Eiginmaðurinn vildi upplifa það að vera með óléttukúlu

Danshjónin Maksim Chmerkovskiy og Peta Murgatroyd.
Danshjónin Maksim Chmerkovskiy og Peta Murgatroyd. Samsett mynd

Leikkonan og dansarinn Peta Murgatroyd er gengin 36 vikur með sitt þriðja barn og er því heldur betur farin að finna fyrir óléttukúlunni. Eiginmaður hennar, dansarinn Maksim Chmerkovskiy, hefur að sjálfsögðu stutt vel við hana í gegnum alla meðgönguna til þessa. Það hefur hann meðal annars gert með því að vefja utan um sig appelsínum sem „brjóst“ og  vatnsmelónu sem „óléttukúlu“ til að skilja betur hvað Murgatroyd er að ganga í gegnum.

Murgatroyd segir að Chmerkovskiy sé farinn að gera þetta nokkuð oft til að sýna henni stuðning en uppátækið hefur einnig vakið mikla kátínu á meðal barnanna á heimilinu. 

Á dögunum deildi Chmerkovskiy skemmtilegu myndbandi á Instagram-síðu sinni þar sem hann tók nokkur dansspor með stóra vatnsmelónu og tvær appelsínur vafðar utan um sig með plastrúllu. Við myndbandið skrifaði Chmerkovskiy að hann hafi verið fegin að losa sig við alla þungu ávextina um leið og myndbandsupptökunni lauk en þetta var hans frumraun í að ganga með „óléttukúlu.“ 

Hjónin kynntust á æfingum fyrir Broadway-sýninguna Burn The Floor árið 2009 og gengu í það heilaga árið 2017. Einnig gerðu þau bæði garðinn frægan í frábærri innkomu sinni í bandarísku sjónvarpsþáttunum Dancing With The Stars.

Page six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert