Það er mikilvægt að lesa til þess að bæta íslenskuna, bæta orðaforðann en ekki síst efla ímyndunaraflið. Stundum skiptir líka bara máli að slökkva aðeins á sjónvarpinu og flýja áreitið sem fylgir fylgir skjánum.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, lagði áherslu á íslenskuna þegar Alþingi var sett á dögunum.
Hinn nýbakaði faðir, fjölmiðlamaðurinn Snorri Másson, sagðist sömuleiðis mikilvægt að halda íslenskunni hátt á lofti í uppeldinu í nýlegu viðtali við Morgunblaðið. „Mér finnst mjög gaman að tala við Theódór stjúpson minn sem er fimm ára í hálfgerðum kansellístíl og bulla í honum með flóknum orðum eða jafnvel orðum sem eru ekki til. Hann getur greint vel á milli. Sum orðin tileinkar hann sér eftir föngum og með misjöfnum árangri. En hann er einkar mælskur og áhugasamur um tungumálið. Máltaka er undur. Og talandi um það, þá talar hann eiginlega enga ensku sem ég er mjög ánægður með að svo komnu máli og þar held ég að YouTube-leysi sé lykilþáttur. Skrýtið! YouTube er víst bara alveg bannað nákvæmlega þar sem við búum í Vesturbænum,“ sagði Snorri meðal annars í viðtalinu.
Í bókabúðum landsins má finna margar skemmtilegar bækur sem geta bætt, kætt og frætt.