Mætt í ræktina nokkrum dögum eftir fæðingu

Cardi B er orðin þriggja barna móðir.
Cardi B er orðin þriggja barna móðir. AFP

Tónlistarkonan Belcalis Marlenis Almánzar, betur þekkt sem Cardi B, eignaðist sitt þriðja barn á dögunum með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kiari Kendrell Cephus, eða Offset.

Cardi B hefur hlotið mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að hún birti myndband af sér í ræktinni átta dögum eftir fæðingu, en fylgjendur hennar höfðu miklar áhyggjur af því að hún hefði farið alltof snemma að hreyfa sig eftir fæðinguna. Nú hefur hún svarað háværum gagnrýnisröddum. 

„Þetta er þriðja barnið mitt og ferlið eftir fæðingu er aðeins frábrugðið fyrstu tveimur börnunum mínum ... ég er ekki að lyfta, ekki að teygja vöðvana, ekki að taka hnébeygjur, ekkert svoleiðis ... bara þolþjálfun,“ skrifaði hún á miðilinn X (áður Twitter).

„Stundum þarftu að halda huganum uppteknum til að forðast fæðingarþunglyndi og ég geri það með því að vinna og hreyfa mig,“ bætti hún við. 

Hún hélt áfram að svara gagnrýnendum á X og skrifaði meðal annars: „Veistu hvað er fyndið?? Þið dróguð mig niður þegar ég þyngdist um 15 kíló vegna þess að ég var komin fimm mánuði á leið, en núna eruð þið með falsaðar áhyggjur og viljið tala um þrýsting???“

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert