Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir og svefnráðgjafi barna, birti á dögunum fróðlega færslu á Instagram þar sem hún deildi góðum ráðum fyrir foreldra barna sem eru að byrja hjá dagmömmu eða í leikskóla í haust.
Í færslunni, sem birtist á Instagram-reikningnum Sofa.Borða.Elska, segir Hafdís frá því að margir foreldrar hafi áhyggjur af því hvernig barnið muni sofa þegar það fer til dagmömmu eða á leikskóla, eða hvernig þessar breytingar munu hafa áhrif á svefninn almennt.
„Er barnið þitt að byrja hjá dagmömmu eða í leikskóla? Eruð þið komin í góða svefnrútínu og hefur þú áhyggjur af því hvort þessar breytingar muni hafa áhrif á svefn barnsins?
Hér eru nokkur atriði um hvernig þú getur stutt barnið þitt í að sofa sem best hjá dagmömmunni eða á leikskólanum:
Það er ekki nauðsynlegt að dagskipulagið sé nákvæmlega það sama heima og í daggæslunni. Þið getið haldið ykkur við ykkar rútínu heima við. Gefðu barninu að minnsta kosti 3 vikna aðlögunartíma þegar kemur að svefninum eftir að það byrjar í daggæslu og ekki hafa of miklar væntingar í byrjun. Gangi ykkur vel!“ skrifaði hún í færslunni.