Handknattleiksparið Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason eru orðin foreldrar. Frumburður þeirra kom í heiminn í gær, 15. júlí, og tilkynntu þau gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram.
Sandra og Daníel eru bæði atvinnumenn í handknattleik og eru búsett í Þýskalandi þar sem Sandra leikur með Tuz Metzingen í þýsku úrvalsdeildinni og Daníel með Balingen.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar þeim innilega til hamingju!