Hudson í sjokki hvað drengurinn hennar er orðinn stór

Kate Hudson og sonur hennar Bingham í fjölskyldufríi um þessar …
Kate Hudson og sonur hennar Bingham í fjölskyldufríi um þessar mundir. Samsett mynd

Það eiga eflaust margir foreldrar erfitt með að sjá börnin sín vaxa allt of hratt úr grasi beint fyrir framan nefið á þeim. Allt í einu eru litlu dúllurnar að nálgast foreldrana í hæð, löngu komin með leið á barnamótinu og í staðin komin unglingafýla í herbergið þeirra. Þetta er þó bestu skinn en Hollywood-stjarnan, Kate Hudson á erfitt með þetta líka. Hún er í sjokki hvað 12 ára sonur hennar, Bingham, er stór á fylskyldumyndunum sem hún tók í fjölskyldufríinu þeirra á dögunum.

„Sumarfrís-Bing, hvað er að gerast?! Barnið mitt er að verða allt of stórt!!!!,“ segir Hudson á Instagram reikningi sínum.

Ásamt Bingham á leikkonan soninn Ryder, 20 ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum Chris Robinson. Hún á svo líka dótturina Rani Rose, fimm ára, með unnusta sínum Danny Fujikawa. Hudson hefur talað um það opinberlega að samspilið milli þriggja heimila hefur gengið glimrandi vel enda hefur hamingja og vellíðan barnanna alltaf verið í forgangi.

„Út á við lýtur Þessi fjölskylda kannski ekki endilega út fyrir að vera svo hefðbundin, en innra með mér, líður mér eins og við erum algjörlega að negla þetta,“ segir Hudson í viðtali hjá fjölmiðlinum Sunday Times.

Söng um móðurhlutverkið

Hudson syngur um móðurhlutverkið í laginu sínu Live Forever á nýju plötunni hennar Glorious sem kom út 17. maí síðastliðinn. Þegar hún var að semja plötuna árið 2022 var hún stödd á miklum krossgötum í hennar lífi. Hún var að kveðja son sinn Ryder sem var á leiðinni í fjögurra ára háskólanám í New York-háskólanum en á sama tíma hugsaði hún mikið til barnsföður síns sem hún eyddi æskuárum drengja sinna með.

„Ég elskaði þessa manneskju. Ástin hverfur ekki bara, heldur geturðu upplifað öðruvísi ást. Þú getur átt stórkostlegar stundir með fyrrverandi maka vegna þess að það sem þið eruð raunverulega bara með fókusinn á að elska barnið ykkar,“ segir Hudson.

Us Weekly

View this post on Instagram

A post shared by Kate Hudson (@katehudson)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert