Ingunn Sigurðardóttir, förðunarfræðingur og eigandi Reykjavík Makeup School og HI beauty, og Svavar Guðjónsson skírðu son sinn um helgina. Drengurinn er fyrsta barn parsins saman og kom í heiminn þann 24. júní 2023.
Ingunn birti fallegar myndir frá skírnardeginum af fjölskyldunni á Instagram-síðu sinni þar sem hún skrifaði: „Guðjón loksins skírður í dag með okkar nánustu fjölskyldu.“
Fjölskylduvefurinn óskar þeim til hamingju með nafnið!