Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Ísak Erni Kristinssyni. Fyrir eiga þau einn son.
„Stóri bróðir,“ skrifaði Margrét á samfélagsmiðla og birti mynd af syni þeirra með sónarmynd.
Parið hefur verið saman í nokkur ár en árið 2020 kom frumburðurinn Bjarni Þór í heiminn. Nafnið er í höfuð á móðurafa- og ömmu en það eru þau Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Þóra Margrét Baldvinsdóttir innanhúsráðgjafi.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar Margréti og Ísak til hamingju.