Það er ekki bara mikil umferð í Ártúnsbrekkunni. Það er svo mikil umferð í Kaliforníu í Bandaríkjunum að Beverly Hills 90210-stjarnan Tori Spelling tók til örþrifaráða og pissaði í bleyju sonar síns.
Spelling segir að hún hafi verið stödd á hraðbraut þar sem er klikkuð umferð. „Ég er ekki að fara komast heim,“ sagðist Spelling hafa hugsað með sér þegar hún ákvað að pissa í bílnum. Spelling greindi frá atvikinu í hlaðvarpsþætti sínum að því fram kemur á vef Page Six.
„Svo ég bókstaflega teygði mig aftur í í Tori Poppins-töskuna mína og hugsaði góði guð, bara eitthvað. Ég fór í gegnum dótið og fann bleyju.“
Bleyjuna átti sonur hennar Beau sem er núna sjö ára en var á þessum tíma enn með bleyju. „Ég bókstaflega setti bleyjuna á mig og pissaði í bleyjuna hans Beau,“ sagði Spelling sem kann að bjarga sér.