Leikkonan Vanessa Hudgens, þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni High School Musical, og eiginmaður hennar Cole Tucker hafa eignast sitt fyrsta barn.
Nýbökuðu foreldrarnir sáust fara heim af Santa Monica sjúkrahúsinu í Kaliforníu í gær þar sem hjúkrunarkona aðstoðaði Hudgens að komast út í bíl í hjólastól. Allt bendir til að fæðingin hafi farið vel þar sem hjónin virtust vera á bleiku skýi.
Fjölmargir miðlar vestanhafs bíða eftirtekta eftir að heyra kyn barnsins og vita nákvæman fæðingardag barnsins.
Hugleiðslutími sem fór fram í gegnum fjarsamskiptaforritið Zoom leiddi parið saman en þau giftu sig í desember í fyrra.