Rithöfundurinn Katherine Schwarzenegger og eiginmaður hennar, leikarinn Chris Pratt, eiga von á sínu þriðja barni saman. Fyrir átti Pratt einn son með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Önnu Faris.
Hjónin gengu í hjónaband árið 2019 og síðan þá hafa þau verið dugleg að eignast börn. Þau eiga dæturnar Eloise Christinu sem er tveggja ára og Lylu Mariu sem er þriggja ára. Sonurinn Jack er síðan 11 ára.
Það gengur vel hjá þeim Schwarzenegger og Pratt en hann hefur meðal annars gert það gott í Marvel-kvikmyndum. Schwarzenegger einbeitir sér hins vegar að barnabókum og efni fyrir foreldra. Hún segir mikilvægt að þiggja alla hjálp sem maður getur í lífinu.
„Mér hefði liðið mjög illa ef ég hefði ekki tekið mömmu mína og systur með mér,“ sagði hún í fyrra þegar hún fór í kynningarferð til þess að kynna nýjustu bók sína Good Night, Sister. En mamma hennar Maria Shriver og systir hennar Christina hjálpuðu henni með börnin á meðan.