Sofia Richie eignaðist stúlku

Sofia Richie og Elliot Grainge eru orðin foreldrar.
Sofia Richie og Elliot Grainge eru orðin foreldrar. Skjáskot/Instagram

Fyrirsætan Sofia Richie og eiginmaður hennar, Elliot Grainge, eignuðust sitt fyrsta barn saman þann 20. maí síðastliðinn. Stúlkan hefur þegar fengið nafnið Eloise Samantha Grainge.

Richie deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram þegar hún birti mynd af tám dóttur sinnar og skrifaði: „Eloise Samantha Grainge. 05.20.24 besti dagur lífs míns.“

Héldu glæsibrúðkaup á frönsku riveríunni

Richie og Grainge byrjuðu saman í apríl 2021 og ári síðar fór Grainge á skeljarnar. Þau gengu svo í það heilaga við glæsilega athöfn á frönsku riveríunni í apríl 2023.

Í janúar 2024 tilkynntu hjónin að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman, en þau opinberuðu gleðifregnirnar í viðtali hjá Vogue þegar Richie var gengin rúma sex mánuði á leið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert