Leik- og söngkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og sambýlismaður hennar, Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður, gáfu dóttur sinni nafn um helgina. Stúlkan, sem kom í heiminn þann 9. maí, fékk nafnið Kolfinna Anna Kolka.
Þórdís Björk og Júlí Heiðar tilkynntu nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram og birtu fallegar fjölskyldumyndir frá skírnardeginum.
„Dóttir okkar fékk nafnið sitt á þessum sólríka haustdegi. Kolfinna Anna Kolka Júlídóttir. Þrjú nöfn eins og Bjartur stóri bróðir,“ skrifaði parið við færsluna.
Stúlkan er fyrsta barn foreldra sinna saman en bæði eiga þau börn úr fyrri samböndum.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju!