Fyrrverandi handboltakappinn Logi Geirsson og Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout, greindu frá því í apríl síðastliðnum að þau ættu von á sínu fyrsta barni saman. Um helgina opinberuðu þau svo kyn barnsins í færslu á Instagram.
Með færslunni birtu þau myndband þar sem þau standa á sólarströnd og sprengja konfettísprengjur, en úr þeim kemur bleikt konfettí sem gefur til kynna að stúlka sé á leiðinni. „Prinsessa Logadóttir væntanleg í ágúst,“ skrifuðu þau við myndbandið.
Greint var frá því á Smartlandi í júlí á síðasta ári að Logi og Inga Tinna væru nýtt par,en þá voru þau sögð hafa verið að stinga saman nefjum í þó nokkurn tíma.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!