Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, svífur um á bleiku skýi þessa dagana.
Matargyðjan varð móðir í þriðja sinn á dögunum, þegar henni og eiginmanni hennar, Haraldi Haraldssyni, deildarstjóra Icelandair Cargo, fæddist stúlka. Sú hlaut nafnið Margrét Maren í höfuðið á konum sem eru þeim kærar.
Eldri dætur hjónanna heita Ingibjörg Rósa og Kristín Rannveig.
Eva Laufey birti einstaklega fallega mynd af þeim mæðgum á Instagram Story og sagðist sko ekki þurfa að kvarta yfir lægðinni sem gengur nú yfir landið.
„Haustlægðin er í góðu lagi með þessari. Sofa-drekka-kúra og endurtekið í sömu röð allan sólarhringinn er rútínan okkar þessa dagana,“ skrifaði Eva Laufey við myndina sem sýnir hana horfa ástaraugum á tæplega vikugamla dóttur sína.
Eva Laufey tilkynnti um fæðingu stúlkunnar á Instagram-síðu sinni um helgina. Heillaóskum rigndi yfir fjölskylduna í kjölfarið.