Enn er deilt um hvort kærasti Bobbi Kristinu Brown, Nick Gordon, fái að heimsækja hana á sjúkrahús í Atlanta í Georgíu þar sem hún hefur dvalið frá 31. janúar sl. Líkt og áður hefur komið fram fannst Bobbi meðvitundarlaus í baðkari á heimili þeirra og berst nú fyrir lífi sínu.
Lögfræðingur Bobby Brown, föður Bobbi, sendi frá sér tilkynningu á laugardagskvöld þar sem hann sagði að Gordon hefði fengið tækifæri til að heimsækja hana gegn ákveðnum skilyrðum. Lögfræðingar Gordon mæltu aftur á móti með því að hann hafnaði boði þeirra.
Í frétt AP-fréttastofunnar segir að Gordon hafi ítrekað boðist til að ræða málið við Brown en ekki í gegnum lögfræðinga þeirra.