt eins og að fara í golf eða spila tölvuspil.“

Hvaða hlutur er í uppáhaldi?

„Ætli ég verði ekki að segja nýi golf-driverinn minn.“

Nýi driverinn er í uppáhaldi.
Nýi driverinn er í uppáhaldi. Ljósmynd/Unsplash.com/Yianni Mathioudakis

Hvaða sjónvarpsþátt ertu að horfa á?

„Ég og konan vorum að klára að horfa á The Bachelorette, það eru þættir sem við horfum alltaf á. Ég er síðan mjög spenntur að sjá Seríu 45 af Survivor sem hefst núna í september.“

The Bachelorette.
The Bachelorette.
Davíð bíður spenntur eftir næstu þáttaröð af Survivor.
Davíð bíður spenntur eftir næstu þáttaröð af Survivor.

Eru til Smitten-börn?

„Það eru heldur betur til Smitten-börn og er það mjög gefandi að vinna við að búa til vöru þar sem útkoman er oft þessi litlu sætu kríli.“

Hvað gerir fjölskyldan saman um helgar?

„Við erum rosa dugleg að gera eitthvað skemmtilegt saman, sama hvort það er að fara á ný leiksvæði, kíkja í Skopp, Fjölskylduland eða eitthvað álíka.“

Skopp klikkar ekki.
Skopp klikkar ekki. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert